Litli Bergþór - 01.05.1994, Side 5
Hvað segirðu til?
Hér verða tíunduð helstu tíðindi úr sveitinni á
útmánuðum og fram í byrjun maí. Veðurfarið hefur
verið fremur gott, nokkuð rysjótt lengi vel, stutt
bylgusa á páskadag, fremur kalt fram í maí en þá fór
hægt hlýnandi. Vatn var orðið mjög lítið í jökulánum
síðast í apríl.
Samkvæmt þjóðtrúnni á mjólkin úr ánum að vera
feit, þar sem sumar og vetur harðfrusu saman.
Gefur það vonir um að lömb verði væn í haust.
Heilsufar hefur verið gott, en þó gengið
hlaupabóla. Ýmsir menningarviðburðir hafa verið
hér, svo sem leiksýnig Ungmennafélags Gnúpverja,
en leikflokkur þess sýndi gamanleikinn Blúndur og
blásýra snemma í mars. Karlakór Selfoss söng í
Aratungu og kóra Fjölbrautaskóla Suðurlands og
Menntaskólans að Laugarvatni í Skálholtskirkju.
Báðir þessir tónleikar voru allvel sóttir.
Erkibiskupinn af Kantaraborg kom í heimsókn í
Skálholt í sumarbyrjun.
Jónas Gíslason, vígslubiskup í Skálholti, hefur sagt
starfi sínu lausu og kosning í það embætti hefur farið
fram meðal presta í Skálholtsbiskupsdæmi og
nokkurra starfsmanna Þjóðkirkjunnar. Þeir þrír
prestar sem hlutu flest atkvæði voru; Sigurður
Sigurðarson, sóknarprestur á Selfossi, 49,
Guðmundur Þorsteinsson, sóknarprestur í Árbæjar-
sókn í Reykjavík, 38, og Karl Sigurbjörnsson,
sóknarprestur í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík, 29
atkvæði. Aðrir munu hafa fengið samtals 13
atkvæði. Þar sem enginn fékk meirihluta atkvæða
verður að kjósa aftur milli þessara þriggja. Val á
vígslubiskupi getur snert Tungnamenn töluvert, þar
sem ráð mun vera gert fyrir að hann verði
sóknarprestur í Skálholtsprestakalli jafnframt
vígslubiskupsstarfi, þegar núverandi sóknarprestur
lætur að störfum.
Farfuglar fóru að koma í mars, og munu álftin og
þrösturinn hafa verið fyrst á ferðinni. Sumir leggja
eyru við fyrsta hneggi hrossagauksins til að láta
hann spá fyrir sér. Ekki er ólíklegt að margir ógiftir
en vonandi enginn giftur hafi heyrt fyrst til hans í
útsuðri, en forspáin er svona:
/ nónstaö ef aö gaukurinn gólar
giftist sá sem einsamall rólar.
Þeir giftu munu missa sinn maka
og mæðu fyrir gleðina taka.
Hins vegar mun gott fyrir alla að heyra fyrst í
honum í suðri.
/ suörinu ef söngfuglinn ieikur
í sællífinu verðurðu keikur.
Fullur munt þú feitur út ganga,
fjarlægist þér hallærið stranga.
Glerskáli í gistiheimili við Geysi.
Atli Þór tilbúinn að taka á móti gestum.
í marslok og í byrjun apríl var flutt í kaupleigu-
íbúðirnar 4 í tveim nýbyggðum húsum við Kistuholt í
Reykholtshverfi.
Nokkuð hefur ræst úr með verkefni hjá Yleiningu
og verið unnið þar á tveimur vöktum upp á
síðkastið.
Að Haukadal III hefur verið opnað gistiheimili.
Það er í húsi, sem upphaflega var gróðurhús, og
eru þar 11 herbergi, snyrtiaðstaða, sérstakt salerni
fyrir fólk í hjólastólum, eldunaraðastaða og um 250
fermetra glerskáli.
í Úthlíð er stöðugt verið að bæta og auka við
aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum, og í vetur
hafa verið byggðir þar 2 sumarbústaðir til útleigu.
Nýr rektorsbústaður hefur verið tekin í notkun í
Skálholti, og var fólki boðið að skoða hann þegar
hann var fullgerður í byrjun maí.
Dálítið var um sinubruna undir lok apríl. Þeir
munu nær allir hafa verið tendraðir af forsjálni og
væntanlega samkvæmt tilskildu leyfi sýslumanns.
Ekki ógnuðu þeir mannvirkjum verulega, en fyrir
kom þó að slökkvilið var fengið til að hefta
útbreiðslu elds, enda var jörð orðin mjög þurr undir
lok apríl.
Á vegum Biskupstungnahrepps hefur verið gefinn
út nýr þjónustubæklingur, Þjónusta í
Biskupstungum. í honum er kort af Biskupstungum,
ýmsar gagnlegar upplýsingar og rúmlega 30 aðilar
auglýsa þar þjónustu sína.
Út er komin 4. prentun af ferðaþjónustubæklingi
fyrir uppsveitir Árnessýslu. Hann er gefin út af
uppsveitahreppunum 5 frá Þjórsá að Sogi. Hann
geymir kort af þessum sveitum og sérkort yfir 9
þéttbýlisstaði. Stuttur pistill er um hverja sveit og
greint frá ferðaþjónustu í hverri þeirra.
A. K.
Litli - Bergþór 5