Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 29
halda áfram að nota mjólkur-
skeiðsafurðir.
Kortlagning
MAGNERFÐAVÍSA (QTL)
A þessu sviði búfjárræktarinnar
er mikið að gerast þessi misserin.
Flest líkön, sem notuð eru í bú-
fjárrækt, gera ráð fyrir því að eig-
inleikamir, sem unnið er með, séu
undir áhrifúm frá mjög mörgum
erfðavísum, sem hver um sig hef-
ur mjög lítil áhrif. I daglegu tal-
i nefnt “infmitesimal model” eða
líkan óendanlega smárra einda.
Tilgangurinn með því, sem kallað
er QTL, er einkum þríþættur:
* Að finna þá erfðavísa eða
erfðavísahópa (Quantitative
Trait Loci) sem hafa mælanleg
áhrifa á eiginleikann sem um
ræðir.
* Að staðsetja QTL á einstökum
litningum.
* Að stunda úrval eftir merktum
erfðavísum, sk. “marker assi-
sted selection”.
Þar sem QTL rannsóknir eru
mjög dýrar er sjónum manna
einkum beint að þeim eiginleik-
um sem hafa lágt arfgengi, þar
sem hlutfallslegur ávinningur er
væntanlega mun meiri en þegar
um er að ræða eiginleika sem
hafa mælst með tiltölulega hátt
arfgengi og þar sem tiltölulega
miklum ávinningi er hægt að ná
með hefðbundnum aðferðum.
Dæmi um slíka eiginleika eru
júgurhreysti og frjósemi. Úrval
eftir merktum erfðavísum er
hægt að framkvæma strax og
gripurinn er kominn í heiminn,
ekki þarf að setja t.d. nautin í
tímafrekar afkvæmaprófanir,
þetta gæti því stytt ættliðabil
verulega sem eykur erfðafram-
farir mjög. Það býður þó á móti
heim hættu á verulegri aukningu
á skyldleikaræktarstuðli í stofn-
inum sem um ræðir.
Ræktun fyrir
AUKINNI JÚGURHREYSTI
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að júgurbólga er sá sjúk-
dómur sem veldur kúabændum
langmestum búsifjum. Til þessa
hefúr ræktun til aukinnar mót-
stöðu gegn þessum vágesti nýtt
upplýsingar um frumutölumæl-
ingar og á Norðurlöndunum hefur
skráning á júgurbólgu einnig ver-
ið nýtt í þessum tilgangi. Nú hillir
undir að hægt verði að nota raf-
leiðnimælingar (EC) á mjólkinni í
þessum tilgangi.
Við júgurbólgu breytist styrkur
an- og katjóna, Na+, K+ og Cl-,
(styrkur Na og C1 eykst) og þar
með rafleiðni í mjólkinni. Helsti
kostur rafleiðnimælinga er að
þær eru einfaldar og ódýrar, bún-
aði sem mælir rafleiðni má koma
fyrir í venjulegum mjaltakerfum
heima á búunum, ég sá m.a. slíkt
á kúabúum í Bandaríkjunum ný-
lega. Því má auðveldlega koma
þessum mælingum við daglega, í
stað mánaðarlega, eða tvisvar á
ársfjórðungi eins og tíðkast með
frumutölumælingar hér á landi.
Þá ber þess að geta að rafleiðnin
í mjólkinni breytist 1-2 sólar-
hringum áður en sýnilegra breyt-
inga (strimla) verður vart á
mjólkinni. Með mælingum í
mjaltakerfinu er því unnt að
bregðast skjótt við.
Til þess að eiginleikar komi að
notum í ræktunarstarfinu, verða
þeir að sýna erfðabreytileika. Nú
nýlega bárust mér í hendur niður-
stöður rannsókna sem lúta að hag-
nýtingu rafleiðnimælinga við
ræktun til aukinnar júgurhreysti.
Helstu niðurstöður þeirra eru að
arfgengi (h2) á EC er 0,26-0,36.
Til samanburðar er arfgengi
frumutölu 0,07-0,14 og á júgur-
bólgu er arfgengið 0,03-0,12.
Erfðasamhengi rafleiðni mjólkur-
innar og júgurbólgu mældist í áð-
umefndri rannsókn 0,65 (á kvarð-
anum 0 til 1), þannig að þessi
eiginleiki sýnist vel nothæfur til
kynbóta gegn hinum mikla vá-
gesti sem júgurbólgan er. A mynd
1 sést hvemig rafleiðni mjólkur-
innar þróast yfir mjaltaskeiðið,
lóðrétti ásinn sýnir rafleiðnina í
mmho (milli mho) og lárétti ásinn
sýnir fjölda daga frá buröi.
Þessi mynd kemur mörgum ef-
laust kunnuglega fyrir sjónir, þar
sem hún líkist mjög þróun fmmu-
tölunnar yfir mjaltaskeiðið, en
hún er há fyrstu dagana eftir burð-
inn, lækkar síðan ört, og hækkar
svo smám saman eftir því sem á
líður.
MoH ■
GERVITUNGL FYLGJAST
MEÐ SAUÐFÉ Á SUMAIi-
BEIT í NOREGI
Á afréttum fylkjanna Akers-
hus og Buskerud í Noregi gekk
sauðfé á þessu sumri með út-
varpssenda sem sýndu ná-
kvæma staðsetningu þess
samkvæmt GPS hnitakerfi.
Staðsetningin berst síðan eig-
anda fjárins inn á fartölvu hans.
í Noregi er töluvert um að
rándýr leggist á sauðfé á sum-
arbeit og veldur það verulegu
tjóni á hverju ári. Með stað-
setningartæki er unnt að fylgj-
ast betur með fénu og draga
þannig úr skaðanum. Þannig
sendir kerfið út viðvörun ef
kind hefur ekki hreyft sig um
tíma. Með þessu móti er unnt
að fylgjast með hvort fjárskað-
ar séu margir á ákveðnu svæði
og leita þar að skaðvaldinum
sem getur verið gaupa eða
fjallafress (jerv). Sumarið 2002
kom (Ijós að ein gaupa hafði
drepið 38 lömb á takmörkuðu
beitarsvæði.
(Bondebladet nr. 31-32/2003).
Freyr 9/2003 - 29 |