Sameiningin - 01.04.1910, Síða 24
56
tíu börn. Eru fimm þeirra á lífi og öll í Selkirk. Sigrbjörg var
ágætis-kona og bezta móðir, eljunar-kona mesta og ávallt til þess
búin aö vera með og hjálpa áfram hverju góðu fyrirtœki. Hún var
áhugamikil safnaðarkona, og bar kristindómsmálin fyrir brjósti sér.
Sýndi hún það fram í andlátið með því að áminna dóttur sína, sem
spilar á orgelið í kirkju safnaðarins, í því hún kvaddi hana, um að
„muna að vera dugleg að spila fyrir kirkjuna.“ í sæti sínu var hún
í kirkjunni, þegar hún var heilbrigð og henni var unnt, með sálma-
bókina sína, og söng. Beztu stundir sínar, sagði hún, væri í kirkj-
unni. Forstöðukona kvenfélags safnaðarins var hún, og vann þar
með frábærum dugnaði. Hafa því íslendingar í Selkirk misst
mikils í við fráfall Sigrbjargar. Við útför hennar var minnzt þess-
arra orða Biarna Thórarensens:
„Víst segja fáir hauðrið hrapa
húsfreyju góðrar viðr lát,
en hverju venzla-vinir tapa
vottinn má sjá á þeirra grát.“
Og eru margir þeir „venzla-vinir“ hér, er sakna Sigrbjargar heit-
innar. Guð blessi minning hennar. N. S. Th.
Lexíur fyrir sunnudagsskólann 1910 fMaí og Júníý.
Annar ársfjórðungr:
V. Sd. 1. Maí (5. e. p.J : Matt. 12, x—14 ('SabbatsmálJ.
VI. Sd. 8. Maí (6. e. p.J : Orðskv. 23. 29—35 ('Bindindislexíaj.
VII. Sd. 15. Maí ('hvítasunnudagj: 1. Kor. 12. 1—21 fVerk
andans—hvítasunnulexiaj; eða: Matt. 12, 22-32, 38-42 ('Hatr til
Jesú vaxandaj.
VIII. Sd. 22. Maí (trínitatisJ: Matt. 14, 1—12 ('Dauði Jóhann-
«sar skíraraj.
IX. Sd. 29. Maí (T. e. tr..J : Matt. 14. 13—21; 15, 29—39 ('Mett-
unar-undrinj.
X. Sd. 3. Júní (2. e. tr.J : Matt. 14. 22—36 fjesús gengr á vatn-
inuj.
XI. Sd. 12. Júní (3. e. tr.Jx Matt. 15, 21-28 JKanverska konanj.
XII. Sd. 19. Jún (4. e. tr.J: Matt. 13, 1—9 og 18—23 ('Dœmi-
sagan um sáðmanninnj.
XIII. Sd. 26. Júní J5. e. tr.J: Matt. 13, 24—30 og 36—43 (TIl-
gresið á rneðal hveitisinsj.
Hr. Elis Thorwaldson, féh. kirkjufélagsins, kvittar fyrir fjár-
upphæðum þeim, sem nú skulu tilfœrðar: — aj Safnaðagjöld: frá
Breiðuvíkrsöfn. $3, Mikleyjarsöfn. $3.75, Vestrheimssöfn. $5.20,
Lincoln-söfn. $7, 95, Árdalssöfn. $9.30, Árnessöfn (T908J $4.70, Ár-
nessöfn. (1909) $3.15. — bj í heiðingjatrúboðs-sjóð: frá bandalagi
>