Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1912, Blaðsíða 24

Sameiningin - 01.05.1912, Blaðsíða 24
88 fimmtíu dollarar. — Les vel um austrlenzka siSi, sem snerta sögu þessa. Tvennskonar „sannleiksleit“: 36.-39. v. — Faríseinn bauð! honum; konan leitaði hans. Ef vér bjóðum, þá kemr hann; ef vér leitum, þá finnum vér hann. En Faríseinn bauS af "forvitni; konan leitaði i iðran, trú og kærleik. Faríseinn möglaði gegn Jesú, af þvi hann fyrirgaf iðrandi syndara. En Farísear nútíð- arinnar mögla, af því Jesús fyrirgefr ekki i$runa.rlausum synd- urum. Tvennskonar árangr: 40.—46. v. Konan hlaut fyrirgefning, Fariseinn ávítaðr, af því leitin var gjörS í sínum anda hjá hvoru. Lærdómar dœmisögunnar: 41.-42. v. Konan og Faríseinn bæði syndug. Hvorugt gat goldi'ð. Þvi betr sem vér finnum til synda vorra, því meir finnst oss um fyrirgefninguna, og því meir elskum vér. ÞaS stoðar oss ekkert aS syndga lítið, nema vér elskum mikið. Fyrirgefning, elska, friSr: 47.-50. v. Vegr hjálpræSisins: trú á Jesúm ^50. v.J, fyrirgefning frá Jesú ^47. v.J, elska til Jesú (47. v.J, friSr í Jesú (J50. v.J. Önnur lexía fyrir sama dag (23. JúníJ: Bindindis-lexía — Ef. 5, II-2X. 11. En takið ekki þátt meS þeim í hinum ávaxtarlausu verkum myrkrsins, heldr miklu fremr vandið um þau, 12. því það, sem þeir drýgja í leyndum, er jafnvel skömm um að tala; 13. en allt þetta er opinberaS af ljósinu, þegar vandaS er um þa'S, því sér- hvaS þaS, sem opinberaS er, er ljós. 14. Þessvegna segir svo: Vakna, þú sem sefr, og rís upp frá dauðum, og þá mun Kristr lýsa þér. 15. Gætið þvi nákvæmlega aS. hvernig þér framgangiS, ekki sem fávísir, heldr sem vísir; 16. kaupið hinn hentuga tíma, því dagarnir eru vondir. 17. VeriS því ekki óskynsamir, heldr skynjiS, hvaS er vilji drottins; 18. og verðið ekki drukknir af víni, þvíað í því er spilling, heldr fyllizt andanum; og hafi'S yfir hver fyrir öSrum. sálma, lofsöngva og andleg ljóS, og syngiS og leikiS drottni lof i hjarta ySar; 20. og þakkið jafnan guði og föður fyrir alla hluti í nafni drottins vors Jesú Krists, 21. og gjöriS ySr hver öSrum undirgefna í ótta Krists. Minnistexti: Vínið er spottari, sterkr drykkr glaumsamr — Orskv. 2ö, 1. AS vera meS öSrum mönnum í myrkraverkum er bannaS: 11. og 12. v. „MeS þeim“ (11. v.J, þ. e.: hinurn heiSnu og spilltu heimsbörnum. Flestir menn þrá samneyti viS aSra menn, og allir „draga dám af sínum sessunautum". AuSvitaS eigum vér ekki aS sneiSa algjörlega hjá spilltum mönnum. ASeins verSum vér aS varast aS taka nokkurn þátt í verkum þeirra,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.