Litli Bergþór - 01.12.2010, Side 7
Með Sigurði kom inn í ritnefndina árið 2002
Margrét Annie Guðbergsdóttir og tók hún við stöðu
gjaldkera og framkvæmdastjóra í stað Drífu. Varð að
ráði að halda næstu fundi heima hjá henni, en þegar
Amór flutti í nýbyggt hús sitt í Reykholti voru
fundirnir fluttir þangað, í maí 2003.
Litli-Bergþór fjárfesti þá í nýrri Mackintosh tölvu
vorið 2003 og flutti hún með til Arnórs. En þar sem
við hættum að setja blaðið upp sjálf eftir að Drífu
naut ekki lengur við, og Arnór notaði eigin tölvu við
vinnslu blaðsins, var sú tölva minna notuð en skyldi.
Eftir að við fluttum frá Torfastöðum komumst við að
því að uppsetning á blaði er heilmikil vinna og
tímafrekt að hafa samskipti við prentsmiðju, sem og
að pakka og póstleggja. Uppsetningarmálið var leyst
með því að fá tilboð frá Prentsmiðju Suðurlands og
smám saman tókum við að aðlagast nýjum
aðstæðum. Tókum upp nútíma tölvusamskipti og
sendum gögn með tölvupósti eða geisladiskum til
ritstjóra og þaðan áfram í prentsmiðju. Myndefni er
að mestu tekið á stafrænar myndavélar og sá
Valdimar í prentsmiðjunni um að setja það á rétta
staði. Hann tók líka að sér að semja flesta texta við
hann „Litla-Begga“, kennimerki blaðsins, og var
bara oft nokkuð hittinn! Arnór sá um samskiptin við
prentsmiðjuna og annað vafstur og svo hittist
ritnefndin til að lesa lokapróförk og að síðustu til að
pakka blaðinu.
Arið 2005 komu inn í ritnefnd Litla-Bergþórs
Svava Theodórsdóttir gjaldkeri og Skúli Sæland,
ritari og árið 2009 sr. Egill Hallgrímsson og
undirrituð aftur. Skipa þau, ásamt Pétri
Skarphéðinssyni núverandi ritnefnd.
Gefin hafa verið út þrjú blöð á ári að jafnaði, nema
árið 2002, þegar unnið var að innbindingu og
efnisyfirliti yfir fyrstu 20 árganga blaðsins, 1980 -
1999. Þá komu út tvö blöð og eins á síðasta ári,
2009, vegna aukins prentkostnaðar.
Lesendum Litla-Bergþórs og stuðningsmönnum er
þökkuð samfylgdin og skemmtilegt samstarf í 30 ár
með von um að svo verði áfram um ókomin ár.
Geirþrúður Sighvatsdóttir
í ritnefnd 1990 - 2005 og 2009-
<estau
Kaffi Klettur
7 Litli-Bergþór