Freyr

Volume

Freyr - 01.03.2002, Page 15

Freyr - 01.03.2002, Page 15
I FerðaDJónusta banda Ferðaþjónusta á vegum bænda hefur að öllum lík- indum verið til frá upphafi byggðar í landinu og lengst af einvörðungu falist í gestrisni þeirra. Ekki er að finna skipu- lagða ferðaþjónustu fyrr en ár- ið 1970 þegar Flugfélag Islands hóf að gefa erlendum ferða- mönnum kost á að dvelja á ís- lenskum sveitaheimilum gegn gjaldi. Flugfélagið auglýsti eftir sveitaheimilum sem hefðu hug á að bjóða erlendum ferða- mönnum þjónustu sína og fékk mann að nafni Gunnar Hilm- arsson til að skoða aðstæður hjá þeim sem svöruðu auglýsin- gunni. Akveðið var að fímm bæir skyldu bjóða þessa þjón- ustu. f upphafí voru þetta bæ- irnir: Stóra-Borg í Víðidal í V- Húnavatnssýslu, Efri-Hreppur í Skorradal í Borgarfjarðar- sýslu, Hvítárbakki í Bæjarsveit, Laugarbakki í Miðfírði í V- Húnavatnssýslu og Fljótstunga í Hvítársíðu í Mýrasýslu. Flugfélagið stóð vel að kynn- ingu bæjanna og í október 1969 kom út viðamikill bæklingur sem hafði að geyma myndir og upp- lýsingar um hvem bæ. Árið 1970, fyrsta árið sem ferðaþjónusta var starfrækt á bæj- unum, vom gistinætur alls 330 talsins eða 66 nætur að meðaltali á hvern bæ. Árið 1971 fjölgaði bæjunum í 14 og gistinætumar urðu 550 sem að vísu skiptust að- eins niður á 11 bæi, þjónusta þriggja bæja nýttist ekki. Árið 1990 var ferðaþjónusta rekin á fimm þessara bæja. Að vísu hafa orðið nokkur hlé á rekstri bæj- anna frá byrjun, nema í Fljóts- tungu þar sem hann hefur gengið sleitulaust. í fyrstu var þessi þjónusta ein- ungis boðin útlendingum. Menn vissu dæmi þess að Islendingar fengu þær upplýsingar um þjón- ustuna að hún væri einungis ætl- uð útlendingum. Til fróðleiks má nefna að í Fljótstungu gisti fyrsti íslendingurinn árið 1976. Tveim- ur árum síðar gistu þar íslenskir leiðsögumenn og árið 1979 dvöldu þar íslensk hjón í heila viku. Árið 1988 voru 65% gest- anna á bænum hins vegar íslend- ingar Á Búnaðarþingi árið 1971 var í fyrsta skipti rætt um ferðaþjón- ustu í tengslum við atvinnumál bænda og hafði Bjarni Arason, héraðsráðunautur, forgöngu um þá umræðu. Hann áleit að í ferða- þjónustu væru miklir möguleikar fyrir bændur ef vel væri að staðið og áhersla lögð á afþreying,u eins og veiði, hestamennsku o.fl. Hugmyndir Bjarna virðast stand- ast tímans tönn því að nú tuttugu ámm síðar eru mjög svipaðar hugmyndir hafðar að leiðarljósi eftir Sævar Skaptason, framkvæmda- stjóra, Ferðaþjónustu bænda varðandi starfsemi Ferðaþjónustu bænda. Ferðaþjónustubændur héldu sinn fyrsta formlega fund í októ- ber 1973 á Úlfsstöðum í Borgar- firði. Þessi fundur var haldinn að frumkvæði Ingibjargar Bergþórs- dóttur í Fljótstungu og Hjalta Sigurbjörnssonar á Kiðafelli vegna óánægju með verðlagsmál. Gagnvart bændum gaf Flugfélag- ið út verðskrár í íslenskum krón- um snemma á haustin og giltu þær í eitt ár. Verðbólga var mikil á þessum árum og rýrnuðu tekjur ferðaþjónustubænda á því tíma- bili sem leið frá því verð var Ferðaþjónustumiðstöð við þjóðveginn á Hallandi á Svalbarðsströnd. (Freysmynd). Freyr 2/2002-15 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.