Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1912, Page 5

Sameiningin - 01.07.1912, Page 5
133 burtu frá lijartarótum kristinnar trúar. tJt-af því óheillavænlega tiltœki þeirra hafa efasemdirnar hjá íslenzkum kirkjulýð andspænis guðs orði stórum vaxið og sundrungin í andlegum efnum hjá Islendingum beggja megin liafs að sama skapi aukizt eða margfaldazt. En að slepptu þessu sérstaka andlega meini—losœði nýju guðfrœðinnar og þeim ófögnuði öllum—, sem vit- anlega hefir næsta hart eða tilfinnanlega komið niðr á kirkjufélagi voru, þá er dreifingar-aflið í þessum hópi vorum ískyggilega sterkt. Þótt vér gætum hrósað happi yfir því, sem þó engan veginn er með öllu víst, að félag- skapr vor sé nú sem stendr algjörlega ósnortinn af því sérstaka meini, er þegar var á drepið, þá er þó margt annað, er hjá oss bendir til sundrungar, margt, sem vitan- lega vill því valda, að hin kirkjulega samvinna vor öll verði torsókt, þreytandi og langtum of árangrslítil. Dreif- ingaraflið virðist á þessum síðustu árum áreiðanlega hafa magnazt í félagshópi vorum. í bœjum, að minnsta kosti þeim bœ, sem mér er kunnugast um, veitir erviðara með ári hverju að halda saman sunnudagsskóla og bandalagi, unga fólkinu, sem tilheyrir söfnuðinum, og jafnvel eldra fólkinu. Það er og eitthvað, sem dreifa vill oss, þessum fáu prestum, og fyrir þá sök vill prestunum hjá oss nú upp-á síðkastið fremr fækka en fjölga. Að því leyti, sem menn falla fyrir sundrungar-freistingunni, fœrast menn í reyndinni hver öðrum fjær. En með firring þeirri aukast. skiljanlega erviðleikarnir við starf- semina ýmislegu, sem hinn kristilegi félagskapr hefir í för með sér. Hlutverk þau, er fyrir mönnum liggja í öllum þessum kirkjulega eða kristilega félagskap, verða þó vitanlega ekki með líðandi árum minni eða færri, heldr þvert á móti samkvæmt hlutarins eðli stœrri og fleiri. Því tilfinnanlegri tvístran sú, er af firringunni leiðir. Sannarlega er því vandi fyrir kristið fólk, sem gæta vill skyldul sinnar, að lifa á þessarri tíð. Það hefir reyndar ávallt vandi verið, stórkostlega mikill vandi, en þó — meðal annars fyrir sakir dreifingar-afls sam- tíðar vorrar — þá er hugsað er um heildina, aldrei áðr jafn-mikill vandi einsog einmitt nú. Það er náttúru- lögmál syndarinnar, sem dreifingunni veldr að fornu og nýju. Og dreifingin heldr áfram og fer vaxandi allt

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.