Litli Bergþór - 01.12.2005, Side 16
Helgi Björnsson, jöklafrœðingur, skýrir breytingar á jöklum á
Skeiðarársandi.
Hjónin á löu og í Gýgjarhólskoti syngja afréttarsöngva í
Hofgaröi.
stofnunar Háskóla íslands. Markmið þessara rann-
sókna er að kanna hvað takmarkar gróðurframvindu
og hvemig gróðurmynstur verða til. Meðal annars
er kannað hvort og þá hversu mikið fræframboð,
ýmsir umhverfisþættir og sauðfjárbeit hafa áhrif á
gróðurframvindu. Síðan var haldið í skoðunarferð
um þessi svæði á Skeiðarársandi. Þar sem við
ókum um, blasti allur Skeiðarárjökull við okkur allt
frá Skaftafelli að Lómagnúp í einkar góðu skyggni.
Eftirtektarvert var að sjá hvað birki er víða að
skjóta rótum á sandinum. Einn tilraunareitur hafði
verið hólfaður niður í nokkra reiti og borið á suma
og aðra ekki og sáust þar greinileg merki áburðar-
gjafarinnar. Þess má geta, að þar hafði reyndur
bóndi orð á því, að ekki þyrfti að segja sér það af
fræðimönnum, að þar sem áburður væri borinn á
færi gróður að dafna!
Eftir skoðunarferð um sandinn var haldið heim á
hótel til að skipta um föt fyrir kvöldvöku í
Hofgarði. Kvöldvakan hófst með fordrykk í boði
landbúnaðarráðuneytisins. Síðan var hátíðarkvöld-
verður í boði Landgræðslunnar undir styrkri veislu-
stjóm Níelsar Ama Lund. Þá hófst fjölbreytt
dagskrá, svo sem sveitarlýsing, einsöngur, hagyrð-
ingakeppni og einkar fróðlegt erindi Helga Björns-
sonar jöklafræðings. Þar sagði hann frá og fléttaði
saman samspili minnkandi jökla og landgræðslu á
því gríðarlega landi sem þá verður til. Þess má geta
að í skoðunarferðinni fyrr um daginn var Helgi
einni með fróðleik um minnkandi skriðjökla sem
við sáum greinilega af jökulruðningi við eitt
tilraunasvæðið.
Eftir vel heppnaða kvöldvöku var aftur haldið í
Freysnes og setið í sumarhúsinu góða við spjall, og
sungnir nokkrir afréttarsöngvar áður en gengið var
til náða.
Eftir morgunverð á föstudeginum var komið að
heimferð. Okkur þótti tilhlýðilegt að aka heim að
Skaftafelli og upp að Bölta til að líta yfir víðáttu-
mikinn Skeiðarársandinn og hvemig jökulámar
liðast eftir honum til sjávar. Þaðan var svo haldið
heimleiðis og stansað í Skaftárskála. Þar komumst
við að því, að þar höfðum við misst af
þriðju glervörubúðinni á austur- ^
leiðinni en hún var lokuð. íhtf aldrei komið í
Hádegisverður var snæddur í \glervörubúð.
Víkurskála og síðan kvöddum við .........."
hjónin ferðafélaga okkar á Hvolsvelli,
því þar beið vinnubíll konunnar, sem
við tókum með okkur heim.
Þessi ferð var einkar ánægjuleg,
gott veður, skemmtilegir ferðafélagar
og fróðlegur og skemmtilegur land-
græðsludagur.
Takk fyrir samfylgdina.
Guðmundur Ingólfsson, Iðu.
Eftir flutning þessarar ferðasögu á aðalfundi
Landgræðslufélags Biskupstungna í Aratungu 31.
okt. s.l. varð Jóni Karlssyni í Gýgjarhólskoti að
orði:
Fáum þótti ferðin þurr
fínar veigar drukku.
Glerílát kvað Guðmundur
gera mikla lukku.
Litli Bergþór 16