Litli Bergþór - 01.12.2010, Blaðsíða 39
hesta. Jóanis er hraustlegur bóndi og talar íslensku
nokkuð vel.
Guldbæk var næsti staður og eigandinn heitir John
Siiger Hansen. Hann hefur búið þarna í 25 ár, er búin
að vera lengi starfandi kynbótadómari. Kona hans er
kennari og heitir Marie Louise. Jörðin er 35 ha. og
þau stunda hrossarækt og fá um 10 folöld á ári. Þau
eiga sex stóðhesta og þar á meðal Vák frá Brattholti
og Tý frá Guldbæk sem er hæst dæmdi 5v folinn
þetta árið, hann eru undan Skorra frá Blönduósi og
Váksdóttur. Sáum m.a. folöld undan Viktor frá Disa,
Tóni frá Ólafsbergi, Vák frá Brattholti og Garra frá
Reykjavík. Mjög fallegt folald undan Garra og Tinnu
frá Kjarri, Jónínudóttur. John sýndi okkur landnáms-
hænur sem hann fékk frá Valgerði á Húsatóftum.
Vákur kom og gekk rakleitt til Njarðar eins og hann
þekkti hann aftur. Njörður fékk kraftmikið fjórhjól til
að rúnta um á, því við þurftum að labba langar vega-
lengdir á hverjum stað til að skoða hrossin.
Þegar við vorum búin að skoða þessa tvo staði var
dagurinn búinn enda lengi stoppað á hverjum stað og
miklar vegalengdir á milli staða. Við fórum aftur á
krána og svo var eitthvað dundað fram eftir kvöldi
enda góð setustofa í gistihúsinu og hægt að drepa
tímann við ýmislegt skemmtilegt.
Næsta dag, mánudaginn 30. ágúst, fórum við enn
af stað að skoða hrossabú og þá var fyrir valinu
Stutteri Birkegarden en þar búa Michael og
Marianne Skatka. Þau keyptu jörðina fyrir fjórum
árum og er hún 50 ha að stærð. Þau reka þjálfunar-
stöð fyrir fatlaða einstaklinga, mótahald og ræktun.
A hverju ári koma mörg hundruð fatlaðra til að fara á
hestbak og við þessa starfsemi vinna átta manns. Þau
eiga fimm ræktunarmerar og stóðhestinn Álfastein
frá Selfossi. Á þessum stað hefur danska meist-
aramótið verið haldið þrisvar sinnum. Michael sýndi
okkur stóðhestatitti sem hann er með í uppeldi.
Byggingarnar eru nýjar, hesthúsin mjög einföld,
hálfgerð skýli, stór reiðhöll með 20x60 m reiðvelli.
Fallegur staður og fín aðstaða til mótahalds.
Við lögðum af stað til Kaupmannahafnar næsta
morgun, þriðjudaginn 31. ágúst, og síðasti staðurinn
sem við heimsóttum var Skovbogaard, en sá staður
var eiginlega í leiðinni til baka til Kaupmannahafnar.
Þessi staður er á Thurö eyju fyrir utan Svendborg á
Suðurfjóni. Jörðin er lítil, sex ha., en þau leigja 50
ha. til viðbótar. Þarna búa Mads og Susanne Jörgen-
sen. Þau reka sæðingarstöð fyrir íslenska stóðhesta
sem er sú eina í heiminum. Árið 2006 keyptu þau
nokkrar 1 v merar og síðan stóðhestana Gelli frá
Árbakka og núna síðast Hnokka frá Fellskoti sem er
mikið notaður. Þau hafa lagst í miklar rannsóknir á
sæðingum og flytja sæðið frá sér kælt í 5°c þannig
lifir það minnst í 48 tíma, mest í 65 tíma. Þau eru í
góðu sambandi við dýralækna í nokkrum löndum og
eru síðan með dýralækni hjá sér í hálfu starfi.
Ætlunin er að ná árangri með frosið sæði og er það
mál í vinnslu. Salan á sæðinu er 50% innanlands og
50% erlendis. Við sáum stóðhestana: Hnokka frá
Fellskoti, Örn frá Efri-Gegnishólum, Hrannar frá
Hvolsvelli og Gelli frá Árbakka. Skovbogaard er
mjög fallegur staður og flott aðstaða.
Við komum til Kaupmannahafnar undir kvöld og
skelltum okkur í Tívolíið áður en við fórum að sofa,
en við gistum á ágætu hóteli í Kaupmannahöfn um
nóttina.
Síðasta deginum, 1. september, eyddum við í
Kaupmannahöfn og var auðvitað farið á Strikið og
skoðað í búðir. Um kvöldið flugum við heim aftur.
Þessi ferð var í alla staði frábær og verður erfitt að
gera betur. Allur kostnaður var greiddur af okkur
ferðafélögunum og verð ég að geta þess hér, að
fararstjórinn Jóhann Skúlason tók ekki krónu fyrir
sína vinnu og að vera með okkur allan tírnann. Hann
á heiður skilinn fyrir að velja handa okkur
skemmtilega staði og allir sem við heimsóttum tóku
einstaklega vel á móti okkur með glæsilegum
veitingum og sýndu okkur hesta sína og starfsemi.
Ég á von á því að félagar í Hrossaræktarfélagi
Biskupstungna fari ekki þessa einu ferð heldur sé
þetta bara byrjunin. Ég er strax farin að hlakka til
næstu ferðar. María Þórarinsdóttir.
Þjónusta í yfir 30 ár
□ Þjónusta á búvélum og tækjum í landbúnaði
□ Smurþjónusta - Olíusíur í bíla og dráttarvélar
□ Háþrýstislöngur - Sérsmíði
□ Bifreiðaviðgerðir
□ Framrúðuskipti
□ Hjólbarðaþjónusta
□ Nýsmíði
J-rj979-20Q9^|J
39 Litli-Bergþór