Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1920, Side 13

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1920, Side 13
LANDAFUNDIR OG SJÓFERÐIR. Hann varði lífi sínu aðallega til tvenns: að berjast móti Márum og að leita landa. Hann bjó í Sagres, litlum bæ á suðvesturströnd Portúgals, og þaðan sigldu skip þau, er hann sendi eða gerði út. Aðal-tilgangur hans var að finna sjóleiðina til Indlands, og sparaði hann hvorki fyrithöfn né fé til þess að ná því takmarki. En það var rígur miili þjóðanna þá og sjaldnast fengu útlendingar að vera með í þess- um ferðum, enda var oft farið leynt með uppgötvanirnar, svo að aðrar þjóðir nytu ekki þeirra. Það er því næsta merkilegt að finna, að fyrir ein- um leiðangrinum, sem árið 1448 var gerður út til Senegambíu, var dansk- ur maður, sem í portúgölskum heim- íldum er nefndur Vallarte, og er það na'fn auðvitað afbökun. Hann fórst í þeirri ferð, en dr. Larsen telur lík- legt, að hann hafi ékki komið af eigin hvötum til Portúgal, heldur hafi Hin- rik farið fram á það við Danakonung, að hann sendi honum einhvern af þegnum sínum, er kynnast skyldi land- könnunum. Hafi því Vallarte verið sendur til Portúgal af konunginum. Þetta er því líklegra, sem til er bréf, er bendir á það, að Portúgalskonungur hafi sózt eftir vináttu og samvinnu Danakonungs. Bréfið er frá Alfons V. til Kristjáns I. og er frá 1461. Það var sent með Láland, dönskum “per- sevant”25), sem verið hafði með Portúgölum á herferð gegn Márum, og sjálfsagt hefir verið sendur til Portúgal af Kristjáni að hvötum Al- fons. En hver gat verið ástæðan til þessa samdráttar konunganna? Varla hefir Kristján eða Danir sózt eftir 25) Persevant var at5stot5armat5ur kall- 11 neinu í Portúgal eða á Afríkuströnd- um, enda munu Portúgalar naumast hafa viljað hvetja þá til nokkurrar samkepni þar. Upptök samdráttarins voru því að öllum líkindum hjá Portú- galskonungi, þó að í fyrsta bragði á- stæðan til hans liggi ekki í augum uppi, því að varla gat konungur sá girnst nokkuð norður í höfum. Hér mun nú samt liggja fiskur undir steini. Hinrik sæfari mun einhvernveginn hafa feng- ið þá hugmynd, að komast mætti sjó- leiðis til Kína og Indlands frá Norður- löndum, og því sózt eftir vináttu Dana- konungs til þess að fá hann til að gera tilraunir í þá átt að finna þá leið. Það er ekki hægt að segja með neinni vissu, hvernig prinzinn hafi fengið þetta í höfuðið, en tilgáta dr. Larsens um það er ekki ósennileg. Á seinni hluta miðaldanna var engin ferðabók eða landalýsing kunnari en sú, sem kend er við Mandeville. Hún var skrifuð á frönsku á seinni hluta 14. aldar og nefndi höfundurinn sig Jehan de Mandeville, og gaf bókin í skyn, að hann hefði séð mestalt af heiminum og lýsti því hér, einkum Austurlöndum. Nú vita menn að hún er soðin saman úr allskonar ritum og sögusögnum og er eitt með mestu lýgiritum, sem nokkurntíma hefir skráð verið, og höfundurinn var revnd- ar franskur læknir í Liége, er hét Jean de Bourgogne og andaðist 1372. En þetta rit snertir oss hér að því leyti, að efni og frásögn þess var alment trúað á þessum tíma, sem hér greinir um, og hefir Hinrik sadfari verið jafn trúaður á það og samtíðarmenn hans. Á ein- um stað í ritinu er sagt frá því, að maður nokkur hafi rekist af stormi frá Noregi, farið heiminn í kring og kom- ara.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.