Sameiningin - 01.07.1912, Page 13
aSar, og sé svo eftirrit þau úr þvi geymd i skjalasafni kirkjufé-
lagsins.
Auk þess, sem þegar er tekið fram um ráðstöfun á efni
„Sa-m.“ snertanda sunnudagsskólann, skal þess getiö, aö 2 þús.
eintök ,,Ljósgeisla“, myndablaðanna fyrir smábörn, skulu aöj
nýju gefin út. Lexíublöðin endrprentuBu út „,Sam.“ koma og
út meS sama verði og í seinni tíð (T5 ct. árg.ý.
Fjársöfnun til stuðnings ÞingvallasöfmÆ í N.-Dak. við
málsóknina fyrir borgaralegum dómstóli út-af kirkjueigninni
varS minni á liðnu ári en við mátti búast—eftir ályktan þings-
ins í fyrra. En svo miklu ljósi var nú varpaS yfir gang þess
máls á þessu þingi bæði af forseta og öðrum, er þar tóku þátt í
umrœSum, aS allar líkur eru til, að1 vel og drengilega verSi úr
þessu bœtt á þessu ári, enda nefnd 7 manna víösvegar um
byggðir Vestr-íslendinga falin slík fjársöfnun.
Bandalögin sameinuöu höfSu engan fund í sambandi við
þetta kirkjuþing. Nú var samþykkt að skora á stjórn þeirra aS
koma á fundi í Febrúar næsta vetr eða á öSrum tíma, er hent-
ugr virSist, svo og aS á næsta kirkjuþingi sé þeim veittr hálfr
dagr og kvöld til slíks fundarhalds. — ÞaS aS bandalagsfundr
fórst fyrir í þetta sinn bendir ekki á framför í þeirri átt kirkjm
lífs vors. Úr því þarf fvrir hvern mun að bœta.
Gagn trúmálafunda viðrkenndi kirkjuþing 'þetta, hvatti þar
til áframhald-s og réS sterklega til, aS nokkrir rnenn væri fyrir-
frarn fengnir fyrir hvern fund, sem byggi sig vel undir aS rœða
þar um ákveSin efni.
Tveir af prestunum, sem að undanförnu hafa veriS riSnir
viS The Moral and Social Reform Council of Man., vildu, að
sendir væri úr hópi vorum tíu kjörnir erindrekar á þing þess fé-
lagskapar. ÞaS varð fyrir talsverSri mótspyrnu, bæði af því
félagskapr þessi væri þingmönnum ekki nœgilega kunnr, en
einkum af því, aS mál þau, sem þar er unniS aS, þótt yfirleitt
rnyndi í rétta átt, lægi fyrir utan fastákveðiS starfsvið kirkju-
félagsins. Engu aS síðr samþykkti þó, þingiS,, aS 3 menn úr hópi
vorum skyldi kosnir í stað þeirra 10, sem fyrst var óskaö eftir.
Samkvæmt bending féhiröis var ný ráS’stöfun gjörð til þess
aö tryggja fjárhag kirkjufélagsins framvegis. Tillagan upp-
haflega í þá átt, að kosin væri f jármálanefnd, sem faliö væri aS
safna fé eftir þörfum; en þessu var breytt á þann veg, aS hlut-
verk þaS skyldi falið einum manni, hr. Jóni J. Bíldfell, og í for-
föllum hans þriggja manna nefnd. Hann hefir góðfúslega
tekiS kosning þessarri. Þrátt fyrir þessa mikilsverðu' ráðstöfun