Litli Bergþór - 01.12.1997, Síða 30

Litli Bergþór - 01.12.1997, Síða 30
Landgræðslufélagið Starfsemi Landgræðslufélags Biskupstungna 1997. Nú er komið haust og verkefnum við landgræðslu lokið þetta árið. Þá er að setjast niður og skipuleggja hvað verður gert næsta starfsár. Þetta ár hefur mikið verið gert á vegum félagsins sem ekki er allt farið að sjást ennþá. Landgrœðslugirðing og sáning. Starfsemi félagsins þetta starfsár hófst eiginlega með því að stjóm félagsins vildi leita á ný mið. Rætt var við Landgræðsluna um að taka fyrir svæði fyrir ofan afréttargirðinguna. Landgræðslustjóri tók vel í þetta og þegar svar kom frá honum vildi hann taka fyrir allt svæðið fyrir sunnan Sandá og niður að afréttargirðingu og sá í það allt á 4 árum. Þetta var nokkuð stór biti en við í stjóminni ákváðum að slá til. Landgræðslufélagið sá um að undirbúa samningsgerðina, hélt meðal annars fund með aðilum sem nýta afréttinn til sauðfjárbeitar. Gerður var samningur milli landráðenda, Landgræðslufélagsins og Landgræðslunnar um uppgræðslu þessa landsvæðis. Það á að nýta til fjárbeitar þegar þar að kemur. Verkefnið ætlar Landgræðslan að kosta af fé sem ríkisstjómin varði til landgræðslu og skógræktar til að minnka koltvísyring í lofti, svokölluðu C02 verkefni. A átján til tuttugu stöðum eru svona verkefni nú, í gangi, á vegum Landgræðslunnar og er þetta það stærsta. Landgræðslan tók að sér að girða svæðið með fjárheldri rafgirðingu, en umferð sauðfjár er beint í rennu meðfram Haukadalsheiðargirðingunni til að það komist óhindrað niður í Hólahaga. Framkvæmdum við uppgræðsluna á að vera lokið að mestu árið 2000, svo vel verður að halda áfram til að árangur náist. Stefnt er að því að hleypa sauðfé inn á norðurhluta svæðisins síðsumars 2001 og þá verða gerðar áætlanir um nýtingu á hinum hluta þess. Framkvæmdir hófust í júní. Borið var á austurkantinn, þar sem er einna mest stórgrýtið, með flugvél. Famar voru 3 ferðir með landgræðsluflugvélinni með áburð og fræ. Þá fóru nokkrir bændur hér í sveit á dráttarvélum sínum með áburðardreifara og dreifðu 36 tonnum af áburði og 4,5 tonnum af fræi á svæði við Pokakerlingu og á nyrsta hluta svæðisins. Þetta hafðist af á einum degi. Þá var farið með sérsmíðaðan slóða á sáningarnar til að auka líkur á spímn fræsins. Þetta var gert í 2 daga en náðist ekki að slóðadraga allar sáningamar. Enda vom sumir hlutar þeirra erfiðir yfirferðar. Seinnipart sumars var svo byrjað að girða svæðið og hafðist það skömmu fyrir fjallferð. Starfsmenn landgræðslunnar gerðu það. Verkið sóttisl seint vegna erfiðra aðstæðna. Landið var blautt og grýtt svo mikið þurfti að jafna undir girðinguna með jarðýtu. Girt var rafmagnsgirðing sem liggur vestur frá pípuhliðinu á afréttargirðingunni. Girðingin beygir svo í norðurátt í grennd við Stapa og liggur með Haukadaldsheiðargirðingunni að flugvellinum við Sandá. Þar liggur hún aftur í austurátt og endar í Hvítá aðeins neðan við þar sem Sandá rennur í hana. Maður á vegum Landgræðslunnar sáði svo með sáðvél í kringum flest rofabörðin á svæðinu og einning var plantað um 1500 plöntum af lúpínu. I haust var farið með sáðvél á svæðið og sáð lúpínu og grasi í nokkuð stór svæði. Landgræðslustjóri áætlar að búið sé að leggja um 9 milljónir í þetta verkefni á árinu. Ekki er búið að gefa út endanlega áætlun um aðgerðir á næstu árum en hún er í vinnslu hjá Landgræðslunni. Sjálfsagt verður haldið áfram af enn meiri krafti næsta ár. Eins og undanfarin 3 ár var farið með traktora og áburðardreifara inn fyrir Sandá og borið á uppgræðslumar þar. Þetta var gert 24. júní. Þangað var komið með 30 tonn af Móða 1 áburði í stórsekkjum. Meirihlutinn, 24 tonn, fór á uppgræðsluna við Sandá og 6 tonn á svæðið kringum sæluhúsið í Fremstaveri. Þessi ábuður er kostaður af Landgræðslunni, Raflagnir - Viðgerðir Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. um öll leyfi fyrir heimtaug að Efnissala og varahlutaþjónusta. sumarhúsum og lagningu raflagna. Fljót og góð vinna. Jens Pétur Jóhannsson LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Heimasími 486-8845 Verkstæði sími 486-8984 Bílasími 853-7101 Litli - Bergþór 30

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.