Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1920, Blaðsíða 111
ÞJ ÓÐKÆKNISSAMTÖK
109
Þegar komið var upp að árinu 1887
voru flestir þeir, er dvalið höfðu í
landinu um lengri tíma, búnir að
mynda sér ákveðnar skoðanir. I
safnaðar og kirkjumálum höfðu menn
skifst og eigi allir orðið á eitt sáttir.
Fór á sama veg í landsmálum. Innan
Canada réðu tvær stjórnmálastefnur
og fylgdi sinn hópurinn hvorri. Sama
var að segja um þá, sem heima áttu í
Bandaríkjunum. Urðu það því fljótt
margir, er eigi álitu “Heimskringlu”
fullnægjandi, og vildu koma á fót öðru
blaði. Leiðir höfðu skilið með þeim
Einari Hjörleifssyni og Frímanni B.
Anderson. Þó nokkrir væru, er gjarna
vildu að Einar ætti kost á því að
stjórna b'laði og gefa sig við ritstörf-
um, mun þó hitt hafa ráðið meiru, að í
skoðanalegu tilliti stóðu Islendingar í
tveim öndverðum flokkum.
Það verður því úr, að í desember-
mánuði 1887 er sent út boðsbréf að
nýju blaði, undirritað af sex mönnum,
er voru þessir: Sigtryggur Jónasson,
Einar Hjörleifsson, J. Bergvin Jónsson,
Árni Friðriksson, Sigurður J. Jóhann-
esson og Óláfur S. Þorgeirsson (hafði
stundað prentun á Akureyri og flutt
vestur haustið 1887) núverandi vara-
konsúll Dana í Winnipeg. í boðs-
bréfinu er skýrt frá því að blaðið eigi
að heita “Lögberg”, verði hvorki spar-
að fé né tími til að gera það sem bezt
úr garði, eigi það að kosta tvo dali yfir
árið og verða fult eins stórt og stærsta
íslenzka blaðið, er þegar hafði verið
gefið út í Ameríku, og það ei(?i að
byrja að koma út við árslok 1887-
Auk almennra frétta á blaðið að hafa
meðferðis ritgerðir um almenn mál og
einkum að leiðbeina íslendingum í at-
vinnumálum, mentamálum og stjórn-
málum. Lofað er því að það skuli
verða óhátt öllum flokkum í stjórn
málum og öðrum málum og eigi for-
mælandi sérstaks lands eða landnáms.
Fyrsta tölublað “Lögbergs” er dag-
sett 14. janúar 1888. I mngangs-
greininni er getið um að fyrirtæki
þetta hafi sætt ákveðinni mótspyrnu en
ekkert sé að óttast þó upp rísi tvö
blöð meðal íslendinga. Öll samkepni
sé góð og leiði aðeins til þess að út-
gefendur vandi blöðin betur. Fari svo
að ofraun verði að halda úti tveimur
blöðum, muni það blaðið lifa, er bet-
ur sé frá gengið. Skýrt er einnig frá
því, að fyrirtæki þetta sé áframhald
eldri blaðafyrirtækja, prentáhöld
“Framfara” og “Leifs” verið keypt og
útgáfuréttur beggja þessara blaða, en
áhöldin stórum aukin og endurbætt.
þrír stofnendur verið hluthafar í prent-
félagi Nýja íslands, og tveir, Sigtrygg-
ur Jónasson og Bergvin Jónsson, unn-
ið að útgáfu fyrsta íslenzka blaðsins í
Ameríku.
I fyrstu var stærð blaðsins 4 síð-
ur, 5 dálkar á síðu, 18 þuml. háir, svo
það var nákvæmlega á sömu stærð og
Heimskringla. Með þriðja árgangi er
það stækkað um helming, þannig að
það varð nú 8 bls. í sama broti og
áður var. — Hefir það síðan
verið stækkað tvívegis, árið 1904 í 6
dálka breidd, 19 þuml. háa, og síðast
1911 í 7 dálka breidd 21*/2 þuml.
háa. Er það nú langstærsta íslenzka
fréttablaðið, sem út er gefið. Blaðið
var þegar fjölbreytt að efni og frá
hendi ritstjórans ágætlega ritað. Er
með því að blöðin voru nú orðin tvö
varð flokkaskiftingin bráit ákveðnarí
og var eigi héldur reynt, á hvoruga síð-