Sameiningin - 01.07.1912, Side 12
140
skrifara og féhirði, skuli heimilt, ef þeirn svo sýnist, á kostnað
skólasjóðs, aðl gjöra næsta vetr einhverja verklega byrjan ís-
lenzks skóla, aðallega til þess að veita tilsögn í guðs orði vænt-
anlegum sunnudagsskóla-kennurum og öðrum þeinskonar Bible
Institute), og enn fremr nokkra íslenzku-kennslu. Þetta er ný
hugmynd í skólamáli voru, og vel framkvæmanleg, ef áhuga eða
vilja ekki brestr.
Af hálfu Únítara íslenzkra var þess leitað i fyrra, að kirkju-
félag vort hefði með þeim og öðrum félögum Vestr-lslendinga
samtök um að koma upp hœli fyrir gavnalmenni. Nefnd, sem
sett var af síðasta þingi í því máli, skýrð'i frá, að slík samvinna
gæti ekki tekizt. Hinsvegar er hugsan kvenfélags Fyrsta lút.
safn. í W.peg um stofnun gamalmenna-hælis nú einmitt á góðri
leið með að verða að framkvæmd. Frá því var skýrt í Maí-
blaðinu fbls. 8oý. Með fyrirkomulagi þeirrar stofnunar, sem á-
formað er, virðist liklegt, að það hæli, ef það á annað borð
kemst upp. fullnœgi þörfum landa vorra, hvort sem þeir heyra
kirkjufélaginu til eða ekki.
Að því er snertir málgagn kirkjufélagsins, „Sameininguna“,
þá var sömu mönnum sem að undanförnu falin ráðsmennska
blaðsins og ritstjórn. Fjárhagr blaðsins er í góðu lagi; en hvað
peningalega befst upp-úr útgáfu skáldsögunnar Ben Húr á ísl.,
er enn óvist. Eftir að sagan á næsta vetri hættir að koma út
í iblaðinu er ætlazt til, að þar verði deild sérstök með lesmáli
fyrir börn og unglinga; einnig meira en áðr ritað sunnudags-
skólum til leiðbeiningar.
Gjörðabók kirkjuþings þessa kemr út í sérstökum bceklingi
einsog í fyrra.
Samkvæmt bending forseta ákvað þingið, að myndaðr sé
kirkjubyggingar-sjóðr, sanra sem. á ensku nefnist church exten-
sion fund, Úr 'þeim sjóð sé rentulaust, gegn. ábyrgð einstakra
rnanna, meðf samþykki forseta lánað fátœkum söfnuðum fé til
þess að koma u.pp nýjum kirkjum, en ekki til neins annars. Lán
það sé endrborgað á tíu árum eða fyrr. Þingið kaus sérstakan
fulltrúa, er það fól fjársöfnun í sjióð þennan, féhirði hr. Jón J.
Vopna.
Grundvallarlaga-breytingarnar frá því i fyrra, aðallega
snertandi úrgöngu safnaðar úr kirkjufélaginu, voru samþykktar
í einu hljóði.—f því sambandi einnig samþykkt, að allir söfn-
uðir kirkjufélagsins sendi skrifara fyrir næsta nýár eftirrit af
grundvallarlcgum sínum, staðfest af forseta og skrifara safn-