Sameiningin - 01.07.1912, Síða 8
136
einatt heyrzt halda því fram, að annað ætti ekki við en
að þeir á því svæði héldi sér steinþegjandi.
Maðr einn stórmerkr í sögu guðs ríkis, sem hálfa
öld starfaði að kristniboði í Kína,*) hefir minnt á þessi
orð eftir Konfúsíus, heiðindóms-spekinginn mesta í
þeirri heimsátt: „Ber lotning fyrir guðunum, en halt
þeim. í f jarlægð.‘ ‘ Með ummælum þessum er ljósi varp-
að yfir trúarlegan eða vantrúarlegan hugsunarhátt
heiðins fólks í öllum áttum og á öllum öldum. 0g þarna
einmitt blasir við einn aðal-greinarmunr kristinnar trú-
ar og heiðnu trúarbragðanna allra.
Sem næst guði — er viðkvæði kristindómsms. Sem
lengst burtu frá guði viðkvæðið í hinni áttinni — svo
framarlega sem upphátt er talað þar—, svo langt burt,
að guð hverfr mörgum algjörlega. tJr þeirri firrð og
úr allri fjarlægð kallar guð á mennina í heilaga og
blessaða návist sína. Svo nálægt guði, frelsaranum, að
hann blátt áfram segir: „Verið í mér.“ Það er eitt
allra dýrmætasta huggunarorð drottins Jesú í erindi því
hinu ógleymanlega, sem hann flutti lærisveinum sínum
að skilnaði áðr en hann gekk út-í friðþægingarpíslirnar
og dauðann á krossinum. Upp-á samlíf með guði fyrir
Jesúm Krist er oss öllum boðið. Til þess erum vér
hver um sig og allir sameiginlega í hans nafni kallaðir.
Svo nálægir drottni einsog hann sjálfr bendir til með
líkingarmálinu um vínviðinn og greinarnar. Svo ná-
lægir honum einsog Páil postuli boðar með líkingarmáli
því, sem hann viðhefir svo oft, um líkamann og limina
á líkamanum. Svo nálægir hjarta guðs einsog Jesús
sjálfr með allra mestri áherzlu kennir með kvöldmál-
tíðar-sakramentinu. Hann lætr helgidóm þann verða
til, þá er fast er að því komið, að hann fórni sjálfum
sér í píslarsögunni einu, miklu, óviðjafnanlegu. Hann
fyrirskipar það sakrament þá einmitt, er kærleiks-dýrð
guðs er að birtast í mestu fylling sinni í persónu sonar-
ins á ferli friðþægingar-kvalanna. Skilnaðarstundin
komin. Ástvinir hans liinir útvöldu að verða slitnir frá
*) Dr. Griffith John, fœddr í Swansea í Wales 1831; starf-
aði í Kína frá 1855 til 1906 í þjónustu Lnndúna-kristniboSsfé-
lagsins. Æfisögu hans hefir R. W. Thompson ritaS fNew York
1908J, og þar stendr þetta.