Litli Bergþór - 22.07.1987, Side 25

Litli Bergþór - 22.07.1987, Side 25
24 sem ég átti aö greióa fynr október mánaóarlok fyrir hesta sem ég keypti voriö áöur fyrir noröan. Þaö þótti æði óvarlegt aö vera meö þá i ólæstu svo Stefanía frænka saumaði brjóst- vasa innan á milliskyrtuna og þar geymdust þeir vel. Ég man nú ekki mánaðardaginn sem Esjan lagöi af staö úr Reykjavík, en þaó mun hafa verió um miðjan október. Esjan var í 12 daga noróur á Sauöár- krók. Þaö var nú meiri sjóferöin, alltaf vitlaust veöur og stórsjór. Ég hélt hreinlega aö margt af fólkinu dræpist, svo voru hljóðin og veinin í þvi og gubbað meóan eitthvaó var til aö gubba. Ég hreyfói mig litiö úr koju, nema þegar ég þurfti aö fara á klósett og þá saup ég vel á brenni- vinsflösku sem ég hafói undir kodd- anum og leiö aldrei mikiö af sjó- veiki, en ég leió fyrir aö horfa upp á fólkið kveljast eins og þaö gerói. Nú var ég kominn til Sauðárkróks og þar var kominn sendimaóur frá Páli skólastjóra aö sækja mig og dót mitt. Mér var nú um og ó aö fara aö setjast á skólabekk, þar sem ég var búinn aó tapa mánaðar kennslu af skólatimanum en Páll stappaói i mig stálinu aó hætta ekki vió skólann og viö þaö sat. Var ég þvi skráöur i skólann þá i eldn deild. Þaö beiö min pláss i tveggja manna herbergi og félagi minn var eins og fyrr Jakob Einarsson, þá vinnumaöur i Valadal. Þetta herbergi var i kvisti á efri hæö og þessi visa fylgdi herberginu. Herbergið hét Grána, þá kemur visan: Þótt hún Grána þyki góö þessu mátt þú trúa komdu þar aldrei kæra fljóö þvi kvennamenn þar búa. Hólaskóli. Herbergió Grána er efst i kvistinum hægra megin. Ekki er ég nú alveg viss um aö stúlkurnar tækju þessa aövörun allt- af til greina. Þessi vetur leiö stórtiöindalaus, þaó var haldió mikiö þorrablót og mikill undirbúningur fy^-fi: þaö, haldinn var alfadans a isilagöri tjörn undir Hólabyröu. Þaö var fengin saumakona til aó sauma á okkur búninga, sem voru einskonar litklæói og kóngur og drottning meó kórónur á höfói. í dansinum voru 13 danspör, min dama var Unnur Pálsdóttir, dóttir þeirra skólastjórahjóna. Svo voru 4 púkar, þeir voru ekki frýnilegir. Þaó var saumaður á þá búningur úr strigapokum. Þeir komu öskrandi og gargandi ofan úr Hólabyröu. Fólkiö trylltist og réöist á þá, og lög- regla sem skipuö var kom þeim til hjálpar. Þaö var búiö aö koma hengingaról á einn og var hann dreg- inn eftir svellinu, en fólkiö stillt- ist og allt fór vel fram. Ég hef sjaldan verió eins þreyttur og þessa nótt. Þetta var afar stórbrotin samkoma og þurfti mikinn undirbúning. Okkur var skipaö i nefndir til aó sjá um ýmis skemmti- atriói. Viö vorum nokkrir strákar látnir sýna leikfimi og iþróttir undir stjórn leikfimikennara. Þarna voru seldar veitingar alla nóttina og urðum vió strákarnir aö sjá um þaó, þvi var nú skipt á okkur, svo við gætum skroppið i dansinn. Þaö var óskap- legur fjöldi fólks úr Skagafirói, Húnavatnssýslu, Eyjafirói og eitt- hvaó úr Þingeyjarsýslu. Þetta kom á skiðum yfir Heljardalsheiói og margt kom á hestum úr Skagafirói og Húnavatnssýslu og einnig á hesta- sleöum. Þetta var eftirminnilega skemmti- leg nótt og stóö samkoman fram á dag og fór aö öllu leyti vel fram. Nú var framundan sýslufundur_sem var venjulega stórhátiö sýslubúa, og oftast fengu Hólasveinar,þangaö aó fara og svo var nú, en þá skeði.þaó að þrir félagar minir veikjast i höstugri lungnabólgu og voru þeir fluttir i eina herbergió sem var upp- hitaö meö kolaofni og var nefnt "Spitalinn". Svo kemur Páll skóla- stjóri aö máli viö mig hvort aö ég myndi ekki gera þaó fyrir sig aö gæta þeirra og vaka yfir þeim meö hjúkrunarkonu sem var fengin. Þessu gat ég ekki neitað en súrt i broti þótti mér aö veröa af sýslufundinum. Ég vakti i viku á nóttunni meó hjúkrunarkonunni en svo fóru þeir aö hressast og náöu sér furóanlega fljótt, svo þetta fór mjög vel.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.