Skátablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 12
12 fullkomin þvottakerfi,
sem má velja um:
1 Suða
2 Heitþvottur
3 Bieyjur
4 Mislitt
5 Viðkvæmur þvottur
6 Viðkvæmur þvottur
7 Stífþvottur/þeytivinda
8 Ullarþvottur
9 Viðbótarbyrjun
10 Non-iron
11 Nylon/non-iron
12 Gluggatjöld
100°
90°
100°
60°
60°
40°
90°
90°
40°
SS
Rafha Haka Fullmatic sjálfvirka
þvottavélin fer sigurför um landið.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
LEIKANDI LÉTT!
Aðeins snúa einum snerii og þér eruð
örugg um rétta þvotta-aðferð.
Yður getur ekki mistekizt.
•ó
IÓLHKVEÐJI1, framhald.
ss
ss
o*
o*
Enginn hefar fœðzt og lifað, sem bar eins mikla birtu og
Jesús Kristur. Þess vegna er hátíðin svo björt, sem haldin er til
minningar um fœðingu hans.
Við mennirnir getum aldrei kveikt Ijós, nema af öðru Ijósi.
Öll birta kemur frá einhverri Ijósuppsprettu. En hugur manns-
ins getur verið dimmur, þótt hann njóti allra heimsins rafljósa.
Menn geta notað Ijós skynsemi sinnar til þess að brugga skugga-
leg ráð. Það er hægt að fremja myrkraverk við neonljós. Hvað
við erum, fer eftir þvi, hvað við hugsum. Hvort við berum með
olikur birtu eða skugga, er undir jivi komið, hvernig hugur
ohkar er. Hugur mannsins, hugarfar hans, ræður mestu um það,
hvort heimur hans er rnyrkur eða bjartur.
Hugur Guðs er uppspretta þeirrar birtu, sem getur gerl bjart
í huga okkar. Og Jesús Kristur er hugur Guðs hjá okkur og með
okkur. Þegar við erum nœrri honum, elskum hann, fylgjum hon-
um, berst hlýr og bjartur geisli inn í huga okkar, sem hreinsar
allt þar inni, eyðir kulda og dimmu og lýsir upp. Við köllum það
TRU að vilja vera nœrri honum og hafa Ijósið hans i huga sér.
Og kirkju köllum við þá menn, sem iaka höndum saman til þess
að glœða birtuna hans i sjálfum sér og í heiminum.
Jesús Kristur er „hið sanna Ijós, sem upplýsir hvern mann“■
Fylgjum honum. Þá farnast okkur vel.
Crleðileg jól.
SIGURBJÖRN EINARSSON.
o.S2SSS.S.S.*«óSS.S.S.S.S.ó.oSS2S.S.S2S.ó.S.S.*.o.*2S.S.ó.ógSóSó2S.o.S.S.ó.S.ó.*.*.S.S.óSó.*.S.SSS.S.S.ó.*.*.S2S.S.S.ó88.S2ó.S.S.S.SS*.*.S8S.S.S.S.S8'
108
SKATABLAÐIÐ