Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1912, Síða 26

Sameiningin - 01.07.1912, Síða 26
154 í voru skreyttir herfánum, en til allrar óhamingju voru þar meS líkneski af keisara, ásamt hinurn rómversku arnar- merkjum og kúlum. í geðœsingi mesta skundaði þá heill' hópr Gyðinga til Sesareu, þarsem Fílatus tafði, og sárbœndu þeir hann að taka burt myndir þessar, sem þeim stóð svo megn stuggr af. 1 samfleytta fimm sólarhringa umkringdu þeir hliðin að landstjórahöllinni. Loks kvað hann á sam- talsfund með þeim í'Circus. En er þeir höfðu safnazt þangað, lét hann hermenn slá um þá hring. í stað þess að veita mótstöðu lögðu þeir sig fram til Iífláts og báru með því sigr úr býtum. Ha.nn gaf þá út þá skipan, að . flytja skyldi myndirnar og herfánana til Sesareu, þarsem Gratus, er meir tók tillit til þess,. hvernig á stóð, hafði geymt merki þessi, sem hinum gy'ðinglegu þegnum hans voru svo hneykslanleg, öll þau ellefu ár, sem hann sat að völdum. Menn, sem í rauninni eru allra mestu óþokkar, gjöra stundum góðverk allra snöggvast í bili svo sem að tilbreyt- ing frá vanalegri varmennsku. Svo var um Pílatus. Hann lét það boð út ganga, að rannsókn skyldi höfð á öll- um fangelsum í Júdeu, og heimtaði hann þá um Ieið, að grafin væri upp nöfn allra þeirra, sem þar voru í varð- haldi, og skýrslur útvegaðar um það, fyrir hverjar sakir fangarnir hefði dœmdir verið til hegningar þeirrar, sem á þá var lögð. Það var vafalaust fyrir honum einsog svo mörgum öðrum, sem nýkomnir voru til embætta: — hann var hræddr um, að sér myndi verða kennt um, ef slíkir menn hefði orðið fyrir ranglæti. En almenningr sá, að annað eins fyrirtœki og þetta gat orðið til góðs, var honum þakklátr og lét um hríð huggast í raunum sínum. Það, sem opinberaðist við rannsóknir fangelsanna, var furðu- legt. Hundruðum saman var mönnum sleppt, sem hnepptir höfðu verið í varðhald án allra saka. Margir aðrir komu í ljós, sem fyrir löngu voru haldnir dauðir. En allra mesta undran vakti það, að sumar dýflizur voru nú opn- aðar, sem þeirrar tíðar fólki var að vísu ekki með öllu ó- kunnugt um að til væri, en í raun og veru höfðu þær fallið í gleymsku fyrir stjórnarþjónum þeim, er umsjón áttu að hafa með fangelsum landsins. Um eitt slíkt atvik er nú fyrir oss að rœða. Og þótt undarlegt sé, kom það fyrir í Jerúsalem, höfuðborginni sjálfri. Antoníu-turn, sem einsog kunnugt er tók yfir tv;o þriðjunga hins helga svæðis á Móría-fjalli, var upphaflega kastali, sem Makedónar höfðu reist. Seinna-meir gjörði Jóhannes Hyrkanus kastalann að hervirki Musterinu * til varnar. Og á hans dögum var vígi það talið óvinn- ®

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.