Litli Bergþór - 01.12.1997, Side 11
Landspítalans í Reykjavík. Einnig starfaði ég
mestan hluta námsára minna í Dómkirkjunni í
Reykjavík, sem kirkjuvörður og meðhjálpari í
afleysingum. Auk þess sá ég alfarið um
barnastarf Dómkirkjunnar ásamt eiginkonu
minni í þrjú og hálft ár.
Ég lauk embættisprófi í guðfræði í
febrúarmánuði árið 1991. Að prófi loknu fór
ég í lögbundna starfsþjálfun, fyrst hjá
prófastinum í Kjalamesprófastsdæmi, en
síðan hjá prófastinum í Árnesprófastsdæmi.
Þann 12. maí 1991 var ég vígður til
prests í Dómkirkjunni og tók eftir það við
embætti sóknarprests í Skagastrandar-
prestakalli. Því embætti hef ég gegnt síðan.
Auk þess að gegna alhliða
prestsþjónustu, hef ég kennt þýsku við
Grunnskólann á Skagaströnd. Einnig hef ég
annast námskeið fyrir fullorðna um sorg og
sorgarviðbrögð á vegum Farskóla
Norðurlands vestra, með sérstakri áherslu á
hvemig hjálpa megi bömum og unglingum í
sorg þeirra.
Nú, svo hef ég setið í ýmsum nefndum
þessi ár mín hér fyrir norðan eins og gengur.
Varðandi safnaðarstarfið á Skagaströnd,
hef ég reynt að halda uppi öflugu bamastarfi,
einnig staðið fyrir samverustundum með
unglingum, bæna- og kyrrðarstundum, þar
sem beðið er fyrir þeim sem eiga í vanda, haft
samveru- og helgistundir með öldruðum,
einnig staðið fyrir biblíulestmm og umræðum
um trúmál. Auk þess hef ég lagt áherslu á að
vanda til alls helgihalds, svo fólk megi finna í
kirkjunni helgi og innri frið.
L.-B: Enfjölskyldurhagir?
Egill: Eiginkona mín er Ólafía
Sigurjónsdóttir hjúkmnarfræðingur og starfar
hún á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd.
Hún er dóttir hjónanna Jóhönnu Sveinsdóttur
og Sigurjóns Guðbergssonar, málarameistara
í Reykjavík. Hún hefur fylgt mér fast eftir í
starfi mínu og stutt mig á allan hátt, enda
hefur hún mikinn áhuga á málefnum
kirkjunnar. Við eigum tvö börn, þau Sóleyju
Lindu, sem fædd er árið 1989 og Hallgrím
Davíð, sem fæddur er árið 1993.
L.-B: Að lokum, hvernig leggst nýja
prestsembœttið íþig?
Egill: Það leggst mjög vel í mig. Það
sem mér er efst í huga nú er þakklæti fyrir
það traust sem mér hefur verið sýnt og ég
hlakka mikið til að koma suður og takast á
við ný verkefni. Suðurland er líka mín heima
byggð. Ég minnist þess að ég var á fundi í
Skálholti í janúar síðast liðnum. í fundarhléi
varð mér litið út um gluggann þar sem
janúarsólin skein við sjóndeildarhring, og
varð að orði við félaga mína, að allt væri nú
fallegast hér á Suðurlandi. Þá hvarflaði ekki
að mér, að innan árs yrði ég kjörinn prestur í
Skálholti. En þessi sex ár hér fyrir norðan
hafa verið mér góður og lærdómsríkur tími og
ég er þakklátur fyrir að hafa átt þessi ár á
Norðurlandi.
Ég tel mikilvægt að sóknarpresturinn
rækti tengsl við það fólk, sem hann er kjörinn
til að þjóna, jafnt unga sem aldna. Ég legg
því mikla áherslu á að gefa fólki góðan tíma.
Þjónusta við Guð er þjónusta við menn, og
þjónusta við menn er þjónusta við Guð. Það
verður aldrei aðskilið. Ég legg lrka áherslu á
góð tengsl við samstarfsfólk mitt í kirkjunni,
t.d. kirkjukórana og aðra þá er taka þátt í að
halda uppi safnaðarstarfinu. Auk þess tel ég
afar mikilvægt að tengjast starfi grunnskólans
í prestakallinu, og eiga gott samstarf við þá,
sem þar starfa og tengja þannig kirkjulegt
barna- og unglingastarf skólanum.
Litli-Bergþór þakkar séra Agli kærlega
fyrir spjallið og býður hinn nýja prest
Biskupstungnamanna velkominn í sveitina og
óskar honum velfarnaðar í starfi.
G.S.
Litli - Bergþór 11