Litli Bergþór - 01.12.2010, Side 12
o
Þeir geta nú enn þanið raddböndin, strákarnir.
o Þýskur barna- og unglingakór frá
Gethsemanekirkju í Berlín og barnakór Grunnskóla
Bláskógabyggðar héldu tónleika í Skálholti 14. október,
en Skálholtskórinn heimsótti Gethsemanekirkju fyrir ári
síðan.
o Lyngdalsheiðarvegur var formlega tekinn í
notkun þann 15. október að viðstöddum samgönguráð-
herra og ráðuneytisstjóra en sveitastjórnin var fjarri góðu
gamni á ráðstefnu á Akureyri
o Umhverfisstofnun hefur lokið við að endurnýja
og setja upp 1,5 km af köðlum og 400 staura meðfram
göngustígum á Geysissvæðinu og eru fleiri endurbætur
fyrirhugaðar.
o Valtýr Valtýsson sveitastjóri varð fimmtugur
þann 22. október og bauð hann fólki að samfagna sér að
Laugalandi í Holtum sama dag en hann býr að Meiri-
Tungu I þar í sveit.
o Englakaffi sem sett var á laggirnar í Bjarkarhóli í
Reykholti í vor hefur verið lokað.
o Júlíana Magnúsdóttir hefur staðið fyrir
jafnvægisboltaleikfimi í Bergholti nú í haust, svokallaðri
Pilates leikfimi og hefur aðsókn verið svo góð að hún
hefur þurft að fjölga kennurum til að anna eftirspurn.
o Maríanna Bergsteinsdóttir, dýralæknir sem býr í
Reykholti bauð sig fram til stjórnlagaþings en náði ekki
kjöri.
o Samþykkt hefur verið að gefa kost á svokölluðu
náðarkorteri í leikskólum sveitarfélagsins gegn gjaldi fyrir
þá sem ekki komast á tilskyldum tíma til að sækja börn sín
eða þurfa að koma þeim snemma á leikskólann.
Viðræður fara fram milli Bláskógabyggðar og
Hrunamannahrepps um samstarf í íþrótta- og
æskulýðsmálum eftir að búið verður að opna brúna milli
byggðarlaganna.
o Margeir Ingólfsson hefur sagt starfi sínu hjá
Bláskógaveitu lausu og er búinn að stofna
ferðamálafyrirtækið IceThai Travel ehf. sem sérhæfir sig í
Tælandsferðum.
o Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í
Skálholti vígði Kristinn Ólason rektor Skálholtsskóla til
prests þann 24. október síðastliðinn.
o Lionsklúbburinn Geysir efndi til baðstofukvölds í
Aratungu þann 29. október undir heitinu „sagna og
kvæðamenn“ þar sem ýmsir sagnamenn stigu á stokk og
félagar úr kvæðamannafélaginu Argali kváðu stemmur.
o Axel Sæland býður körlum í karlaþrektíma í
íþróttahúsinu í Reykholti frá 2. nóv. til 16. des.
o Hestamannafélagið Logi hélt uppskeruhátíð sína í
Reykholti 2. nóvember. Félagið hlaut æskulýðsbikar LH
fyrir öflugt ungmennastarf. Farandgripinn Feyki hlaut Jón
Óskar Jóhannesson frá Brekku fyrir framfarir og
fyrirmyndar hestamennsku.
Maggý í Hrosshaga, Oddný á Brautarhóli og Sigga
Jóna í Hrosshaga fylgjast með sultukeppni.
o Safnahelgi var dagana 5-7 nóvember
Sigurlína Kristinsdóttir opnaði málverkasýningu í
Bjarkarhóli í Reykholti föstudaginn 5. nóv. Kaffi Klettur
var með dagskrá um Stefán Jónsson sunnudaginn 7. nóv. í
Bjarkarhóli var haldin sultukeppni laugardaginn 6. nóv.
þar sem valdar voru besta sultan og nýstárlegasta sultan.
Ketilbjjörn ehf.
Vinnuvélaverktaki
Syðri-Reykjum
Grímur Þór - Sími 892 3444
Li+li-Bergþór 12