Skátablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 3
C/(LadiHaty jóá!
/1/1 ér pykir vcent um aö mega senda skdlum sérstaka jóla-
/ f L kveðju i blaði þeirra að þessu sinni. Ég hef aldrei ver-
ið skáti sjálfur, kannski af því, að ég átti heima langt
úti i sveit, þegar ég var drengur, og þar heyrðust skátar aldrei
nefndir.
Siðan hef ég haft töluverð kynni af skátum og met félagsskap
þeirra mikils. A undanförnum jólum hefur fallegur hóþur skáta,
stúlkur og drengir, aðstoðað mig við guðsþjónustur á jólanótt
hér i Dómkirkjunni. Þau buðu þá aðstoð fram að fyrrabragði.
Eg nota þetta tcekifceri til þess að óska þeim gleðilegra jóla með
þakklceti fyrir þessar miðnceturstundir. Um leið hugsa ég til
annarra skáta, fceri þeim þakkir fyrir alla góða framgöngu i göf-
ugum félagsskap og bið þeim gleðilegrar hátiðar og gcefurikrar
framtiðar.
Skátarnir, sem hafa hjálpað til í Dómkirkjunni á jólanótt,
hafa verið Ijósberar. Það hefur verið hlutverk þeirra að kveikja
blys við kirkjudyr, bera kertaljós i kirkjuna, halda á tendruð-
nm kertum í kórnum. Þeir hafa gengið i kirkjuna i hvitum
skikkjum og með logandi Ijós í höndum um leið og athöfnin
hófst. Þegar þeir gengu inn með Ijósin sin, fylltist kirkjan af
hlýrri birtu. Öll smáu Ijósin urðu samfellt Ijóshaf. Þetta lyfli
undir orð og söng, þegar boðskapur jólanna var fluttur, boð-
skapurinn um frelsarann, sem er líf og Ijós rnannanna.
Allir sannir skátar vilja vera Ijósberar í lifi sinu. Það vilja
allir göfugir menn. Þeir vilja vera þannig og koma þannig fram,
að frá þeim berist birta, en ekki skuggar og dimma. Þá langar
að hafa bjart i kringum sig, birtu yfir sér, svo að þeir veki
öðrum gleði og geri þeim léttara að lifa. Þeir vilja lýsa þeitn,
sem rata ekki réttan veg, lenda í erfiðleikum þess vegna, eða
ogöngum. Þá langar að bera bjarma inn i skuggahverfi mann-
lífsins, þeir vilja vera jafnöldrum sínum og öðrum til fyrir-
‘'nyndar og leiðbeiningar, svo að þeir sneiði hjá hálum, óhrein-
um og hcettulegum vegum og villugötum.
Framhald á síðu 108.
>
skátablaðið
99