Sameiningin - 01.04.1910, Síða 3
35
á fermingar-7ieiíí<í, sem jafnvel er skoðað sem svardagi
eða eiðr. Handsalið er nú sumsstaðar talað um að
leggja niðr, og má vera, að betr fari á því. En af mis
skilningi er það sprottið, ef heitið verðr til lmeykslunar.
Þegar að er gáð, er lieitið ekki annað en játning, játn-
ing þess, að maðr trúi á þríeinan guð og vilji lifa eins
og g-uðs barn í heiminum til æfiloka..
Athugum spurningarnar, sem lagðar eru fyrir ung-
mennin við ferminguna.
1. spurning: „Afneitar þú af öllu hjarta djöflin-
um og öllum hans verkum og öllu hans athœfi V ‘ Það
er stundum sagt, að með þessu sé verið að láta börnin
vinna eið að því, að þau aldrei skuli aðhafast það, sem
illt er, eða syndga. Slíkt er misskilningr. Ekkert slíkt
heit eru börnin látin vinna. Enginn rétthugsandi maðr
rnyndi œskja þess. Vér vitum það af eigin reynslu, að
slíkt loforð er ekki unnt að gjöra. Að því einu eru börn
in sjrurð með þessu, hvort þau í hjarta sínu nú á þess-
arri stundu afneiti hinu illa, hvort hjarta þeirra nú rísi
öndvert gegn óguðleikanum og þeim bjóði við verkum
og vilja hins vonda. Með öðrum orðurn er að því spurt,
hvort fermingarbarnið á þessarri stund, þá það ákveðr
sig til lærisveins-lífsins, finni hjá sér hjartanlega löngun
til að standa á móti því illa og óguðlega og vilji forðast
það. Og hættulaust ætti það jafnaðariega að vera, að
börnin gjöri slíka yfirlýsing. Það er ekki mikil hætta á
hrœsni hjá börnunum. Þau eru enn ekki forliert í neinu
illu. Þau eru enn viðkvæm fyrir því, sem lireint er, gott
og guðleg't. Og það er þeirii til styrkingar í hinu góða að
játa þetta opinberlega og biðja guð að hjálpa sér að
forðast hið illa, og fá fyrirbœnir kristins saínaðar.
2. spurningin: „Trúir þú af öllu hjarta á guð föður,
son og heilagan andaf ‘ Þetta er blátt áfram trúar-
játning-, stytzta og helzta trúarjátning kristninnar, samin
af .Tesú Kristi sjálfum (Matt. 28, 19—20), skírnar-for
miila postulanna og hin eiginlega postullega trúarjátn
ing. Trúir þú á þríeinan guð þinn nú á þessarri stundu -
Hér er meir að segja ekki gjörð skuldbinding til þess að
trúa þessu ávallt, svo enda þótt það slys, það da.uðans