Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1912, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.05.1912, Blaðsíða 11
75 Stundum revnir stórkostlega mikið á traust manna á kærleik guðs, — og væri það ekki fyrir Jesúm Krist, þann mátt trúnni til glœðingar og varðveizlu, sem frá honum kemr, myndi engin mannleg vera fá af borið. Nú einmitt hefir gjörvallr heirnr menntalandanna orðið fyrir slíkri raun útaf slysinu hörmulega, er Titanic, gufuskipið mikla, fórst á Atlanzhafi. Þó er sú raun fyrir oss flesta sem ekki neitt í samanburði við það, er guð hefir lagt á mannssálir þær, sjö hundruð að tölu eða vel það, sem komust lífs af gegnum skelfingar þeirrar nætr ixtá reginhafi. Megum vér annars tala eða hugsa um kærleik guðs í sambandi við það ógurlega slys '? Oss hrýs nálegá hugr við — eða svo getr virzt — að láta nokkuð í þá átt til vor heyra, að kærleikr hans só að einhverju leyti bundinn við annað eins skelfingar- iindr. Því það var synd manna, sem braut Titanic og varð að bana þeim sextán hundruðum karla og kvenna, sem engan áttu þess kost að forða sér. Blöðin hafa satt að mæla, er þau halda þessu fast fram. Titanic hefði ekki þurft að farast, og slvs þetta hefði aldrei átt að koma fyrir. Gufuskipið var látið liafa lang'tum of mik- inn hraða á för þess um sjóinn gegnum hætturnar, sem vitanlega vofðu yfir af ísnum á þeim stöðvum. Og hvort sem þar rak á eftir vilji almennings eða stjórn félagsins, sem skipið lieyrði til, þá var synd manna að þeirri óhœfu völd; eins það, að björgunarbátar, sem það hafði meðferðis, voru ekki fleiri en svo, að rúmað gæti aðeins nokkurn hluta fólks þess, sem með því hafði tekið sér far — og það allt eins fyrir því, þótt óhugsan- legt væri talið, að slík gufuskip gæti sokkið. Hefði þetta hvorttveggja verið öðruvísi, einsog verða kann hér eftir og vera hefði átt áðr, þá befði annað eins slys ekki þurft að verða. Með afglöpum sínum syndsamlegum voru menn að því valdir; önnur orsök engin. Og má þá spyrja: Kemst kærleikr guðs nokkursstaðar að í slíkri harmsögu af völdum svndarinnar? Og svo mikið af sárustu harmkvælum og sorg, sem enginn fær orðum að komið, bar þar að á fáeinum

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.