Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1912, Blaðsíða 1

Sameiningin - 01.05.1912, Blaðsíða 1
anu'imngtn. Mdnaðarrit til stuffnings Jciriju og kristindómi íslendin'i/i. gefiff út af hinu ev. lút. kirkjufélagi Isl. í Vestrheimi RITSTJÓRI JÓN BJAIiNÁSON. XXVII. árg. WINNIPEG, MAÍ 1912. Nr. 3. Odauðleika-vonin. í heimspeki-ritinu gamla, sem kennt er við Job, stendr þessi spurning: „Þegar maðrinn deyr, lifnar hann þá aftr?“ — Job 14, 14. Enn í dag vildi menn allan heiminn til þess gefa, að fá svar upp-á spurning þessa. Við þann raunalega sannleik verðum vér að kann- ast, að vísindin geta enn ekki svarað þessarri spurning, sem jafn-gömul er mannkyninu. Vísindalegum rann- sóknum verðr ekki komið við. Sálfrœðingar gjöra margskonar tilraunir til að komast eftir því, hvort til sé líf eftir dauðann. Ef til vill má segja, að nokkrar bendingar hafi komið úr þeirri átt. Meira verðr þá heldr ekki sagt. Vísindalega viðrkenning hafa þær til- raunir ekki fengið. Samt sem áðr verðum vér að segja, að vér höfum náttúrlegar sannanir fyrir öðru lífi. Sannanirnar eru fyrst og fremst í oss sjálfum. Þegar eitthvað er í eðli manns, sem greinilega segir til um einhvern hlut, þá er vant að telja það nokkurn veginn órækan vitnisburð. Frá alda öðli hefir í mannlegu eðli búið meir og minna örugg von um eilíft líf. Vitanlega verðr ekki allt það veruleiki, sem maðrinn vill og vonar. En þegar; eitt- hvað lmS finnst í náttúrunni, sem kalla má allsherjar- lögmál, eða eitthvað það kemr fram í manneðlinu, sem telja má algildandi, þá getr maðr naumast efazt um

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.