Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1912, Side 28

Sameiningin - 01.05.1912, Side 28
92 a'ð borga það, sem hann tapaði, og að dœmi Drúsusar sneri Sanballat sér til ræöismannsins, sem enn hefir málið til í- hugunar. Þeir af Rómverjum, sem réttsýnni eru, telja þá, er mótmælin komu meS, ekki hafa neitt til síns máls, og allir andstœðu flokkarnir eru þar á einu máli. Hneykslið er orðið hljóSbært um borgina alla.“ „Hvað segir Símonídes?" — spurði Ben Húr. „Húsbóndi minn hlær og unir því vel, sem gjörzt hefir. Greiði Rómverjinn féð af hendi, er hann orSinn aö engu; skorist hann undan, er mannorö hans farið. Úrskurðr verðr felldr samkvæmt hyggindareglum rómversku stjórn- arinnar. Að styggja almenning Austrlanda væri slæm byrjan í viSreigninni við Parþa; aö styggja Ilderim myndi œsa íbúa eyðimerkrinnar gegn Rómverjum, en um land þeirra yrSi Maxentíus að fara með herlið sitt og búast þar til ófriðarins. Því var það, aS Símonídes baS mig segja þér, a8 þú skulir engu kvíða; Messala greiðir féð.“ Ilderim varð undireins í góðu skapi einsog hann átti að sér. „Förum nú á stað“ — mælti hann og neri hendrnar. „Símonídes sér einsog þarf fyrir því, sem hér er að gjöra. Við hljótum frægðina. Eg læt sœkja hestana." „Bíddu“ — sagði Mallúk. „Eg* skildi sendimann einn eftir úti. Viltu lofa honum að tala við þig?“ „Sem eg em lifandi maðr gleymdi eg honum.“ Mallúk vék sér burt, og á eftir honum kom sveinn nokkur, kurteis í framgöngu, með veiklulegum svip; hann kraup á kné með annan fótinn og tók til máls þýðlega; „íras, dóttir Balthasars, sem vel er kunn hinum göfuga herra Ilderim, hefir trúað mér fyrir skilaboðum til sjeiks- ins; kvað hún hann gjöra sér mikinn greiða með því að veita viðtöku heillaóskum hennar út-af sigri þeim, sem gœðingar hans fjórir hafa unnið.“ „Væn er dóttir vinar míns“— mælti Ilderim með tindr- andi augum. „Fáðu henni þennan gimstein til jarteikna um það, hvílíkr unaSr mér er að orðsendingunni frá henni.“ Um leið og hann mælti þetta dró hann hring af fingri sínum einum. „Eg skal gjöra það, sem þú segir, herra sjeik!“ — svaraði sveinninn og hélt áfram; „Dóttir Egyptans fól mér enn fremr þetta. Hún biðr hinn göfuga herra, Ilderim sjeik, að skila því til hins unga manns Ben Húrs, að faðir hennar hafi um hríð setzt aS í Iderní-höll, og aS þar skuli hún á morgun eftir fjórSu stund veita honum viStöku. Og gjöri Ilderim sjeik svo vel samfara heillaóskum hennar aS

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.