Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1912, Page 10

Sameiningin - 01.07.1912, Page 10
138 hins fjórða—séra Rúnólfs Marteinssonar—hafði og auövitað ekki verið prestskaprinn, heldr íslenzku-kennslan og önnur kennsla við Wesley College í Winnipeg. Hinn sjötti—séra Sig- urðr S. Christopherson—hefir ekki heldr nema á parti á liðnu ári starfað fyrir kirkjufélagið—sem trúboði hjá íslendingum, er búa á dreifing við) Manitoba-vatn norðanvert. Hér viðí er þvi að bœta, að séra Runólfr Fjeldsteð liefir fastákveðið að leita sér aukinnar menntunar næsta vetr við háí- skóla einn suðr og austr í Bandaríkjum, og getr þvi ekki fyrst um sinn neina þjónustu veitt kirkjufélagi voru lengr en til hausts. Og séra Hjörtr J. Leó, M. A., hefir einnig fast-ráðið að fullkomna menntan sína enn meir og vera burt frá kirkju- legu starfi meðal Islendinga um hríð, þó ekki fyrr en eftir næsta kirkjuþing. Horfurnar að því er snertir starfsmenn í hópi vorum nú sem stendr og í næstu framtíð eru því engan veginn árennilegar, einkum þarsem enginn vestr-islenzkr náms- maðr er nú, svo kunnugt sé, á leiði með að búa sig undir prests- embætti. Séra Guttormr Guttormsson hefir síðan i haust og fram að kirkjuþingi þessu unnið að.trúboði kristilegu í nafni félags vors vestr á Kyrrahafsströnd á ýmsum stöðum, þarsem Islendingar nafa aðsetr, aðallega í Vancouver og Victoria fí CanadaJ, og í Blaine og á Point Roberts fí BandarikjumJ. Og þótt ekki sé á svæði þvi enn myndaðr neinn nýr söfnuðr, er þó af fyrirtœki þessu mikils góðs að vænta. Séra G. G. tekr nú við föstu prests- embætti i Þimgvalla-nýlendu og Vatnsdalsbyggð, en séra Hjörtr fer í hans. stað vestr. Séra Garl J. Ólson, einn af prestunum, sem verið hafa i þjón- ustu beimatrúboðsnefndarinnar, starfaði fyrst vestr í Sask., en seinna—síðan í haust—að Gimli og Lundar, Man., og þar í ná- grenni. Nú hafa söfnuðirnir á þeim svæðum upp-úr því starfi hans beinlínis ráðið hann sjálfir til sín, og hann, fyrst um sinn að minnsta kosti, bundizt þeim. Samkvæmt skýrslu féhirðis var hagr sjóða þeirra, sem hann annast, á þessa leið: í kirkjufélagssjóði: $274.90. — Heimatrúboðs-sjóðr: tekjur á árinu $1,251.10. Skuld frá fyrra ári $1,516.53. Útgjöld $1,839.80. Rentur af pen.lánum $120. Skuld við féh. $2,225.23.—Júbíl-sjóðr fnú orðinnj: $4,786.00'. —Heiðingjatrúboðs-sjióðr $2,366.01. Þingið ályktaði nú að láta heimatrúboðssjóð og júbíl-sjóð renna saman í eitt—og nefnist svo sjóðr sá heimatrúboðssjóðr,

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.