Litli Bergþór - 01.12.1997, Síða 7
Hreppsnefndarfréttir
Bréf Skipulags ríkisins dags. 13. júlí 1997.
Skipulagið óskar eftir nánari upplýsingum um lagningu
vegaslóða yfir Skálpanes sem hreppsnefnd hafði sent
þeim til umsagnar. Oddvita falið að skýra málið nánar.
Bréf Umhverfisráðuneytis dags. 16. júlí 1997.
Ráðuneytið fer fram á að hreppsnefnd skipi einn mann í
nefnd sem ætlað er að gera tillögur um friðun og vemdun
Geysis og Geysissvæðisins. Hreppsráð leggur til að Gísli
Einarsson verði fulltrúi sveitarstjómar.
Fundargerð leikskólanefndar dags. 15. júlí 1997
og kynningarfundar með foreldrum dags. 21. júlí 1997.
Þar kemur fram gjaldskrárhækkun sem skiptist þannig:
5 dagar heilir kr. 20.000,-
5 dagar frá 9-12 kr. 7.300,-
5 dagar frá 9-13 kr. 12.000,-
5dagarfrá 13-17 kr. 9.700,-.
Inni í tölunum er matur kr. 3.200,- kaffi kr. 1.500,-
og morgunmatur kr. 650,- þar sem við á.
Auglýsing leikskólans dags. 5. ágúst 1997. Þar
býður leikskólinn upp á þriggja daga vistun frá mánudegi
til miðvikudags og síðan fimm daga vistun samkv.
fundargerð dags. 15. júli 1997. Hreppsráð samþykkir
breytinguna.
Undirskriftarlistar foreldra leikskólabarna
móttekið 6. ágúst 1997. 37 undirskriftir bárust og er þar
skorað á sveitarstjóm að hafa sveigjanlegan vistunartíma
eins og verið hefur. Hreppsráð vísar í bókun 16, þar sem
leikskólanefnd býður upp á þriggja daga vistun og telur
að þar sé komið vel til móts við óskir foreldra.
Skipulagsmál í Laugarási. Tillaga Péturs H.
Jónssonar að deiliskipulagi í Laugarási að nýju
íbúðarhúsahverfi fyrir ofan land Teigs. Hreppsráð mælir
með að skipulagið verði staðfest. Einnig samþykkir
hreppsráð að leigja Gunnari og Ragnheiði á Birkiflöt lóð
nr. 13 ef nýja skipulagið verður samþykkt.
Breyting á deiliskipulagi úr landi Kjóastaða 2 frá
1993. Breytingin felst í að um 10.000 m2 íbúðarhúsalóð
ásamt útihúsi er bætt við austan sumarbústaðahverfísins.
Hreppsráð staðfestir skipulagið.
100 ára árstíð Sigurðar Greipssonar verður
haldinn á Hótel Geysi 22. ágúst n.k. Gefið hefur verið út
minningarrit um Sigurð og Haukadalsskólann af því
tilefni, ritstýrt af Páli Lýðssyni. í tilefni dagsins vill
hreppsráð minnast Sigurðar og hans verka með því að
beita sér fyrir Geysisgosi þann dag.
Bréf Landmótunar hf. dags. 6. ágúst 1997.
Fyrirtækið býðst til að taka að sér vinnu við
svæðisskipulag fyrir hreppinn að hluta eða öllu leyti og
nýta þar með þá þekkingu og upplýsingar sem fyrirtækið
hefur á þessum málum. Oddvita falið að ræða við
skipulagsstjóra um málið.
Hreppsráðsfundur 4. sept. 1997.
Aðalskipulag Biskupstungnahrepps. Tilboð í
aðalskipulagið frá Landmótun ehf. undirritað af Einari E.
Sæmundssen, landslagsarkitekt. Þar er heildarkostnaður
lauslega áætlaður fyrir utan ljósritun gagna og
útgáfukostnað. Þá mættu á fundinn Pétur H. Jónsson og
Haraldur Sigurðsson með tillögu að tíma og
kostnaðaráætlun. Reiknað er með að skipulagið sé
tilbúið til kynningar sumarið 1998. Hreppsráð leggur til
að tillaga Péturs og Haraldar verði send Skipulagi
nkisins og farið fram á 50% hlutdeild Skipulagsins í því.
Umsókn Péturs Skarphéðinssonar og Gylfa
Haraldssonar að lóðum í Laugarási. Pétur H. Jónsson
mælti með tillögu að lóðum fyrir þá á fyrirhuguðu
sumarhúsasvæði fyrir ofan garðyrkjustöðina Engi.
Samþykkt að gefa þeim kost á tveimur 10.000 fm. lóðum
samkvæmt tillögum og Pétri falið að ræða nánar við þá.
Lóð vegna spennustöðvar Rarik í Laugarási. Fyrir
lá beiðni Rarik að færa fyrirhugaða lóð austur fyrir
Höfðaveg í átt að Auðsholtshamri þar sem grunnur yrði
betri fyrir húsið. Pétur hefur gengið frá lóðablaði sem var
samþykkt.
Kaupsamningurinn vega Teigs í Laugarási dags.
4/9 1997. Seljandi Ágúst Eiríksson og Ingveldur
Valdimarsdóttir. Kaupendur Sebastian Beeker og
Ingibjörg G. Einarsdóttir. Kaupverð kr. 11.000.000,-
Hreppsráð leggur til að fallið verði frá forkaupsrétti.
Hreppsnefndarfundur 16. sept. 1997.
Samþ. að útvega opna gáma fyrir lífrænan úrgang í
nágrenni garðyrkjubýla í samvinnu við Sorpstöð
Suðurlands. Sorpgryfjunni í Laugarási verði lokað,
jafnframt verði boðað til kynningarfundar um meðferð
sorpsins.
Vegna nýs deiliskipulags í Laugarási og
Reykholti: Þeim sem stunda starfsemi sem ekki
samrýmist deiliskipulagi, verði gert að sækja um breytta
landnotkun.
Deiliskipulag fyrir Kjóastaði 2 hefur verið auglýst
og engar athugasemdir borist. Samþ. að óska eftir
staðfestingu skipulagsstjóra ríkisins.
Bréf U.M.F. Biskupstungna ásamt
undirskriftarlista. Fagnað er ákvörðun um byggingu
íþróttahúss. Undirritað af 18 félagsmönnum U.M.F.B.
Hreppsráðsfundur 10. október 1997.
Aðalfundarboð S.B.S. fyrir árið 1996 dags. 3.
október. Aðalfundurinn verður haldinn á Selfossi 14.
október kl. 17. Samþykkt að Ásborg verði fulltrúi og þá
jafnvel fyrir stærra svæði.
Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga dags. 2. október.
Kynntur auglýsingasamningur við Morgunblaðið sem
gildir fyrir sveitarfélög og stofnanir þeirra sem eru alfarið
í þeirra eign. Samþykkt að Biskupstungnahreppur verði
aðili að samningnum.
Bréf Fjármálaráðuneytisins dags. 24. sept. Kynnt
lög um uppgjör á vangoldnum söluskatti, launaskatti,
tekjuskatti og eignaskatti þar sem fram kemur að
ráðuneytið óskar eftir samþykki sveitarfélaga á að fá að
skuldbreyta vangoldnu útsvari og aðstöðugjaldi vegna
áranna sem lögin ná til. Hreppsráð leggur til að
Biskupstungnahreppur verði aðili að þessu máli.
Tíma- og kostnaðaráætlun fyrir aðalskipulag
Biskupstungnahrepps 1998 - 2010. Lagt er til að
Litli - Bergþór 7