Litli Bergþór - 01.12.2010, Blaðsíða 16
Frá íþróttadeild
Ungmennafélags Biskupstungna
Undanfarin ár hefur starfsemi fþróttadeildar Ung-
mennafélags Biskupstungna verið gróskumikið og
líflegt. Má í því sambandi nefna þær íþróttir sem
hægt var að æfa á síðastliðnu ári en þá gátu félagar
stundað: fótbolta, handbolta, fimleika, körfubolta,
glímu, skólahreysti og yngstu félagarnir voru
duglegir að mæta í fþróttaskólann. Haustið 2009 var
einnig ákveðið að bæta inn sundæfingum til reynslu
en því miður reyndist ekki grundvöllur til að halda
úti sundæfingum það árið. Æfingar eru að öllu jöfnu
einu sinni til tvisvar í viku í hverri íþróttagrein í 45 -
90 mínútur í senn, allt eftir aldri iðkenda. Öll starf-
semi og æfingar miðast við starfstíma grunnskólans í
Reykholti og mæta yngstu nemendur skólans iðulega
á æfingar strax að loknum skóla. Afar gott samstarf
er milli skólans og Ungmennafélagsins enda æfir
allstór hluti nemenda Grunnskóla Bláskógabyggðar í
Reykholti, jafnvel margar, íþróttagreinar.
Undanfarin sumur hafa verið haldin sundnámskeið
fyrir yngri kynslóðina og hefur þáttaka verið mjög
góð. Guðbjörg Bjarnadóttir, sundkennari, er orðinn
fastagestur hjá okkur og höfum við átt gott og farsælt
samstarf við hana og vonum að sjálfsögðu að hún
haldi áfram að koma til okkar.
Haustið 2010 tók Jóhann Pétur Jensson við starfi
fótboltaþjálfara. Eldri iðkendur æfa tvisvar í viku og
yngri iðkendur mæta einu sinni í viku. Jóhann Pétur
þjálfar einnig eldri hóp í körfubolta. Nokkrir drengir
í Bláskógabyggð eru einnig að æfa fótbolta á Selfossi
í 4. og 5. flokki og munar svo sannarlega um þeirra
framlag í liðum Selfoss. Eins hafa sumir sótt æfingar
Grillpartý, vorið 2010.
á Flúðir og senn fer að líða að því að forsvarsmenn
Ungmennafélagsins geti farið að skoða frekara
samstarf við Flúðamenn.
Að halda úti öflugu íþróttastarfi er kostnaðarsamt
en reynt er að halda æfingagjöldum í lágmarki. Reynt
hefur verið að sækja styrki á ýmsa staði en greinilegt
er að þröngt er í búi víða í samfélaginu í dag. Ung-
mennafélagið fékk á síðasta ári styrki frá Landsbanka
íslands í Reykholti í formi styrks til kaupa á félags-
göllum en einnig styrkti leikdeild Ungmennafélags-
ins íþróttadeildina á veglegan hátt með peningagjöf.
Við þökkum kærlega fyrir það.
Aglct Pyri Kristjánsdóttir
Litli-Bergþór 16
Hópmynd af íþróttaæskunni, ásamt þjálfurum, tekin 2010.