Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1912, Side 13

Sameiningin - 01.11.1912, Side 13
2 77 það aðallega fyrir framgöngu séra Steingríms, sem á sæti í skólastjórninni. Samkvæmt skólalögiun Manitoba og Saskatcliewan eiga menn víst lieimting á að fá í alþýðu- skólnnum kennd útlendu tungumálin, þegar viss tala læri- sveina lievrir til þjóðflokkum, er þau tala, og er Islend- ingum þarmeð í sjálfsvald sett að fá íslenzku kennda í skólunnm (lýðskólunum), og gegnir furðu, að þeir ekki liafa meir notað sér þau hlunnindi en raun hefir á orðið. Eftir einkar ánœgjulega dvöl hjá söfnuðinum og prestslijónunum í Selkirk fór eg til Winnipeg og þaðan til Árborgar í norðanverðu Nýja Islandi til að heimsœkja söfnuðina í nyrðra prestakallinu þar. Því tilheyra: Ár- dals-s., Geysis-s., Brœðra-s., Breiðuvíkr-s. og Mikleyjar-s. Þar er prestr séra Jóhann Bjarnason. Býr hann í þorp- inu Árborg á mjög’ ánœgjulegu prestssetri, sem söfnuðirn- ir leggja honum til. Nú kom eg í fyrsta sinn á heimili séra Jólianns og konu hans, og var mér unaðr þar að vera. Á guðsþjónustu-samkomum var eg í Árborg og í Geysis- byggð 6. Okt., og aftr á samtalsfundi með fólki úr þeim söfnuðum í Árborg næsta dag. Samkomurnar voru mæta vel sóktar. Það þótti mér sérstaklega eftirtektarvert, hve mikill og' almennr sáfnaðarsöngr var í kirkjunni í Árborg. Það gæti verið stœrri söfnuðum sumum til eftirdœmis. Hluttaka manna í umrœðum um kirkjuleg mál var og mik- il og lýsti góðum áliuga. Ekki gat eg í þetta sinn komið í hina söfnuðina í Nýja fslandi, enda talaðist svo til milli okkar séra Jóhanns, að eg kœmi heldr aftr, þegar kirkjurnar í Brœðra-söfnuði og Breiðuvíkr-söfnuði verða búnar til vígslu. — Safnaða-mál í norðrliluta Nýja fslands eru á góðri framfara-leið, og ef nú fengist góðr prestr í suðrpartinn, væri Nýja fslandi borgið. Næst lá leið mín frá Winnipeg norðr og’ vestr í byggð- irnar við Manitoba-vatn og Grunnavatn. 1 Álftavatns- nýlendu (austan Manitoba-vatns) og í Grunnavatns- byggð liafði eg einu sinni áðr komið. Það var fyrir nítj- án árum, er eg var ný-orðinn prestr, og var eg fyrsti prestr, sem þangað kom. Nú var hœgra þangað að kom- ast en þá var, því nú liggr járnbraut inn-í nýlenduna. 1

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.