Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.2002, Side 17

Freyr - 01.03.2002, Side 17
9% 36% 28% □ Suðurland ■ Vesturland □ Norðurland □ Austurland 27% 1. mynd. Skipting ferðaþjónustubæja eftir landsvæðum. stofa Ferðaþjónustu bænda mörg þróunarverkefni í markaðssetn- ingu þjónustunnar, m.a. sölukerfi fyrir silungsveiði í ám og vötn- um og skipulagningu á náms- ferðum erlendra nemendahópa til íslands. Ferðaþjónusta bænda hefur líka unnið að undirbúningi á útgáfu “A Saga Travellers Guide to Iceland”, eftir dr. Marijane Osbom, með það fyrir augum að höfða til markhóps sem hefur áhuga á íslenskri menningu. A sama tímabili hefur Ferða- þjónusta bænda kynnt almenningi á íslandi þá þjónustu sem fyrir hendi er á bæjunum með umfjöll- un í fjölmiðlum eða auglýsing- um. Fræðsla fyrir félagsmenn hefur líka verið ofarlega á baugi og samvinnuverkefni við Bréfa- skólann, meðan hann starfaði, og Iðntæknistofnun. “Fjarnám í ferðaþjónustu” er árangur tveggja ára starfs. Árið 1990 hafði Skrifstofa Ferðaþjónustu bænda í fyrsta skipti milligöngu um hópferðir í samvinnu við ferðaskrifstofur, auk þess að setja saman sínar eigin ferðir. Þetta var liður í því að skrifstofan skapaði rekstrar- grundvöll fyrir þá sölustarfsemi sem þar fór fram. Þessi þróun var sambærileg við það sem gerst hafði eða er að gerast í sölumál- um ferðaþjónustu á vegum bænda í öðrum Evrópulöndun. Þá hefur skrifstofan einnig lagt áherslu á að auka framboð og fjölbreytni í því sem ferðaþjón- ustubændur hafa upp á að bjóða varðandi afþreyingu gestanna, auk þess sem rík áhersla er lögð á lengingu nýtingartímans. Ferðþjónusta bænda í dag Nú eru um 120 ferðaþjónustu- bæir innan Ferðaþjónusta bænda. Þessir bæir dreifast um allt land- ið. Á 1. mynd má sjá hvemig þessir bæir skiptast milli land- svæða. Eins fram kemur eru flestir bæ- ir á Norðurlandi. Flestir em þeir í kringum Akureyri en aðrir dreif- ast nokkuð jafnt yfir svæðið. Á Austurlandi eru flestir bæir í grennd við Egilsstaði, en það eru t.d. engir bæir í Seyðisfirði sem er mikill ferðamannastaður vegna siglingu ferjunnar Norrænu. Á Suðurlandi er dreifing um svæðið nokkur jöfn, en t.d nálægt Höfn og Selfossi eru fleiri bæir en ann- ars staðar á Suðurlandi. Á Vestur- landi er dreifing bæja nokkur. Við höfuðborgarsvæðið eru nokkrir bæir. Snæfellsnesið er vinsælt svæði og eru þónokkrir bæir þar en á Vestfjörðunum, sem er vaxandi svæði, eru ekki eins margir bæir. Á þeim 120 ferðaþjónustubæj- um, sem eru í boði, em um 2.800 gistirými. Þetta rými dreifist vel yfir landið en er mest á Suðurlandi, sjá 2. mynd. Flokkunarkerfi Ferðaþjónustu bænda f gildi er flokkunarkerfi innan Ferðaþjónusta bænda. Kerfið var hannað fyrir 14 árum en innleitt á bæjunum fyrir 10 ár- um og er nú fyrirhugað að upp- færa það í takt við nýja tíma. Gisting í uppbúnu rúmi skiptist í þrjá flokka eftir þeirri aðstöðu sem boðið er upp á í herberginu. Öll gisting er í einföldum her- bergjum og fylgir hreint hand- klæði hverju rúmi. Gisting í flokki 1 felur í sér gis- tingu í herbergi sem er án vasks 9% 31% 37% 23% □ Suðurland ■ Vesturland □ Norðurland □ Austurland 2. mynd. Skipting gistirýmis milli landsvæða. Freyr 2/2002-17 I

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.