Litli Bergþór - 01.12.1997, Blaðsíða 26

Litli Bergþór - 01.12.1997, Blaðsíða 26
„Býr á Fossi bóndi og smalinn“ Guðmundur Eiríksson hinn sauðglöggi. Með öðrum hætti nýtist þessi eiginleiki ekki til neinnar fullnustu. En því var viðbrugðið hve sjón hans var lengi skörp og næm, þó endaði hann sitt ævikvöld í „myrkri“, því sína skörpu sjón missti hann á skömmum tíma á sínum allra síðustu árum. Maður, sem var þeirrar gerðar sem Guðmundur Eirfksson vissulega var, hefir misst æði mikið þegar sjónin var frá honum tekin. Þrátt fyrir þessa fötlun, sem ekki gekk þó yfir fyrr en hann var kominn á áttræðisaldur, sleppti hann ekki með öllu hendinni af fjárgæslu því hann hirti fé á tveimur húsum, sem stóðu heima á túninu í Miðdal, eins þó honum væri sjónin horfin með öllu. Fjárgæsla og smalamennskur létu honum betur en öll önnur störf. Hann hafði verið óvenjulega frár á fæti, ekki einungis meðan hann var á léttasta skeiði heldur fram á gamals aldur, því glöggar sagnir eru af því hve honum var létt um sporið eftir að hann var fluttur í Miðdal og farinn að steðja í kringum sauði sína þar í heimalöndum og upp um Mosfellsheiði. Hann hefur þó verið kominn á sjötugsaldur þegar hann flyst vestur yfir Heiði. Nánar greint var Guðmundur á 63. aldursári þegar hann sest að í Miðdal. Guðmundur var í blóma lífsins þau 18 ár, sem þau hjón bjuggu á Fossi. Landstærð er þar samkvæmt hinum nýtískulegu loftmyndamælingum 1200 hektarar. Þar er fénaðar för örðug á blettum. Landið að hluta til grýtt og bratt svo smalafæri má heita erfitt. Varla þó svo að Guðmundi hafi ógnað það á nokkum hátt. Hann var talinn skjótráður og enginn biðlundarmaður. Einhvern tímann að haustlagi, þegar hann var að hafa sig af stað 1 smalamennsku ásamt sínu heimafólki, og þótti sumt af því seinlátt við að keifa upp brekkumar ofan við bæinn. Þar er víða brattgengt og sumsstaðar illa grýtt. Þá sagði Guðmundur: „Allirvilja smala en enginn vill kjöt“. Svo hagar til á Fossi að meginn hluti af besta beitilandinu liggur austast og fjærst bænum, þó vom fjárhúsin öll á vesturkantinn og heima við þar til Guðmundur er sestur þarna að, þá byggir hann sauðahús austur á svonefndum Fagradal innanverðum. Þó var húsið staðsett suðurundir mörkum milli Foss og Jötu, enda var alsiða að byggja beitarhús svo nærri merkjum grannbæjar, sem frekast mátti samkvæmt gömlum ákvæðum. Eftir að Guðmundur kemur upp þessu húsi hafði hann þarna roskna sauði, sem ekki þurfti að ætla nema lítið hey þegar vetrartíð var skapleg. Enn sér greinilega fyrir sauðahústóftinni. Frá Fossi að beitarhúsi þessu hefir verið bæði langur og strangur húsavegur, talsvert meira en klukkutíma gangur hvora leið. Ekki mun þeim sporlétta smala hafa ógnað sú áraun, sem þessi strangi húsavegur krafðist af honum. Glöggar sagnir herma að hann hafi að jafnaði ekki farið þennan beitarhúsaveg fyrr en síðari hluta dags og iðulega tekið drjúga lykkju á leið sína þegar hann var búinn að gegna sauðum sínum. Guðmundur var í mægðum við fólkið á Kluftum og mikil vinátta var milli bæjanna. Þegar gangfæri var gott stikaði hann oft frá sauðahúsi sínu austur og fram að Kluftum. Þáði þar beina og ræddi vel og lengi við sitt vinafólk. Kvaddi ekki á Kluftum fyrr en í vökulok, átti þá eftir að trítla drjúgan spöl til útnorðurs til að ná sínu heimahlaði á Fossi. Eg trúi að þetta hefði flestum þótt æði langt, en á Guðmundi hefir sannast máltækið: „Til vinafólks eru vegir greiðir". Þrjú síðustu árin, sem Guðmundur og Guðbjörg sitja að búi á Fossi, eiga þau einnig bú á Hrunakrók. Þar voru tvær manneskjur, e. t. v. hjón, heimilisföst til umsýslu á þessu „útibúi“ Fosshjónanna. Slík útibú munu hafa verið næsta fágæt á þeirra búskapartíð. Svo giktarlaus og göngufrár var þessi maður að ætla má að allt fram að sínu lokadægri hefði hann stiklað í kringum sauði sína, ef sjónin hefði ekki bilað. Hverjum og einum hlýtur að vera það mikið áfall að missa sjónina og þá ekki síst manni eins og Guðmundi, sem lifði langa ævi fyrst og fremst fyrir fjármennsku sína, sauðgleggni og smalahæfileika. Eg er forsjóninni þakklátur fyrir að geyma þennan ötula smala og frábæra fjármann aðeins fá ár 1 „myrkri“ áður en hann fékk hvíld frá hérvist sinni. I lokin ætla ég að skrá nöfn þeirra tíu barna, sem þessi ágætu hjón eignuðust. Frá þeim er kominn fjölmennur ættbogi. Enn ber talsvert á því að fjármennskan loði við ýmsa afkomendur þeirra. Engum ætti að vera það undrunarefni þó hin mikla fjármennska og einstæða sauðgleggni Guðmundar Eiríkssonar hafí erfst frá honum í nokkrum mæli. 1. Eiríkurf. áHelgastöðum 16. mars 1818. Dó ógiftur og bamlaus 26 ára 4. febrúar 1844. 2. Kristín f. á Fossi 4. júní 1820. Maður hennar var Þórður Jörundsson. Þau bjuggu að Laug í Biskupstungum. 3. Ingveldur f. á Fossi 4. júní 1821. Maður hennar var Oddur Jónsson. Þau bjuggu í Gnúpverjahreppi, að Bala, Hamarsheiði og síðast í Skáldabúðum, Bamlaus. 4. Þómnn f. á Fossi 5. ágúst 1822. Maður hennar var Sigurður Pálsson, hreppstjóri. Þau bjuggu fyrst á Spóastöðum og seinna í Haukadal. 5. Jón f. á Fossi 24. desember 1824. Fyrri kona hans var Guðrún Egilsdóttir frá Tortu, og þar hófu þau búskap 1847. Seinni kona hans var Vilborg Jónsdóttir frá Einholti, dóttir Jóns Ivarssonar bónda þar. Jón bjó í Tortu og á fleiri jörðum á hinni svonefndu Haukadalstorfu sín fyrstu búskaparár. Mun svo hafa flust suður fyrir áeggjan föður síns, fyrst að Hvaleyri við Hafnarfjörð og þaðan fljótlega að Setbergi í Garðahreppi, þá með auknu þéttbýli þær báðar komnar í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar. Þegar ég var enn á bamsaldri var Hvaleyrin komin undan Garðahreppi í Fjarðammdæmið, en Setberg komst ekki fyrr en á allra síðustu ámm. Jón þessi var langafi minn. Frá því hann settist að á Setbergi var hann ævinlega kenndur við þann bæ og er svo enn, þegar hans er minnst. Hann var þó kominn yfir fertugt, þegar hann sest þar að. Litli - Bergþór 26

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.