Litli Bergþór - 01.12.1997, Síða 9
Prestshjónin Anna Magnúsdóttir og Guðmundur Óli í
„ baðstojunni “ á Torfastöðum haustið 1961.
í þriðja sinn á öldinni hefur nú verið valinn
sóknarprestur hér í sveit. Um síðustu aldamót var séra
Magnús Helgason prestur í Torfastaðaprestakalli, og
gegndi hann því embætti frá 1884-1904. Samkvæmt
prestatali í Inn til fjalla IILbindi er ekki fastaprestur á
Torfastöðum frá 1904 til fardaga 1906. Prestakallinu
þjónuðu þá séra Stefán Stephensen, sem var þá hættur
prestsskap á Mosfelli og mun hafa verið til heimils í
Laugardalshólum, séra Kjartan Helgason í Hruna og séra
Ólafur Briem á Stóra-Núpi.
Eiríkur Þ. Stefánsson vígðist til Torfastaða 1906 og
var þar sóknarprestur til 1955. I upphafi prestskapar
hans var Skálholtssókn ekki í prestakallinu en var
sameinuð því árið 1925. Nafni þess var breytt 1952 og
nefnt Skálholtsprestakall. Undirárslok 1954 er
prestakallið auglýst laust til umsóknar. Um það sækja
tveir nýútskrifaðir guðfræðingar; Guðmundur Óli
Ólafsson og Sigurður Haukur Guðjónsson. Þeir
predikuðu á kirkjunum og kynntu sig fyrir
sóknarbömunum. Töluverður áhugi varð fyrir
pretskosningunni og létu margir sig hana töluverðu
skipta. Lýður á Gýgjarhóli sagði t. d. frá því að hann
hefði einhverju sinni hugsað svo mikið um kosningamar,
þegar hann var að gefa ánum, að hann ruglaðist í að telja
knippin, sem hann bar fram á garðann. Eitthvað mun
hafa verið um að utanaðkomandi menn reyndu að hafa
áhrif á kosninguna með bréfaskriftum til sóknarbama.
Var talið að það hefði ekki haft tilætluð áhrif. Kosningin
fór fram 13. mars, og vom 255 á kjörskrá. Guðmundur
hlaut 107 atkvæði en Sigurður 74 en auðir og ógildir
seðlar voru 4. Guðmundur var svo vígður í júní 1955, og
hefur hann gegnt embættinu síðan. Hann fékk lausn frá
embætti frá lokum nóvember sl. Embættið var auglýst í
septemberlok með umsóknarfresti til 1 .nóvember.
Samkvæmt nokkurra ára gömlum lögum eiga nú aðal-
og varamenn í sóknarnefndum að kjósa prest.
Safnaðarfundir höfðu ekki verið í nokkur ár í
Bræðratungu- og Torfastaðasóknum, og voru þeir haldnir
síðla í október. Að þeim loknum voru til staðar 24
kjörmenn úr sóknunum fjómm. Þeir em (formenn taldir
fyrst en síðan aðrir aðalmenn):
Bræðratungusókn:
Sveinn Skúlason í Bræðratungu
Margrét Baldursdóttir á Króki
Guðrún Hárlaugsdóttir í Borgarholti
Kjartan Sveinsson í Bræðratungu
Hjalti Ragnarsson í Ásakoti
Svavar Á. Sveinsson á Drumboddsstöðum.
Haukadalssókn:
Arnheiður Þórðardóttir í Gýgjarhólskoti
Guðrún Lára Ágústsdóttir í Brattholti
Þórey Jónasdóttir í Haukadal
Valur Lýðsson á Gýgjarhóli
Sigríður Jónsdóttir í Gýgjarhólskoti
Eyvindur Magnús Jónasson á Kjóastöðum.
Torfastaðasókn:
Bjarni Kristinsson á Brautarhóli
Brynjar Sigurðsson á Heiði
Arnór Karlsson í Amarholti
Guðrún Sigurrós Paulsen í Austurhlíð
Guðrún Sveinsdóttir á Hábrún
Egill Jónasson í Holtakotum.
Skálholtssókn:
Þorfinnur Þórarinsson á Spóastöðum
Signý B. Guðmundsdóttir í Skálholti
Gylfi Haraldsson í Launrétt
Hólmfríður Bjamadóttir í Skálholti
Toril Malmo á Helgastöðum
Ingólfur Guðnason í Engi.
Fjórir sóttu um pretsembættið; séra Axel Ámason,
sóknarprestur í Stóra-Núpsprestakalli, séra Baldur
Kristjánsson, biskupsritari, séra Egill Hallgrímsson,
sóknarprestur í Skagastrandarprestkalli, og séra Hörður
Þorkell Ásbjömsson í Reykjavík. Þrír þeir fyrst töldu
heimsóttu alla kjörmenn og komu til fundar með þeim í
Skálholtsskóla, þar sem þeir gerðu grein fyrir sér og við
horfum sínum og svöruðu spumingum kjörmanna.
Kosning fór fram á sama stað 13. nóvember undir stjóm
séra Sváfnis Sveinbjamarsonar, prófasts í
Rangárvallasýslu. Egill var kosinn lögmætri kosningu,
og hlaut hann atkvæði helmings kjörmanna. Baldur hlaut
10 atkvæði og Axel 2. Egill mun taka við embættinu í
ársbyrjun 1998, en séra Sigurður Sigurðarson,
vígslubiskup, og séra Kristján Valur Ingólfsson, rektor,
gegna því í desember.
A. K.
Litli - Bergþór 9