Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.2005, Side 38

Freyr - 01.04.2005, Side 38
VEÐURFAR Áhrif væntanlegra loftslagsbreytinga á landbúnað FYRRI HLUTI IEftir Bjarna E. Guðleifsson, Landbúnaðarháskóla íslands, Möðruvöllum Loftslag jarðar er sífellt að breytast og er það þekkt bæði á sögulegum og for- sögulegum tíma, stundum kólnar og stundum hitnar. Ekki leikur neinn vafi á því að hitastig fer nú hækkandi á jörðinni og er því er spáð að hraði hlýnunar muni jafnvel aukast á næstu ára- tugum. Þrjú hlýjustu ár á jörðinni síðan mælingar hófust eru nýleg, 1998, 2001 og 2002. Við verðum vör við þetta i hlýviðrum að vetri og hugsanlega einnig í breytingum á vindáttum. Þessar breytingar eru að hluta náttúrulegar en að hluta til eru þær af manna- völdum. Landbúnaðurinn byggir framleiðsluna á líf- verum og er því afar háður loftslaginu, en einnig er Ijóst að athafnir í landbún- aði hafa áhrif á manngerð- an hluta loftslagsbreyting- anna. GRÓÐURHÚSA- LOFTTEGUNDIR Manngerðar loftslagsbreytingar tengjast einkum losun manna á svonefndum gróðurhúsaloft- tegundum, sem mynda hjúp um jörðina. Þær valda því að minni hluti af hitageislum jarð- ar komast út úr gufuhvolfinu, og afleiðingin er að hitastig jarðarinnar hækkar smám sam- an. Helstu gróðurhúsaloftteg- undir eru koltvísýringur (C02), mýragas (metan, CH4), hlátur- gas (N20) og einnig vatnsgufa (H20). Enda þótt árleg losun mýragass og hláturgass sé minni en koltvísýrings, þá er virkni hverrar sameindar af mýragasi og hláturgasi marg- föld á við koltvísýringinn. Þann- ig er hver sameind (mólekúl) af HÉR ER BIRTUR FYRRI HLUTI GREINAR BJARNA E. GUÐLEIFSSONAR UM ÁHRIF LOFTSLAGSBREYTINGA Á LANDBÚNAÐ. l' SEINNI GREIN BJARNA, SEM BIRT VERÐUR ( 3. TÖLUBLAÐI FREYS, VERÐUR FJALLAÐ UM BEIN ÁHRIF ÞESSARA BREYTINGA Á ÍSLENSKAN LANDBÚNAÐ OG HVAÐ SÉ TIL RÁÐA. mýragasi 21 sinnum virkari en koltvísýringurinn og hver sam- eind af hláturgasi 310 sinnum virkari. ( útreikningum á losun gróðurhúsalofttegunda er öll- um gastegundum oft breytt I jafngildi kotvísýringssameinda. Rekja má um 60% af aukn- ingu í gróðurhúsaáhrifum til koltvísýrings, um 20% til mýra- gass og 6% til hláturgass. Á heimsvísu losa iðnaður og elds- neytisbrennsla farartækja mest af gróðurhúsalofttegundum. Landbúnaður í heiminum veld- ur einungis litlum hluta af kol- tvísýringslosuninni en 50% af losun mýragass og 80% af los- un hláturgass. Þegar öllu hefur verið breytt í jafngildi koltvýsýr- ings gæti hlutdeild landbúnað- ar I heiminum af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda verið innan við 20%. Losun land- búnaðar á koltvísýringi er aðal- lega vegna bruna á jarðefna- eldsneyti (bílar og vélar) og vegna öndunar og niðurbrots á lífrænum efnum. Losun land- búnaðar á mýragasi er vegna meltingar jórturdýra, niður- brots á búfjáráburði og vegna hrísgrjónaræktunar. Losun hláturgass í landbúnaði kemur einkum úr ýmsum jarðvegsferl- um, tilbúnum áburði og búfjár- áburði, auk bruna lífrænna efna. HNATTRÆNAR LOFTSLAGSBREYTINGAR Þær loftslagsbreytingarnar, sem hafa bein áhrif á landbún- að, eru fyrst og fremst hækkun á koltvísýringsmagni andrúms- loftsins, sem nýtist plöntum sem næringarefni. Aukning í koltvísýringi og öðrum gróður- húsalofttegundum leiðir jafn- framt til hækkunar á hitastigi. Segja má að innan vissra marka 34 FREYR 04 2005

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.