Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1920, Qupperneq 107

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1920, Qupperneq 107
ÞJ ÓÐRÆKNLSSAMTÖK 105 Gests. Það var því um áramótin 1891 —92, að tilraun var gerð til að fá annan ritstjóra að blaðinu. Um þess- ar mundir hafði verið stofnað prent- félag í bænum og gaf það út blað, er nefndist “Öldin”; var ritstjóri við það Jón Ólafsson; byrjaði það útkomu miðvikudaginn 7. október um haust- ið. Að félagsstofnun þessari stóðu skáldið Kristinn Stefánsson, Magnús Pétursson prentari, Eiríkur Gíslason (sonur Gísla Jónssonar frá Egilsstöðum á Völlum í S.-M.sýslu), Árni Þórðarson (ættaður úr Eiðaþingi í S.-Múlasýslu) o. fl. Aðeins komu 21 eintak út af blaðinu. Var nú félagi þessu steypt saman við “Heimskringlu”-Jfélagið og blöðin sameinuð og gerðist þá Jón ritstjóri, frá marzbyrjun 1892, að hinu sameinaða blaði, er nefndist “Heims- kringla og Öldin”. Kom fyrsta tölu- blaðið út 2. marz. Fyrstu þrjú árin var stærð “Heimskringlu” 4 bls., 5 dálka breiðar og 18 þml. háar, en þá var blaðið stækkað svo það varð dálki breiðara síðan og rúmum þumlungi hærri. Eftir sameininguna var það stækkað enn, þannig að það kom út tvisvar á viku í sama broti. Var það nú stærsta íslenzka fréttablaðið. Stendur þetta ár. Er þá Öldin skilin frá og gefin út sem sérstakt mánaðar- rit. Kemur fyrsta hefti hennar út í apríl 1893. Alls komu út fjórir ár- gangar, síðasta heftið er dagsett í desember 1896. Við “Heimskringlu var Jón þangað til 24. marz 1894, að hann flutti alfari frá Winnipeg, fyrst til Chicago og þrem árum síðar til Reykjavíkur- Vorið 1893, hinn 22. maí, kom upp eldur í byggingu þeirri, þar sem prentsmiðja 'blaðsins var, og fórust öll prentáhöld blaðsins og eignir. I eldinum misti Jón Ólafsson mestalt af upplagi ljóða- bókar sinnar, er þá var fyrir skömmu gefin út. Var þetta tilfinnanlegur skaði fyrir alla hlutaðeigendur. Til prentsmiðjunnar var þó keypt að nýju, en meðan á því stóð kom blaðið út í smærra broti. Við burtför Jóns tók Eggert Jóhannsson aftur við ritstjórn og hélt henni til maímánaðarloka árið 1897, en þá var lýst þrotabúi af ráðs- manni blaðsins, og samkvæmt skipun dómstólanna allar eignir prentfélags- ins boðnar upp til kaups til lúknmgar áföllnum skuldum. Töpuðu nú hlut- hafar öllu, sem þeir höfðu lagt í félag- ið og ennfremur starfsmenn blaðsins stórupphæðum í ógoldnum launum. Þyngst kom þetta niður á ritstjóranum og prenturunum, er efnalitlir voru og máttu eigi við að missa bæði laun og atvinnu. Hinn 14. október um haustið var blaðið endurreist. Keyptu í félagi Einar Ólaifsson frá Firði í Mjóafirði, fyrv. ráðsmaður blaðsins og Björn F. Walters (sonur Jósafats Sigvaldasonar á Gili í Svartárdal) útgáfurétt og prent- áhöld, og er fyrsta blaðið dagsett 14. október. Ritstjóri er Einar Ólafsson. Meðan blaðið lá niðri myndaðist hluta- félag meðal Islendinga í Norður-Da- kota til þess að kaupa útgáfuréttinn og prentáhöldin og gefa svo blaðið út þar syðra. Samið var við útgefanda að ensku blaði í bænum Caválier um skrifstofu-pláss. Ekkert varð þó af þessum kaupum og mest fyrir það, að skoðun sumra hluthafa varð sú aðblað- inu væri vel borgið í höndum þeirra, er nú gengust fyrir að endurreisa það þegar hljóðbært varð, hverjir það voru; enda vildi umboðsmaður þrota-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174
Qupperneq 175
Qupperneq 176
Qupperneq 177
Qupperneq 178
Qupperneq 179
Qupperneq 180
Qupperneq 181
Qupperneq 182
Qupperneq 183
Qupperneq 184
Qupperneq 185
Qupperneq 186
Qupperneq 187
Qupperneq 188

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.