Morgunblaðið - 20.12.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977
Banaslys í
Bakkafossi
BANASLYS varð í nærmogun um
borð í m.s. Bakkafossi, þar sem
skipið lá f Sundahöfn. Fertugur
maður klemmdist milli lestarlúga
og hlaut bana af. Hann hét Agnar
Agnarsson, til heimilis að Grjóta-
götu 14 B. Hann var fjölskyldu-
madur.
Öljóst er hver voru tildrög
þessa sviplega slyss, því að enginn
varð þess var þegar Agnar heitinri
kiemmdist millí lúganna. A
Bakkafossi eru stálhlerar á lest-
um og er þeim rennt af þegar
lestarnar eru opnaðar og leggjast
hlerarnir þá saman utan við
lestaropið á þar til gerðum braut-
um. Er þetta kerfi stundum nefnt
hamonikulúgur.
Þegar lúgunum var rennt af í
gærmorgun tók enginn eftir
neinu óvenjulegu. Stuttu síðar
fóru þeir, sem unnu við skipið I
kaffi, en þegar þeir komu til baka
kiukkan rúmlega 10 sáu þeir Agn-
ar klemmdan milli hleranna. Var
hann þá látinn.
2 menn fórust með
rækjubát á Ströndum
í Kópavogi var á sunnudag kveikt á jólatré sem vinabærinn í Sviþjóð, Norköping, hafði sent bæjarbúum
að gjöf. Jólatré þetta stendur við Félagsheimilið og þar fór afhendingin fram en sænski sendiherrann hér
á iandi sá um þá hlið málsins. Jólasveinn kom i heimsókn og lét sér annt um börnin sem þarna höfðu
safna/.l saman, eins og sjá má á þessari mynd Ol.K.M.
Lamandi áhrif yfirvinnu-
bannsins á innanlandsflug
TVtill menn, Jóhann Snæfeld
l’álsson, 58 ára, Hamrabæli í
Steingrímsfirði, og Loflur Ingi-
nundarson 23 ára, Drangsnesi,
örusl með rækjubátnum Pöl-
stjörnunni ST 33 frá Drangsnesi í
mynni Steingrímsfjarðar á
laugardag. Jóhann lætur eftir sig
eiginkonu og fjögur uppkomin
börn, og Loftur lætur eftir sig
i iginkonu og tvö börn.
Siðast sást til Pólstjörnunnar í
mynni Steingrímsfjarðar um
klukkan hálf fimm á laugardag og
samkvæmt talstöðvarsamskiptum
við rækjubátinn Grímsey, voru
þeir Jóhann og Loftur þá með
síðasta togið. Þegar báturinn kom
ekki til lands, var farið að svipast
um eftir honum og um kvöld-
matarleytið var hafin skipulögð
leit. Þrettán rækjubátar frá
Hólmavík, Drangsnesi, Hvamms-
tanga og Skagaströnd tóku þátt í
leitinni og björgunarsveitir SVKI
á Hólmavik og Drangsnesi gengu
fjörur frá Ennisnesi norður i
Bjarnarfjörð og björgunarsveitin
á Hvammstanga gekk fjörur frá
Skarðsvita að Vatnsnestá í
Hindisvik. Um hálftvöleytiö
fundu Ieitarbátarnir brak úr Pól-
stjörnunni um 4 mílur frá Gríms-
ey og um fjögurleytið fannst svo
gúmbjörgunarbátur Pólstjörn-
unnar á reki 8,5 sjómílur frá
Grimsey og 6,5 sjómílur frá
Ennisnesi. Báturinn var hálffull-
ur af sjó og bar þess engin merki,
að menn hefðu farið um hann
höndum. Þótti þá vist að mennirn-
ir hefðu farizt og var leit hætt.
Pólstjarnan ST 33 var tólf tonn
að stærð.
Leitarflokkar leituðu fjörur
bæði í gær og á sunnudaginn en
sú leit hafði ekki borið árangur
þegar Mbl. hafði síðast fregnir.
ALLT situr við það sama í kjara-
deilu flugumferðarstjóra, en þeir
hafa verið í yfirvinnubanni frá
því um miðja síðustu viku. Sagði
Ingvar Valdimarsson, formaður
stéttarfélags flugumferðarstjóra,
að ekki hefði verið boðað til
neinna viðræðna út af þessu máli.
Ingvar sagði, að i gær hefðu
allir starfsmenn í flugstjórnar-
miðstöð komið til starfa en ekki
hins vegar nema einn af þremur
starfsmönnum í flugturni, þ.e.
vaktstjórinn. Hann hefði því að-
eins getað sinnt reglubundnu
áætlunarflugi og einnig lítilshátt-
ar millilandaflugi um Reykjavik-
urflugvöll, þar sem voru ferju-
flugvélar.
Sveinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi Flugleiða, sagði í samtali við
Mbl. að yfirvinnubannið hefði
mjög lamandi áhrif á allt innan-
landsflug Flugfélagsins á mesta
annatíma ársins, því að ekki væri
nú unnt að fljúga á marga staði að
kvöldlagi t.d. á Akureyri og Egils-
staði til að Iétta mesta álagið í
innanlandsfluginu að degi til
vegna þeirra staða sem aðeins er
hægt að fljúga til í dagsbirtu, svo
sem Vestmannaeyja, Isafjarðar
og Norðfjarðar. Sagði Sveinn að
nauðsynlegt væri að finna lausn á
þessu máli áður en aðalönnin
hæfist því að ella gæti orðið
hreint öngþveiti.
Maður lézt í bruna
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra:
Lífeyrissjóðir betur færir
um að sinna hlutverki sínu
með verðtryggingu fjármuna
Undanþágur frá verðbréfakaupum, ef sérstakar ástæður eru
GEIR Hallgrímsson forsætis-
ráðherra mælti í gær í neðri
deild Alþingis fyrir breytingar-
tillögu, er hann flytur við
frumvarp um erlendar lántöku,
ábyrgðarheimildir og aðrar
ráðstafanir í ríkisfjármálum,
varðandi skyldukaup lífeyris-
sjóða á verðtryggðum skulda-
bréfum. Gengur tillagan út á
það „ef sérstakar fjárhagsað-
stæður einstakra Iffeyrissjóða
krefjast, geti fjármálaráðherra
lækkað framangreint hlutfall
(40%) verðbréfakaupa af ráð-
stöfunarfé“.
Verðtrygging
fjármagns
lífeyrissjðða
Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra sagði m.a. að það væri
eðlileg ávöxtun fjármagns líf-
eyrissjóða, almennt séð, að
verðtryggja 40% ráðstöfunar-
fjár með þeim hætti, er frum-
varpið gerir ráð fyrir. Höfuðtil-
gangur lífeyrissjóðanna er,
sagði forsætisráðherra, að
tryggja meðlimum þeirra líf-
eyri, þegar starfsferli er lokið,
vegna aldurs eða af öðrum or-
sökum. Verðtrygging fjár-
magns sjóðanna gerir þá betur
færa um að sinna þessu höfuð-
hlutverki. Annaö höfuðvið-
fangsefni lífeyrissjóðs hefur
verið að tryggja meðlimum sín-
um lánsfjármagn til íbúðabygg-
inga. Þegar til lengri tíma er
litið gerir slík ávöxtun eða
verótrygging ráðstöfunarfjár
Iífeyrissjóða einnig betur í
stakk búna til að sinna þessu
hlutverki.
Sá hluti ráðstöfunarfjár líf-
eyrissjóða, sem verðtryggður
verður með verðbréfakaupum,
eins og frumvarpið gerir ráð
fyrir, skiptist, eftir nánari
ákvörðun stjórnvalda, milli
fjárfestingarsjóða atvinnuveg-
anna og byggingarsjóðs ríkis-
ins. Verðtrygging 40% ráð-
stöfunarfjár með þessum hætti
er liður í viðleitni til að skapa
grundvöll til jöfnunar á kjörum
þeirra, sem eiga annars vegar
aðild að verðtryggðum Iífeyris-
sjóðum og hins vegar að óverð-
tryggðum. Forsætisráðherra
minnti á að samkvæmt fjárlög-
um greiddi ríkissjóður veruleg-
ar fjárhæðir til verðtryggðs líf-
eyrissjóðs opinberra starfs-
manna, sem væri að þessu leyti
betur settur en hinir almennu
lífeyrissjóðir.
Forsætisráðherra sagði aö
skv. 2 mgr. 3. gr. laganna væri
skipting andvirðis verðbréfa, er
lífeyrissjóðir keyptu, milli fjár-
festingarsjóða atvinnuveganna
og byggingarsjóðs ríkisins, lögð
í vald ríkisins. Þetta væri nauð-
synlegt til að gera ákvæði og
markmið lánsfjáráætlunar
virkari. Forsætisráðherra
ræddi slðan aukningu lánveit-
inga milli ára og taldi, að þrátt
fyrir aukinn hlut atvinnuvega I
umræddu ráðstöfunarfé, myndi
fjárfesting í íbúðarbyggingum
aukast aó magni til um 6% á
komandi ári en dragast saman
um 2—3% hjá atvinnuvegun-
Framhald á bls. 30.
LAUST fyrir klukkan sjö á
laugardagskvöld urðu menn varir
við eld f kjallara hússins númer
27 við Þingholtsstræti í Reykja-
vík. Lögreglubifreið var nær-
stödd og gerðu lögreglumennirn-
ir slökkviliði aðvart og jafnframt
reyndu þeir að brjótast inn í hús-
ið en urðu frá að hverfa vegna
elds og reyks. Skömmu síðar kom
slökkviliðið á staðinn og fóru
reykkafarar inn í kjallarann og
fundu þar mann liggjandi.
Reyndist hann vera látinn.
Maðurinn hét Hilmar Sigurðs-
son, til heimilis að Selvogsgötu 13
i Hafnarfirði. Hann var 45 ára
gamall.
Eldur kom upp í efri hæð þessa
sama húss fyrir tveimur árum síð-
an og bjargaðist þá maður út með
naumindum. Siðan hefur hæðin
staðið ónotuð en verkstæði var í
kjallara þess. Það var i herbergi
innaf verkstæöinu sem maðurinn
fannst látinn. Óvíst er um elds-
upptök.
Guðmundur í 3.
sæti í New York
NÚ ERU aðeins þrjár umferðir
eftir á alþjöðlega inótinu í New
York, þar sem þeir keppa Guð-
mundur Sigurjónsson og Helgi
Ólafsson. Guðmundur er í 3ja
sæti með 8 og 'á vinning en Helgi
hefur 7 og 'A og á enn möguleika á
alþjóðlegum meistaratitli.
Guðmundur sagöi í samtali viö
Mbl. í gær að honum hefði i um-
ferðinni í fyrradag orðið hrapal-
lega á í messunni og tapað illa
fyrir Mednis frá Bandarikjunum.
Kvaðst Guðmundur hafa verið
kominn með gjörunna stöðu auk
þess sem andstæðingurinn var í
þann veginn aö falla á tíma, þegar
hann lék einum þeim hrapalleg-
asta afleik sem hann kvaöst hafa
gerzt sekur um á ferli sínum sem
skákmaður nú hin síðari ár. Sner-
ist taflið þar með algjörlega við.
Helgi hins vegar vann og á mögu-
leika á alþjóðlegum meistaratitli
ef hann heldur vel á spöðunum
það sem eftir er.
Efstur á mótinu er nú stór-
meistarinn Laine með 11 vinn-
inga, Mendis er í öðru sæti með 9
vinninga en Guðmundur hefur 8
og V4. Helgi hefur 7 og Ví eins og
áður segir en staða hans er nokk-
uð óljós vegna þess hversu marg-
ar biðskákirnar eru.
--------/---------------
Jón L. á
evrópumeist-
aramót í skák
JÓN L. Árnason, heimsmeistari
sveina i skák, mun nú yfir hátið
arnar keppa á Evrópumeistara
móti unglinga i Groningen i Hol-
landi, en mót þetta stendur dag-
ana 21. desember til 5. janúar.
Bróðir hans, Ásgeir Þ. Árnason,
mun verða með Jóni, honum til
trausts og halds.
Mót þetta er nokkru sterkara en
mót það sem Jón tefldi á í Frakk
landi er hann varð heimsmeistari.
þar sem þarna eru keppendur allt
upp i 20 ára Hættulegustu and-
stæðingar Jóns eru álitnir Krum
Georgiev frá Búlgaríu. Attila Grósz
péter frá Ungverjalandi og Sergei
Domatov frá Sovétrikjunum Teflt
er eftir svissnesku kerfi, ekki ósvip-
uðu Monradkerfinu