Sameiningin - 01.07.1912, Síða 9
i37
lionum eða hann frá þeim. Og þeir svo sem að sjálf-
sögðu að tvístrast. Þá bindr hann þá fast við sjálfan
sig, og hvern einstakan þeirra við annan, með hinni
blessuðu sakramentis-gjöf. Grefr þeim sjálfan sig að
fœðu og drykk — og öllum sínum framvegis hér í stríð-
inu og hættunum á jörðmni allt til heimsloka. Að þeirri
gjöf þeginni reynist það ávallt svo, að það, sem sundra
vill kristnum mönnum og gjöra samvinnu þeirra ómögu-
lega, hverfr blessunarlega og eyðist. Og þeir geta von-
glaðir og sigrihrósandi gengið út-í lífsbaráttuna.
Göngum þá, brœðr! biðjandi með þessum hugsun-
um til altaris nú í byrjan þessa kirkjuþings, þess full-
vísir, að ef vér í sannleik þiggjum gjöfina, sem hann
réttir að hverjum einstökum við kvöldmáltíðar-borðið,
getum vér fyrir náð hans orðið eitt og þannig samein-
aðir unnið það verk, sem skvldan heilög lieimtar af oss
fyrir málefni guðs ríkis í Jesú nafni.
o-
Ársþing kirkjufélags vors hins íslenzka lúterska var haldið
í kirkju vestr-safnaSarins í Argyle-byggS, Man., fFrelsissafnaS-
arj, frá 20. til 25. Júni. íÞJað er 28. þingið í sögu þess félag-
skapar.
ÞingiS hófst með opinberri guðsþjónustu, og prédikaði
ritst. ,,Sam.“ (J. Bj.J við það tœkifceri á undan altarisgöngu
þingmanna og annarra. Þingsetningar-prédikanin birtist í
þessu blaði.
Söfnuðir kirkjufélagsins töldust í þingbyrjan 39, en þingið
ákvað, að einn þeirra, þann er kenndr befir verið við Foam
Lake, Sask., skyldi ekki lengr telja, því hann væri nú með öllu
úr sögunni. Áðr en þessu þingi var slitið fékk forseti skeyti
um, að Pétrs-söfnuðr í N.-Dak. hefði á nýhöldnum fundi sam-
þykkt að ganga úr kirkjufélaginu. ÍTrsögn sú að svo stöddu
ekki viðrkennd, því málið var auðvitað órannsakað.
Prestar kirkjufélagsins teljast 15. En einn 'þeirra — séra
Hans B. Thorgrímsen — var um þessar mundir að hverfa af
starfsviðinu íslenzka — til Norðmanna — og sókti ekki þingið.
Annar—séra Pétr Hjálmsson—ihefir enga fasta prestsþjónustu
haft á hendi. Hinn þriðji—séra Runólfr Fjeldsteð'-upp-á síð-
kastið aðeins að litlu leyti við kennimannlegt starf. Aðal-verk