Freyr - 01.04.2005, Síða 14
KORNRÆKT
Að sá korni
KORN OG BYGG
Þegar nefnt er korn í þessari
grein, þá er átt við bygg nema
annars sé getið. Sú málvenja
tíðkast líka í grannlöndunum.
Bygg er nánast eina kornteg-
undin sem hér er ræktuð. Hafr-
ar eru ræktaðir til þroska á fá-
einum hekturum og vetrarhveiti
á einum stað.
KORNRÆKTARLAND -
ANNARS VEGAR MELAR OG
SANDAR, HINS VEGAR
MÝRAR OG MÓLENDI
Skipta má ræktunarlandi í tvo
flokka. Annars vegar eru sandar
og melar, hins vegar eru fram-
ræstar mýrar og mólendi. Hvor
landgerðin hefur til síns ágætis
nokkuð. Þroskaferill korns er
mjög mismunandi eftir land-
gerð. Á söndum og melum
þroskast korn fyrr en á annars
konar landi. [ köldu ári skiptir
það miklu. Á söndum og mel-
um er aftur á móti hætt við
þurrkskemmdum á vorin og þar
þarf korn mun meiri áburð en á
mólendi og mýrum. Byggyrki
verður líka að velja eftir jarðvegi
og er nánar fjallað um það hér á
eftir.
SÝRUSTIG Á AÐ VERA Á
BILINU PH 5,5-7,0
Kornræktarlandand verður að
vera vel framræst og ekki úr hófi
súrt. Ef menn eru ekki vissir um
sýrustigið verða þeir að láta
greina það. Ef sýrustigið er
lægra en pH 5,5 þarf að kalka,
best er að nota skeljasand svona
3 tonn/ha. Korni líður heldur
ekki vel ef sýrustigið er hærra en
pH 7,0 en það getur komið fyrir
í skeljasandseyrum við sjó.
Eftir Jónatan
Hermannsson,
Landbúnaðarhá-
skóla íslands,
Keldnaholti
BEST ER AÐ SÁ SNEMMA
EÐA UM LEIÐ OG JÖRÐIN ER
TILBÚIN
Til að nýta sumarið allt þarf að
sá snemma vors. Jörðin verður
samt að vera tilbúin og farin að
þorna. Jarðvegur má ekki kless-
ast við jarðvinnslu. Sjaldan verð-
ur jarðvegur svo þurr fyrr en
klaki er farinn úr jörðu.
Eins verður að taka tillit til
þess að korn þolir ekki langvar-
andi frostakafla eftir að það er
komið upp. Kornið þolir reyndar
frost og alls kyns óáran meðan
það er að spíra. Það tekur um
það bil mánuð. Eftir það verður
Sexraðabygg í Skagafirði,
Ljósm. Jónatan Hermannsson
Korn af Kríu.
Ljósm. Jónatan Hermannsson
kornplantan viðkvæm. Reikna
má með að harða frostakafla
geti gert allt fram undir miðjan
maí. Því er ekki ráðlegt að sá í
stóra akra fyrr en um miðjan
apríl, jafnvel þótt jörð sé orðin
þurr fyrir þann tíma. Ef sáning
dregst fram í maí kemur það
aftur á móti beint niður é upp-
skerunni.
10
FREYR 04 2005