Litli Bergþór - 01.12.2010, Blaðsíða 34
Af bernskubrekum
Péturs Hjaltasonar
Þegar reynt er að rýna í fimmtíu ára minningarbrot
verður ekki hjá því komist að atburðir hafi breyst,
aflagast og ruglast saman við aðra atburði, óskylda,
þó svo að þeir standi fólki ljóslifandi fyrir hugskots-
sjónum og þá jafnvel þannig að viðkomandi væri
þess albúinn að leggja eið að því að þannig hefði
þetta verið og ekkert öðru vísi. Þessar staðreyndir eru
þekktar úr sakamálarannsóknum nútímans og jafnvel
nokkurra daga minning getur hafa aflagast talsvert,
hvað þá þegar um er að ræða marga tugi ára. Því bið
ég ykkur lesendur góðir að taka mið af þessu við
lestur þessarar greinar og skemma ekki góða sögu
með einhverju því sem sannara mætti reynast. Mig
langar í þessu stutta greinarkorni að sýna ykkur
minningar mínar frá æsku og uppvexti í Tungunum
og reyna þá að einskorða mig við skólagöngu og
æskulýðsstarf sem við sóttum í uppvexti okkar og
fram yfir fermingu.
Fyrstu kynni af námi
Ég hygg að æska mín eins og flestra annarra af minni
kynslóð hafi verið nokkuð hamingju- og sólrík í
sveitinni. Við þekktum ekki auðlegð og ofgnótt og
undum glöð við það sem við höfðum. Þá var ekki
sjónvarpið að trufla eða tölvurnar, heldur var setið
yfir útvarpsleikriti á fimmtudagskvöldum og leikið
sér út frá morgni til kvölds á meðan ekki voru settar
á okkur skyldur sem þurfti að sinna. Fljótlega þurftu
samt eldri börnin að hafa auga með þeim yngri og
allir léku sér saman, strákar og stelpur, ungir og eldri.
Því var það að ef bauðst eitthvað áhugavert var því
tekið með þökkum og þegar Guðný Páls í Hveratúni
var að kenna sínum börnum, eldri og jafn gömlum
mér, að kveða til stafs þá fékk ég að fljóta með. Ég
sat við stofuborðið í gamla Hveratúni og lærði að
lesa öfugt, þ.e. ég las bókina á hvolfi og þó síðar hafi
bráð af mér námsgeta þá var ég til þess að gera
Bekkjarmynd, árgangur 1953 og þrír nemar af árgangi 1954. Fremsta röð: Einar Jóhannsson Holtakotum, Magnús
Kristinsson Austurhlíð. Miðröð: Guðrún Hárlaugsdóttir Hlíðartúni (54), Hjálmur Sighvatsson Miðhúsum (54),
Sveinn Auðunn Sæland Espiflöt (54), Gunnar Sverrisson Hrosshaga, Sigurður Gísli Þórarinsson (Magnússonar
skólastjóra) Reykholtsskóla, Páll Magnús Skúlason Hveratúni. Aftasta röð: Geirþrúður Sighvatsdóttir Miðhúsum,
Ragnhildur Þórarinsdóttir Spóastöðum, Sigurður Ágústsson kennari, Pétur Hjaltason Laugagerði.
Á myndina vantar Þorstein Þórarinsson Fellskoti og Loft Jónasson Kjóastöðum.
Litli-Bergþór 34