Skátablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 21
aðra starfsemi iil viðbótar, — reyn-
um við að fylgjast með tímanum, án
þess þó að missa okkar séreinkenni?
Við skulum einnig taka til athug-
unar, að flestir núverandi skátafor-
ingjar eru ungir að árum og reynslu,
sumir eru í námi, aðrir að koma sér
upp heimili, og hvorttveggja er bæði
dýrt og tímafrekt.
Og nú vil ég leggja spurningu fyr-
ir okkur öll: Nýtum við alla þá mögu-
leika, sem fyrir hendi eru? Förum
við út fyrir okkar hring til að fá hjálp
og aðstoð í einhverri mynd? Eða
sitjum við sem fastast í flokkshorninu
okkar og hnýtum okkar hnúta?
Getum við innleitt í okkar starf
eitthvað, sem ekki beinlínis er tekið
fram í prófunum, en þó gagnlegt og
skemmtilegt. Mín skoðun er sú, að
við eigum að fylgjast með tímanum
— að vissu marki þó — missa aldrei
sjónar á skátaheitinu og skátalögun-
um — vera víðsýni og framsýni, og
fundvís á verkefni.
Mér hefur oft dottið f hug, t. d.
með Reykjavíkurskáta, hvort þeir
gætu ekki nýtt betur sambandið við
Æskulýðsráð Reykjavíkur, heldur en
Þeir hafa gert. Geta ekki foringjar
hagnýtt sér ýmiss námskeið á vegum
Æ. R., svo að þeir verði ennþá íær-
ari um að kenna skátum sínum eitt-
hvað nýtt.
Ég vil ekki á nokkurn hátt, að
menn skilji orð mín svo, að foringjar
eigi ekki að sækja íoringjanámskeið
á vegum B. í. S. og félags síns eftir
sem áður. Foringjanámskeið skát-
anna eru nauðsynleg, að enginn for-
ingi ætti að láta sig vanta þar.
En gæti það ekki hugazt, að æsku-
lýðsráð myndi get hlaupið undir
bagga, ef foringjar eða skátar þeirra
í flokk eða sveit, þyrftu á námskeiði
a3 halda, eða þó ekki væru nema
smáleiðbeiningar um eitt eða ann-
að, sem skátarnir hefðu áhuga á að
kynnast eða læra.
Æskulýðsráð er jafnan íil íaks, ef
einstaklingar, félög eða hópar æsku-
fólks þarfnast fyrirgreiðslu. Eitt af
aðalverkefnunum er að styðja frjálst
æskulýðsstarf sem þegar er íyrir
hendi, þó að öðru leyti verði að
sinna þeim unglingum, sem hvergi
vilja binda sig í æskulýðsstarfi, en
reika um og vita ekki hvað þau vilja.
í húsakynnum æskulýðsráðs að
Fríkirkjuvegi 11 eru nú 3 dróttskáta-
sveitir, er hafa hreiðrað um sig á
þakhæð hússins, og virðist íara vel
um þær. St. Georgs Gildið hefur
einnig fastan fundarstað að Fríkirkju-
vegi 11. Því ekki að athuga þann
möguleika, að æskulýðsráð gæfi veitt
aðstoð, ef þess er óskað. Væri ef til
vill möguleiki á að íá föndurnám-
skeið fyrir Ljósálfa- og Ylfingafor-
ingja, svo eitthvað sé nefnt.
Ég vil ekki fara frekar inn á það,
hvað gæti komið íil greina, en eftir
5 ára starf hjá Æskulýðsráði Reykja-
víkur, er ég viss um, að starfandi
æskulýðsfélög gera sér ekki íyllilega
Ijóst, að þarna er virkilega aðili, sem
hægt er að leita til með ýmislegt, og
þá einum það, sem félögin ekki beint
hafa á stefnuskrá sinni, eða hafa
ekki bolmagn til að leysa.
Ég slæ svo botninn í þetta rabb
mitt, en vil minna á, að við skátar
megum ekki einangra okkur um of.
Minnumst þess, að við erum einn
aðilinn í þjóðfélagsheildinni, en
leggjum áherzlu á að vera SKÁTAR
þjóðfélagsins.
SKATABLAÐIÐ
117