Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.2003, Side 4

Freyr - 01.11.2003, Side 4
Styrkur Skagafjarðar er fjölþætt atvinnustarfsemi Viðtal við Rögnvald Ólafsson bónda í Flugumýrahvammi í Akra- hreppi í Skagafirði Rögnvaldur Ólafsson í Flugumýrahvammi rek- ur kúabú á fæðingar- jörð sinni ásamt konu sinni en er jafnframt virkur í félagsmál- um bæði í heimahéraði og í samtökum bænda. A nýliðnu sumri iagði blaðamaður Freys leið sína til hans til að fræðast hjá honum um búskap hans og Rögnvaldur Ólafsson og kona hans, Sigrún H. Þor- steinsdóttir. (Freysmynd). þátttöku í félagsmálum, en fyrst var hann beðinn um að kynna sig. Ég er fæddur hér og uppalinn, foreldrar mínir eru Sigurveig Rögnvaldsdóttir héðan frá Flugu- mýrarhvammi og Ólaíur Þórarins- son frá Ríp í Hegranesi. Ég gekk í barnaskóla hér í sveitinni, á Stóru- Ökrum, en fór í gagnfræðaskóla á Akureyri og þaðan í Menntaskólann á Akureyri og er stúdent þaðan árið 1972, búfræðingur árið eftir frá Hvanneyri og bú- fræðikandidat það- an árið 1977.Eftir það kenndi ég við Grunnskólann á Þelamörk í Eyja- firði í þrjá vetur en vann jafnframt hér heima við búrekst- urinn lungann úr sumrunum með for- eldrum minum. Frá 1980 - 1987 var ég lengst af verkstjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa í fiski. Kona mín er Sig- rún Þorsteinsdóttir frá Akureyri. Móð- urætt hennar er frá Bústöðum hér í Austurdal en föður- ættin frá Gásum í Eyjafirði. Við tók- um hér við búi árið 1987. Við eig- um fimm böm sem öll vinna eða hafa unnið við búreksturinn með okkur. Búskapurinn Hvernig búi búið þið? Við erum mjólkurframleiðendur að langmestu leyti og erum núna með greiðslumark upp á um 150 þúsund lítra. Það hefur um það bil tvöfaldast síðan við tókum við. Hins vegar höfum við ekki þurft að stækka íjósið vegna þess að faðir minn var einn af þeim sem hafði farið illa út úr skerðingum á framleiðslurétti. Við ólum svo upp þá nautkálfa sem fæddust en erum að hverfa frá því að mestu. Það er e.t.v. í lagi að gefa vinnuna sína en þegar það þarf að fara að gefa beinlínis með þeim þá er kominn tími til að hætta þessu uppeldi. Við erum svo með sauðfé rétt til heimilis og nokkur hross. Hverju leggur þú upp úr við ræktun kúnna? Ég er með skýrsluhald og hef alla tíð tekið þátt í sæðingum og aldrei notað heimanaut. Ég nota reynd naut á kýmar en lít ekkert til mjólkurmagns. Ég horfi til pró- teins og legg nokkuð mikið upp úr júgurgerð, mjöltum og skapi. Varðandi kvígumar þá nota ég óreynd naut á þær og vel eftir bæj- um og bændum. Hefur ekki mjólkurmagn á kú samt aukist? 14 - Freyr 9/2003

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.