Freyr

Volume

Freyr - 01.03.2002, Page 35

Freyr - 01.03.2002, Page 35
lagði bærinn til án endurgjalds. Stöðin fékk því til umráða 14 dagsláttur eða tæplega 4,5 ha og mun það hafa verið land hennar allan tímann. Störfin í Gróðrarstöðinni Fyrsta skýrsla Einars Helga- sonar um starfsemi Gróðrarstöðv- arinnar birtist í Búnaðarritinu 1902. Þar lýsir hann landi stöðv- arinnar sem hallar lftið eitt á móti suðvestri. Ofantil er það grýtt, en neðar hverfur grjótið og dregur til mýrlendis sem þarfnaðist framræslu. Eftir grjótnám og framræslu fékkst góður gróður- beður. Að þessum undirbúningi var unnið sumarið 1900 og þá þegar voru settar niður kartöflur, 19 afbrigði, og birtir hann tölur yfir uppskeru það ár. Landið var þó ekki girt að fullu fyrr en vorið 1902 og geymsluhús var ákveðið að byggja 1903. Sumarið 1901 voru hafnar til- raunir með fóðurrófur (5 af- brigði), rófur til manneldis, (næp- ur og gulrófur, 11 afbrigði), gul- rætur (ýmis afbrigði), allmörgum grastegundum var sáð og höfrum til fóðurs og einnig tveimur teg- undum af lúpínum. Ymsar tegundir trjáa voru þá þegar gróðursettar og sömuleiðis sólber og rifs og fleiri runnar til skjóls og vörslu eins og segir í skýrslunni. Eftir þetta birtir Einar reglubundið skýrslur um starf- semina í Búnaðarriti til og með ársins 1917. Það er athyglisvert hve margt var reynt á fyrstu árunum. Sum- arið 1902 er reynd ræktun á 22 tegundum grænmetis og fleiri en einu afbrigði af sumum. Auk þess voru reynd 15 afbrigði af gulróf- um og 74 afbrigði af kartöflum. Af fóðurjurtum voru reynd 13 af- brigði, þ.e. af fóðurrófum, næp- um, sinnepi og fóðurbeðum (fóð- ursykurrófum). Sáð var 16 gras- Búnaðarfélagshúsið við Lækjargötu tegundum til reynslu og auk þess smára, flækjum, lúpínum og skurfu, nokkrar tegundir og af- brigði af sumum. Komrækt var reynd, bæði bygg þrjú afbrigði og hafrar vom reyndir, bæði til þroskunar og grænfóðurs. Svipað var þetta næstu árin. Aburðartil- raunir með tilbúinn áburð voru j fyrst gerðar á stöðinni 1904 (fos- fór og kalíáburður) og þá einnig hjá 17 bændum á hennar vegum. En notkun hans hafði þónokkuð verið reynd áður, einkum á rófur. Þetta ár er einnig reynt að sá grasfræblöndum og er mælt með því fremur en að sá einstökum tegundum. Garðyrkjunámskeið vom hald- in á stöðinni, fyrst 1902 og síðan | árlega, allt til er garðyrkjutilraun- ir voru fluttar að Laugarvatni j 1932. Nemar voru mismargir frá ári til árs en nokkuð á annan tug j þegar best lét (flestir 16). Sumarið 1905 var hafinn undir- búningur að gerð „gróðrarsýnis- staða” fyrir sáðsléttur á stöðum, | sem vel vom í sveit settir, „þar sem fjölfarið var” og trú var á góðum ræktunarmönnum. For- í Reykjavík, reistárið 1905. ræktað var í tvö ár, með byggi eða höfmm fyrra árið og síðara með rófum og síðan sáð grasfræi. Staðirnir voru: Hvanneyri, Sauðafell, Britingaholt, við Þjórs- árbrú og Utskálar. Sagt er lítil- lega frá þessum stöðvum næstu árin og í skýrslu frá 1910 er talað um þrjár „útstöðvar” sem þá em í Deildartungu, á Selfossi og Efra- Hvoli í Hvolhreppi. „Dreifðar jarðræktartilraunir”, eins og menn hafa nefnt þetta á síðari tímum, eiga sér því langa sögu. I skýrslu sinni um árið 1907 lýsir Einar Helgason nokkuð stöðinni og víkur að fræðslugildi hennar: „Gróðrarstöðin er nú orðin all- álitlegur blettur þegar hún er í blóma sínum um sumartímann. Mikill hluti landsins er nú kom- inn í góða rækt, og nú er búið að byggja allstóra vermireiti, flatar- mál þeirra er 75 ferálnir. Nú em orðin betri tök á að koma þar við fjölbreyttri jarðrækt, en áður hefir verið. Plöntuvinir þeir, sem skoða stöðina á sumrin, fara nú síður þangað árangurslausa ferð en áð- ur. Reyndar hefir hún ekki verið Freyr 2/2002 - 35 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.