Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 10

Skátablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 10
til neinnar gleði. Ef þið viljið, þá björgum við Carlo okkur sjálfir. Mat- inn fáið þið, þegar hann er tilbúinn." Jakob beit enn vastar á vörina. Hann fann að hann stokkroðnaði. En Mikaela kom honum iil biargar. „Þér verðið að afsaka,“ sagði hún við hirðinn. „Það er bara vegna kuld- ans og stormsins, að bróðir minn er svona önugur, hann vær alltaf kvalir í eyrun í svona veðri. Síðan hvæsti hún á dösku til Jakobs. „Svona reyndu nú að bæta úr þessu sjálfur. Við erum nú einu sinni gestir hans og hann er neyddur til að gefa okkur að borða. Hagaðu þér nú eins og maður.“ Mikaela gekk yfir að eldstæðinu, en Jakob neri sér aftur að gluggan- um og starði út. Hann hataði Mika- elu, snjóinn, Ítalíu og hirðinn, pabba sinn og mömmu og einnig sjálfan sig. Hvers vegna gat maður verið svo leiðinlegur, að maður fann það sjálf- ur? Þegar maður svo fann það, varð maður ennþá verri, bara af vonzku út af því að vita það. Allt var rangsnúið, ekkert gekk sem skyldi. Það var ekki lengur neitt sérstakt, merkilegt eða skemm'.ilegt í sambandi við það, að pabbi var hér alltaf heima og vann þar. Maður var næstum farinn að þrá að vera í ein- rúmi með mömmu. Pabbi og mamma voru auðvitað ánægð yfir að vara ein heima, því þá losnuðu þau við jólaumstangið. Annars tíndi mamma alltaf til beztu orðin, orð.sem ollu því, að maður var ekki vondur lengur. Hérna var hann á sjálft jólakvöldið, án gjafa og jólatrés og gat sjálfum sér um kennt. Það eitt var næg ástæða til að gera mann fokvondan án þess að einhver legði orð í belg. „Þetta get ég vel gert sjálfur,“ heyrði hann Carlo segja, þar sem hann stóð við eldinn. Jakob vissi ekki hvert umræðu- efnið var. En setningin vór íram og aftur í huga hans með sívaxandi hraða. Mikaela var heilu ári yngri en hann og þar að auki stelpa. Hún gat haft heimil á sér, þótt reið væri, og jafnvel varið hann. Allt, því henni fannst hirðirinn ekki ætti að hugsa um dösk börn, sem óþægilega jóla- gesti. Og svo var það Carlo. „Ég tel upp að fimmtíu. Mjög hægt,“ sagði Jakob við sjálfan sig. „Ég verð að bæla niður reiðina." Þegar hann hafði talið upp að þrjá- tíu og fimm, nennti hann því ekki lengur. Hin voru varin að hlægja og hafa hátt, það var ííflalegt að vera í vondu skapi, einungis til að ergja sjálfan sig. „Sjáðu Jakob, komdu hingað," sagði Carlo. Og þegar hann nálgað- ist þau, sá hann hvað hirðirinn hafði búið til. Carlo var ekki lengur þungbúinn á svip. Hirðirinn var líka vingjarnleg- ur og brosti. „Sko, við erum að búa iil jötu, — jólajötu," útskýrði Mikaela. „Ces- are er mjög laginn við að skera út. Verst er, að við skulum ekki hafa liti til að mála með dýr og menn.“ „Til hvers eru jurtalitirnir, sem við ætluðum að nota á marzipanið, nema til að lita dýrin," sagði Jakob. Hirðirinn var mjög snjall tréskurð- armaður. Hann gerði mynd af Maríu og Jósef, og Jesúbarninu, dýrunum og fjárhirðunum. Nú máluðu þau af kappi. Hvað gátu þau nú no’að v'yrir íjár- hús. Mikaela hreinsaði fil á öðrum borðsendanum, og setti þar allt, sem þau höfðu haft meðferðis. Lítil askja, sem hirðirinn átti, varð prýðilegt snjóhús, þegar dálítið af bómull var sett ofan á hana. Cesare 106 SKATABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.