Skátablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 48
Frá skátahöfðingja
Skátaárinu „Inn í hringinn“ lauk
1. október s.l. Ekki eru margar
skýrslur komnar frá þeim skátasveit-
um, sem tóku þátt i verkefnunum.
Þcer sveitir voru í raun og veru allt
of fáar. Samt sem áður er ekki hagt
að leggja dóm á, að hve miklu leyti
hefur verið unnið eftir kjörorði
ársins i skátastarfinu almennt, en
vonandi hefur svo verið.
Ferð islenzku skátanna á Jam-
boree tókst vel, eftir því sem stjórn-
endurnir hafa tjáð okkur, þeir Arn-
finnur Jónsson og Oktar Októssson.
Það var leitt hve fáir skátar tóku
þátt i ferðinni, en nokkur afsökun
er það, að þetta er alldýrt ferðalag.
Það urðu mikil vonbrigði fyrir
skáta á Norðurlöndum, að Jam-
boree 1971 skyldi ekki vera valinn
staður á Norðurlöndum, eins og
sótt var um, heldur í Japan. En það
er ekki ólíklegt, að við getum átt
von á að fá það 1975. Eg er sann-
farður um, að Jamboree á Norður-
löndum yrði mikil lyftistöng fyrir
norrœnt skátastarf og ekki sizt hér
hjá okkur.
Það var ánagjulegt að fylgjast
með því, sem gerðist hjá Akureyrar-
skátum s.l. vor, er þeir héldu upp
á 50 ára afmælið. En forráðamenn
Akureyrar hafa stutt skáta þar mjög
vel i starfi og veitt þeim mikinn
stuðning. Það má reyndar segja, að
flest sveitarfélög geri það nú orð-
ið í rikum mceli, þar sem skátafélög
eru starfandi. Má benda á t.d., að
skátar í Reykjavík hafa fengið hús-
nceði á sjö stöðum i borginni, en
fá auk þess töluverðan rekstrar-
slyrk úr borgarsjóði. I Hafnarfirði
er myndarlegt skátaheimili, svo er
einnig á Akranesi og Isafirði og
reyndar viðar. Á Akureyri eru þrjú
skátaheimili. I Garðahreppi og
Vestmannaeyjum og Njarðvík hafa
skátarnir fengið húsnceði hjá bœjar-
félaginu og svo mun viðar vera.
Má telja, að skátafélögin séu orðin
allstyrk i starfi viðast hvar og
standa mörg scemilega traustum
fótum fjárhagslega. Hins vegar má
segja, að bandalagið sé ekki eins
fjársterkt. En bandalagið þarf að
geta haft erindreka, sem sifellt er
á ferðinni, og stutt þannig félögin
í starfi. Einnig þarf að halda uppi
námskeiðum og sjá um frceðslu-
starfsemi. A árinu gátum við haft
erindreka í sex mánuði, en það er
alls ekki nóg. Fjárþörf bandalagsins
er mál, sem þarf að rceða gerla á
skátaþinginu á komandi vori.
Og nú er nýhafið skátaárið „Frá
fjöru til fjalla“. Eins og nafnið
bendir til, er aðalverkefni þess að
auka útistörf skáta eftir þvi, sem
föng eru á. Hugmyndabceklingar
hafa verið gegnir út og cetlunin, að
þeir komi þrisvar út á þessu skáta-
límabili. Timabilinu mun Ijúka i
árslok 1968. Oll gögn varðandi
skátaárið má fá í skrifstofu BIS, en
heppilegast er að fá þau gögn, sem
taka til sumarstarfsins, þegar líður
á veturinn.
En þegar hugurinn reikar til
sumarsins og sumarstarfa og undir-
búnings undir þau, þá kemur eðli-
lega í hugann 26. maí ncesta vor,
þegar breytt verður um umferð hér
á landi, horfið frá vinstri umferð
yfir til hcegri umferðar. Það er ekk-
ert efamál, að þessi breyting verður
mjög erfið og nauðsynlegt, að allir
leggi hönd á plóginn svo að allt
fari sem bezt úr hendi. Vil ég
hvetja skáta, hvar sem er á lanclinu,
að leggja þessu starfi allt það lið,
sem þeir mega. Það veltur á miklu,
að allt fari vel úr hendi. Það geta
verið mörg mannslíf í veði. Um-
ferðarmálin eru alltaf þýðingar-
mikil, þótt ekki sé um svo stór-
felldar breytingar að rceða, eins og
verða ncesta ár.
Sumir telja, að af umferðarhátt-
um þjóðar megi oft marka menn-
ingu hennar. Oryggið i umferðinni
er að miklu leyti háð tillitssemi
manna gagnvart öðrum. Kceruleysi
og óaðgcetni valda oft slysum, en
gcetni og hjálpsemi skapa aukið
öryggi.
En gildir ekki það sama um hið
daglega líf. Skapar ekki mildin og
hlýhugurinn vináttu og traust, en
kuldinn og kceruleysið búa ófriði
og sundrungu braut. Sá, sem er
háttvís i umferð og tillitssamur, er
venjulega drengilegur og traustur
i samstarfi, ábyrgur þjóðfélags-
þegn. Höfum þvi hugfast á lífs-
braut okkar að horfa til allra átta,
láta allar ákvarðanir okkar og við-
brögð mótast af varkárni og til-
litssemi til samferðamannsins.
144
S KATABLAÐIÐ