Freyr

Volume

Freyr - 01.11.2003, Page 11

Freyr - 01.11.2003, Page 11
Júgurhreysti mjólkurkúa Nokkrir þættir úr rannsóknum á síðustu árum varðandi erfðaþætti júgurhreysti hjá mjólkurkúm Aheimsráðstefnum um búfjárerfðafræði og bú- fjárkynbætur, sem haldnar eru á fjögurra ára fresti, fæst ákaflega gott yfirlit um merkustu rannsóknir á þessum fagsviðum um allan heim. Ég hefi sagt frá nokkrum atriðum frá síðustu ráðstefnu sem haldin var haustið 2002 í Montpellier í Frakklandi í pistlum í Bændablaðinu. Hér á eftir er ætlunin að segja frá ör- fáum atriðum þar sem fjallað var um þær rannsóknir sem tengdust júgurbólgu hjá mjólk- urkúm. Heilsufar kúnna hefur á síðasta áratug orðið mun stærri þáttur í tengslum við umræður um kyn- bætur þeirra en áður var. Astæður þess eru fjölmargar, þær veiga- mestu vafalítið að hraustir og heil- brigðir gripir verða sífellt mikil- vægari fyrir hagkvæma fram- leiðslu með stærri rekstarareining- um i framleiðslunni. Vísbending- ar eru um að tengsl séu á milli sumra sjúkdóma og aukinna af- urða þannig að áhætta afkasta- meiri gripa gagnvart vissum sjúk- dómum er meiri. í þriðja lagi hafa vaxandi umræður um velferð gripa og opnari framleiðsluferla aukið athygli almennings á þess- um þáttum. I kynbótum nautgripa hefur áhersla í mjög mörgum löndum á síðasta áratug verið á að byggja upp kynbótamat um endingu gripanna. Rannsóknir á tengslum endingar og sjúkdóma eru því mjög miklar á allra síðustu árum. Auknar erfðatæknirannsóknir hafa einnig mikið beinst að möguleikum þess að fmna ein- staka erfðavísa sem hafa mikil áhrif á þróun einstakra sjúkdóma. I þriðja lagi hafa nýjar aðferðir í tölfræðilegri úrvinnslu á upplýs- ingum opnað nýja möguleika til að skoða gögn. Júgurbólga er í reynd ferill sem er flókinn og margbrotinn, en ekki ástand sem er annað hvort eða ekki, eins og þessi eiginleiki hefur lengst af til þessa verið skilgreindur og skráð- ur í þeim gögnum sem notuð eru í ræktunarstarfí. Sá þáttur, sem tvímælalaust heldur enn mest aftur af því að geta tekið eiginleika, sem tengj- ast sjúkdómum, með sem skyldi í ræktunarstarfinu, er skortur á góðum gögnum um þessa eigin- leika. Samræmda sjúkdóma- skráningu hjá nautgripum er tæpast enn nokkurs staðar að finna í heiminum nema á Norð- urlöndunum. I tengslum við rannsóknir á júgurbólgu eru einkum gögn Norðmanna nokk- uð einstæð, en þeir eiga nú orðið fast að því þriggja áratuga sam- fellda skráningu á öllum júgur- bólgutilfellum hjá mjólkurkúm þar í landi. Eitt af yfirlitserindum á ráð- stefnunni flutti prófessor G.W. Rogers við háskólann í Tennessee í Bandaríkjunum þar sem hann dró saman helstu niðurstöður úr rannsóknum síðustu ára á tengsl- um sjúkdóma mjólkurkúa við ýmsa eiginleika þeirra. Rannsóknir þessar staðfesta það að gagnvart mörgum sjúk- dómum koma fram greinileg erfðaáhrif þó að arfgengi flestar sjúkdóma sé mjög lágt eins og það er mælt og metið í dag. Rannsóknir á endingu mjólkur- kúa sýna að júgurhreysti kúnna er mjög sterkur þáttur í endingu þeirra. Einnig hafa á síðustu ár- um birst það margar rannsóknir að fullyrða má að erfðasamband júgurhreysti og afurðagetu er óhagstætt, þannig að með úrvali fyrir aukinni afkastagetu mjólk- urkúa verður þeim um leið hætt- ara við júgurbólgu. Rannsóknir sýna einnig skýrt að einu eiginleikar í útliti kúnna sem virðast hafa skýr áhrif á júgur- hreysti þeirra er júgurdýptin, þannig að síðu júgri fylgir aukin áhætta fyrir júgurbólgu eins og flestir munu þekkja af eigin reynslu. Vísbendingar eru einnig um að júgurfestan að framan, við bol, sé einnig þáttur sem skipti þama máli enda ljóst að bili eitt- hvað þar verður júgur fljótt of sítt. Rannsóknir gagnvart öðrum þátt- um, eins og spenastöðu og spena- lengd, sýna verulega misvísandi niðurstöður eftir kúakynjum (slík tengsl eiginleika geta verið mjög mismunandi á milli kynja). Hann taldi þó sterkar vísbendingar um það hjá svartskjöldóttu kúnum að stuttir og þétt settir spenar væm Freyr 9/2003 - 11 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.