Morgunblaðið - 20.12.1977, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.12.1977, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 LAUSN EINS dularfyllsta leyndarmáls listasögunnar síð- astliðin fjögur hundruð ár er nú að líta dagsins ijós, eða svo virðist vera. 1 þrjú ár samfleytt hefur ver- ið ieitað að huldu málverki eft- ir Leonardo da Vinci, sem var málað á vegg ráðhússins í Flór- enz snemma á 16: öld en hefur ekki verið sýnilegt I rúma fjóra Frummynd mál- verksins „Orrustan viö Anghiari“ eftir Leonardo da Vinci, varðveitt í Windsor. Finnst glatað meistaraverk Leonardos? áratugi. Samkvæmt skýrslu um leitina, sem nú er verið að ganga frá, getur verið að verk Leonardos sé ennþá á veggnum hulið veggmynd, sem listamað- urinn Giorgio Vasari gerði á árunum 1567 til 1569 eða um það bil sextíu árum eftir að Leonardo málaði sína. Málverk Leonardos, „Orrust- an við Anghiari", var talið eitt af undrum heims, þegar hann málaði það og margir lista- menn, sem fóru til Flórenz, gerðu eftirlíkingar af því. Þeirra á meðal var Kafael og Rubens varð svo hrifinn af eftirmyndunum sem hann sá að hann gerði málverk af orrust- unni og það hangir nú í Louvre. En frumskyssur Leonardos af stærra verkinu eru geymdar f Windsor og Feneyjum. Þeir, sem að hafa leitað að frummynd Lconardos, telja þó nokkrar Ifkur á því að verkið sé að finna um það bil einum sentimetra undir freskómynd Vasaris og jafnvel sé það hólfað af. Ifins vegar segja þeir að þetta sé ekki hægt að sanna nema að taka tii cfnagreining- ar sýnishorn úr veggnum. Nú hefur fengizt leyti til þess og niðurstaða þessara rannsókna getur leitt sannleikann í Ijós. Vfsindamennirnir, sem gera þessar tilraunir, eru ftalskir og amerískir og nota við þær ný- tfskutæki og m.a. útfjólubláa geisla til þess að finna staðinn á veggnum, þar sem málverk Leonardos kann að leynast. Þeir segja að hægðarleikur sé að fjarlægja freskómynd Vas- aris til þess að komast að verki Leonardos. Að vfsu eru uppi alls konar getgátur, sem geta að engu gert þessar flóknu rannsóknir. Því hefur verið haldið fram að Vas- ari hafi hreinlega eyðilagt verk Leonardos að því að honum hafi legið svo mikið á að Ijúka sínu verki. Uppi er sú kenning að Lconardo hafi aldrei iokið við verkið og sumir sagnfræð- ingar halda þvf jafnvel fram að þegar Leonardo málaði mál- verkið hafi hann verið að gera tilraun ineð olfuliti, sem hann hafi ekki verið vanur að hand- leika og að þessi tilraun hafi gersamlega farið út um þúfur. En fyrir því eru skjalfestar sannanir að málverkið varð- veittist f góðu ásigkomulagi þangað til Varsari kom til skjalanna. Hvað sem þvf líður, fæst fljótlega úr því skorið hvort Vasari hafi framið spell- virki, hvort verkið hafi eyði- lagzt eða hvort nú verði afhjúp- að enn eitt meistaraverk Leo- nardos da Vincis. FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM í þessari bók er lýst, þegar þeir félagar taka þátt í fræg- asta kappakstri veraldar, sem haldinn er í Le Mans í Frakk- landi. Þar hittast flestir allra frægustu ökusnillingar heims, og þar er sannarlega líf í tuf kunum. - Þeir félagar aka CHEVROLET-MONZA í GTX- flokki, en það eru tryllitæki, sem hægt er að tæta áfram. Arngrímur Thorlacius þýddi. ÍHNÍST ÍHOMPSflH SEION KRAGGUR Finnar eiga mikinn fjölda frá- bærra ævintýra.en flest þeirra eru okkur enn sem komið er lítt kunn, vegna þess, hve finnsk tunga er fjarskyld tungumálum hinna Norður- landaþjóðanna. Sigurjón Guðjónsson þýddi. Saga um fjallahrút, sem er óviðjafnanlegum gáfum gæddur og foringi hjarðar sinnar og gætir hennar af slíkri kostgæfni, að furðu vekur og undrun þeirra, sem til þekktu, en aðalóvinir hjarðar Kraggs var fjallaljónið og úlfarnir — að veiðimönnun- FINNSK ÆVINTÝRI .íS-w/r*. v J * um ógleymdum. Helga Kristjánsdóttir þýddi. FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM FRANffog JÓI }ERKH9 A DYRUNUMI LEIFTUR NANC og hlfkijótta handriSið FRANK og JÓI, Hardýbræður: MERKIÐ Á DYRUNUM HRAÐLESTIN FLJÚGANDI Þetta er 18. og 19. bókin um þessa snarráðu og hugdjörfu bræður og áhættusöm ævin- týri þeirra. Gísli Ásmundsson þýddi. LABBA .. .hertu þig! LABBA er sjálfri sér lík! Nú eru komnar fjórar bækur um LÖBBU litlu, og margar fleiri koma síðar. Hún er 13 ára, lífið er dásamlegt, því að hún á margar vinstúlkur, og alltaf er eitthvað skemmtilegt að gerast í þeim glaða hóp. Gísli Ásmundsson þýddi. GIMSTEINAR Á GRÆNLANDSJÖKLI Eftir JACK HIGGINS. (Áður útkomið eftir sama höfund: „ÖRNINN ER SESTUR‘.‘). Hörkuspennandi bók um dularfullt leyndarmál eins og allra best gerist hjá Alistair McLean. Þetta er bók handa þeim, sem vilja lesa æsisoennandi sögur en vel skrifaðar. í bókinni segir: „Þetta reyndist eitt af þeim málum, er nær ógerlegt virtist að lyfta hulunni af.“ En bó.kin gefur lesandanum svar við því. GísTi Ásmundsson þýddi. KEENE NANCY og hlykkjótta handriðið NANCY og glóandi augað Það er óþarfi að kynna þess- ar bækur nánar. Þær eru vin- sælar og víðlesnar. Gunnar Sigurjónsson þýddi. GAMLAR TALGÁTUR Gátur þessar urðu þannig til, að höfundar höfðu það að leik sínum, að semja þær og senda hver öðrum. Höfundur: Sr. Kjartan Helgason í Hruna. Þessi saga er að mörgu leyti einstætt verk í íslenskum barnabókmenntum. — Engu barni verður rótt í brjósti, fyrr en það veit hvernig Hindinni góðu reiðir af í þeim átökum og hættum, sem hún lagði á sig til þess að hjálpa öðrum ■dýrum í hlíðum Miklufjalla. 03 U, | & N*' 'r m * 4 LEIFTUR IH/ND/N GOÐA | ævintýrí kristján jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.