Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 15

Skátablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 15
skyldi halda þig flæking, en ég hélt að þú værir ekki vörður." ,,Mér íannst þú ekki líkiast Indí- ána“, sagði maðurinn. „Ertu ylfing- ur?“ ,,Já, en jarlinn vill ekki leyfa okk- ur að koma hingað aftur.“ „Það er reglulega illa gert af hon- um, er það ekki?“ „Nei, nei. Það er ekki hægt að kenna honum um það,“ sagði Alan, „ef sumt fólk skemmir staðinn. Hann hefur gert okkur gott, með því að leyfa okkur að korna." „Hefurðu nokkurntíma sagt honum það?“ „Nei“, sagði Alan. „Ég þekki hann ekki, ég hef aldrei séð hann. Það hlýtur að vera erfitt að tala við jarla.“ „Já, en það ætti að þakka þeim greiðvikni, samt sem áður,“ sagði maðurinn. „Já, deildarforinginn okkar skrif- ar honum þakkarbréf stundum, okk- ar foringi heitir hr. Robb. En Akela segir, að honum sé bezt þakkað með því að hreinsa til hérna, þegar við komum." „Það er nú ekki svo slæmt.“ „Akela segir, að þá gerum við góðverkið okkar, og við hjálpum landinu okkar, svo það líti vel út. Það eru lög um, að það skuli ekki skilja eftir kilja eftir rusl. Veiztu, að Þú gætir íengið sekt íyrir að skilja klútinn þinn eftir?“ „Nei, er það,“ sagði maðurinn, „þú hefur þá sparið mér peninga, á ég þá ekki að borga þér íyrir að hjálpa mér?“ „Nei, nei. Það er ekki hægt að taka við borgun fyrir svoleiðis, Akela segir, að svona lagað séu góðverk, Þakka þér samt íyrir. Jæja, ef þú ratar hér um, þá verð ég víst að fara til sveitarinnar minnar, það get- ur verið eitthvað, eftir af tei og kexi, þú ert svangur." „Þakka þér fyrir, en ég þarf þess ekki,“ sagði gamli maðurinn. „Þú ert mjög kurteis, veiztu hvað það þýðir?“ „Já, já. Það þýðir, að maður á að koma vel fram. Þetta er eitt af skáta- ^ögunum, en ég er að læra þau núna.“ „Jæja, til hamingju með það,“ sagði gamli maðurinn. „Þakka þér fyrir, vertu sæll,“ sagði Alan og hljóp af stað til hinn strák- anna, sem Akela var farinn að kalla saman. Alan gleymdi þessu atviki íljót- lega. Það var ekki fyrr en á næsta sveitarfundi, að deildarforinginn birt- ist og eftir að búið var að heilsa honum, sagði hann: „Hver af ykkur átti samtal við Jarlinn af Sedleigh um daginn?" Enginn gat svarað því, Deildarforinginn dró þá upp bréf, sem hann las upphátt: Kæri skátaforingi. Mér hefur verið sagt af einum úr ykkar hópi, að kurteisi sé hluti af skátalögunum, og sá sem talaði við mig, var auðsjáan- lega að fara eftir þeim lögum. Eitt góðverk skapar annað. Þess vegna, þrátt fyrir, að ég hafði ákveðið að Getur þú N& P I ? u HJÁLPAÐ KANÍNUNNI MEIM! Gulli: „Ég trúi ekki á jólasveina, pabbi." Pabbi: „Af hverju?“ Gulli: „Búálfurinn sagði mér, að það væru ekki til iólasveinar." leyfa ekki umgang um landareign mína, hef ég þá ánægju að bióða ykkur og öllum meðlimum ykkar kurteisa samfélags að koma á land- svæði mitt, hvenær sem þið hafið til þess iækifæri. Ég hef látið verði mína vita um, að allir skátar og ylfingar megi koma og mun full kurteisi verða sýnd í þeirra garð. Yðar einlægur, Sedleigh." „Ha, hvað segirðu,“ sagði Alan, ,,og ég sem hélt að þetta væri bara venjulegur maður.“ Allir hlógu, þegar Alan sagði frá því, sem gerzt hafði, en Akela sagði, á eftir, að ylfingar ættu að vera iafn kurteisir við alla, bæði venjulegt fólk og jarla, og vissulega væri íil miklu fleira venjulegt fólk en jarlar. Hafið þið aldrei séð kennara áður? Svör: ■söjeq -pun |9A6ng ‘„smoq qs fo tujds" '3 AU!» SIA BJsæjq-tq6!JM l?A6n|3 a •suueio uqop jb|uj!06 AjnoJsiAl „Z diqspuaiJj" o qsod Ae|!M |eA6nu-0B|Al 9|uu|m '0 MpueieupuniÁN ‘aoejo jnoq -jbh bjj qbis je !S6e| unq sB J! -IJ8 tsipuAj tues ‘u!|0A6n|j-iJeqjB3 ’v qjeqjes egeujev ’S •qöjeqpun 'v ss|jeqo 'p qsod A9|!M £ ■jp uusio uqop z •}q6]JM 9|||MJ0 60 JnqnM 't SKATABLAÐIÐ 1 1 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.