Morgunblaðið - 20.12.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESJEMIÍJ5R 1977
Ræningjar Akillesar fá
ekki vist í Grikklandi
Aþenu, Nikósíú. 19. des.
AP — Reuter.
MANNRÆNINGJUM Akilllesar
Kyprianousar sonar Spyros
Kyprianousar Kýpurforseta,
verður ekki leyft að koma til
Grikklands, að því er haft er eftir
talsmanni rfkisstjðrnarinnar í
dag. Talsmaðurinn sagði að stjórn
Grikklands hefði samþykkt að
greiða fyrir því að mann-
ræningjarnir gætu komist brott
frá Kýpur létu þeir Akilles laus-
an, en þeim yrði þó ekki veitt
landvist í Grikklandi. Litið er á
þessa yfirlýsingu sem svo að hún
tákni að Grikklandsstjórn muni
leyfa flugvél með mannræningj-
unum innanborðs að hafa við-
Gandhi
úr trúnað-
arstöðum
N.vju Delhi. 18. des. AP.
FYRRVERANDI forsætisráð-
herra Indlands, frú Indira
Gandhi, kom stjórnarandstöðu-
flokkunum, Kongressflokknum, í
vanda á sunnudaginn var, er hún
sagði af sér störfum í starfsnefnd
flokksins, sem fer með æðstu völd
innan hans.
Afsögnin hefur kynt undir
vangaveltum um að Gandhi, sem
nú er sextug að aldri, hafi í
hyggju að kljúfa flokkinn, en
Kongressflokkurinn var við völd í
Indlandi frá því að landið varð
sjálfstætt 1947 þar til að hann
beið ósigur í kosningunum í mars
síðastliðnum og Janataflokkur
núverandi forsætisráðherra,
Moraji Desai, tók við stjórninni.
Stjórnarandstöðuflokkurinn
hefur nú um nokkurra mánaða
skeið samanstaðið af tveim fylk-
ingum — annars vegar þeim sem
styðja núverandi þingforseta,
Brahamanda Reddy, og hins veg-
ar þeim, er krefjast þess að Reddy
viki fyrir Gandhi. Hefur tvískipt-
ing þessi ekki farið leynt og er
ákvörðun Gandhi því ekki með
öllu óvænt. Er taiið að hún muni
knýja flokksieiðtoga til að taka
alvarlega kröfur fylgismanna
Indiru Gandhi um að hún hafi
áhrifavald f málefnum flokksins.
komu á Aþenuflugvelli á leið
sinni til annars lands.
Akillesi syni Kýpurforseta var
sleppt lausum úr haldi á sunnu-
dagsmorgun, en hann hafði þá
verið fjóra daga í haldi hjá öfga-
mönnum neðanjarðarhreyfingar-
innar Eoka-B. Hreyfing sú berst
fyrir sameiningu Grikklands og
Kýpur og krafðist að fangelsaðir
félagar sínir yrðu látnir lausir i
stað Akillesar. Féllu þeir á endan-
um frá kröfum sínum og létu
Akilles lausan er þeim var lofað
að þeir yrðu ekki sóttir til saka
fyrir mannránið.
A milli 40—50 þúsund manns
vottuðu fjölskyldu Kyprianousar
forseta virðingu sína í dag er þeir
söfnuðust saman á Frelsistorginu
í miðbæ Nikósíu. Skólum,
verzlunum og skrifstofum var lok-
að í þrjár klukkustundir í virð-
ingarskyni við fjölskylduna.
Þegar Akilles var færður til
heimils foreldra sinna í gærmorg-
un höfðu þar safnast saman ugi 3
þúsund manns til að fagna heim-
komu hans. Er foreldrar Akilles-
ar föðmuðu hann að sér mátti sjá
að hann var fölur og þreytulegur,
Forseti Kýpur Spiros Kyprianou og kona hans fagna hér Akillesi
syni sínum eftir að hann hafði verið le.vstur úr haldi mannræningja
í Nikosíu um helgina.
en virtist að öðru leyti vera við
góða heilsu.
„Faðir minn breytti rétt gagn-
vart ræningjunum. Það er ekki
hægt að brjóta reglur ríkisins
vegna eins manns“, sagði Akilles
Þetta gerðist
AP, þriójudagur 20. des.
1976 — Forsætisráðherra tsra-
els, Yitzhak Rabin, segir af sér
eftir að hafa tapað naumum
meirihluta stjórnar sinnar á
þingi.
1973 — Forsætisráðherra
Spánar, Luis Carrero Blanco,
lætur lífið, er bifreið hans er
sprengd i loft upp.
1972 — Skyttur drepa átta
karlmenn og fimm aðrir eru
særðir í einum af blóðugustu
átökum, sem átt hafa sér stað í
N-írlandi.
1971 — Forseti Bandarikj-
anna, Richard Nixon, flýgur til
Bermúda til að ræða við Ed-
ward Heath, forsætisráðherra
Bretlands.
1954 — Frakkar senda 20.000
hermenn til Alsír.
1922 — Fjórtán lýðveldi í
Rússlandi mynda sósíalísku
ráðstjórnarlýðveldin.
1916 — Forseti Bandaríkj-
anna, Woodrow Wilson, sendir
friðarboð til allra aðila í heims-
styrjöldinni fyrri.
1852 — Brezkar hersveitir
leggja undir sig Pegu í neðan-
verðri Burma í stríði við þar-
lenda.
1712 — Svíar sigra -Dani við
Gadesbusch í Póllandi.
1699 — Pétur mikli skýrir frá
þvi að nýja árið skuli hefjast
hinn 1. janúar. Fæddir þennan
mánaðardag eru: Þýzki sagn-
fræðingurinn Leopold von
Ranke (1795 — 1886), Irena
Dunne, fyrrverandi bandarísk
leikkona (1904 — )
Hugleiðing dagsins: „Hvað á
jarðrfki mundi maðurinn gera
af sjálfum sér ef ekki stæði
eitthvað í veginum fyrir hon-
um?“ H.G.Wells, enskur sagn-
fræðingur og rithöfundur
(1866 — 1946).
er hann var spurður um afstöðu
föður síns í samningunum við
mannræningjana. Akilles sagði að
fremur illa hefði. verið búið að
honum í fylgsnum mannræningj-
anna. Allan tímann var bundið
fyrir augu hans og varð hann að
liggja allan tímann i byrgi sem
var um tveir fermetrar og aðeins
50 sentimetrar á hæð. Sagðist
hann i fyrstu hafa talið öruggt að'
hann yrði líflátinn. „Og þar sem
ég var hermaður bað ég um að
vera tekinn sómasamlega af lífi“,
sagði Akilles.
A-í»ýzkaland:
VEÐUR
víða um heim
Amsterdam 9 skýjað
Aþena 7 rigning
Beirut 19 sól
Berlin 7 skýjað
Brussel 10 bjart
Kairó 16 bjart
Chicago 4 skýjað
Kaupmannah. 8 skýjað
Frankfurt 3 bjart
Genf O þoka
Helsinki 3 skýjað
Jóhannesarb. 26 sól
Lissabon 16 rigning
London 11 þoka
Los Angeles 17 bjart
Madrid 14 rigning
Miami 27 bjart
Montreal -3 skýjað
Moskva 2 skýjað
New York 2 skýjað
Ósló -5 skýjað
Paris 7 bjart
Rómaborg 4 bjart
San Fransisco 13 bjart
Stokkh. 1 sól
Tel Aviv 18 sól
Vancouver 4 skýjað
Vinarborg 0 þoka
Rithöfundurinn
Becker á braut
Veslur-Berlfn, 19. des. Reuter.
JUREK BECKER einn af þekkt-
ustu rithöfundum Austur-
Þýzkalands hefur flutt frá Aust-
ur-Þýzkalandi og býr nú í Vestur-
Berlín, að því er vinir höfundar-
ins skýrðu frá í dag. Becker er
fertugur að aldri og er þekktastur
á Vesturlöndum fyrir kvikm.vnd
sem gerð var eftir skáldsögu hans
„Jakob Iygalaupur“ en sú saga
fjallar um lífið í ghettóinu í Var-
sjá. Becker fékk vegabréfsáritun
f s.l. mánuði þar sem honum var
leyft að fara frjálsum ferða sinna
milli austurs og vesturs.
Becker hefur fengið ýmsar við-
urkenningar fyrir verk sín í Aust-
ur-Þýzkalandi. Hann hefur í
hyggju áð flytjast til Bandarikj-
anna, en mun ætla sér að halda
austur-þýzkum ríkisborgararétti
sínum, svo fremi hann verði ekki
sviptur honum. Becker tók þátt í
því s.l. haust að gagnrýna stjórn-
völd fyrir þá ákvörðun að reka
Wolf Biermann úr landi.
Lífeyrissjóðirnir mótmæla
áformum ríkisstjórnarinnar
MORGUNBLAÐINU hafa bor-
izt yfirlýsingar tveggja lands-
samtaka lífeyrissjóða vegna
ákvæða í frumvarpi ríkisstjórn-
arinnar um lánsfjáráætlun fyr-
ir næsta ár, þar sem kveðið er á
um skyldu Kfeyrissjóða til að
verja 40% af ráðstöfunarfjár-
magni til kaupa á verðtryggð-
um skuldabréfum fram-
kvæmdalánasjóða. Bæði sam-
tökin, Landssamband lífeyris-
sjóða og Samband almennra líf-
eyrissjóða gagnrýna þessi
ákvæði harðlega en afrit af
bréfum stjórna þeirra til fjár-
hags- og yiðskiptanefndar neðri
dcildar Alþingis fer hér á eftir:
„Stjórn Landssambands líf-
eyrissjóða mótmælir eindregið
þeim ákvæðum í frumvarpi til
laga vegna lánsfjáráætlunar
1978, þar sem gert er ráð fyrir
aö skylda lífeyrissjóði til að
verja a.m.k. 40% af ráðstöfun-
arfé þeirra til kaupa á verð-
tryggðum skuldabréfum fjár-
festingarlánasjóða.
Akvæði þessi marka þáttaskil
í samskiptum ríkisvaldsins við
lífeyrissjóðina, en um alllangt
skeið eða allt frá árinu 1970
hafa ríkisstjórnir haft samráð
við samtök lífeyrissjóða um
málefni þeirra, en tilgangur
Landssambands lífeyrissjóða er
m.a. „að gæta hagsmuna líf-
eyrissjóða á sviði löggjafar og
vinna að því að ríkisvaldið taki
réttmætt tillit til starfsemi og
þarfa lífeyrissjóðanna". —
Landssamband lifeyrissjóða
var stofnáð 1964 og þá gagngert
vegna fyrirhugaðra aðgerða
stjórnvalda svipaðs eðlis og nú
er um að ræða. Innan vébanda
landssambandsins eru nú 49 líf-
éyrissjóðir.
Frumvarp það sem hér um
ræðir var iágt fram án þess að
léitað væri álits samtaka líf-
eyrissjóða á efni þess og telur
stjórn landssambandsins það
mjög misráðið.
Undanfarin ár hefur fjáröfl-
un rikisstjórna til fjárfestingar-
lánasjóða hjá lífeyrissjóðum
grundvallast á frjálsu sam-
komulagi inilli þessara aðila.
Stjórn landssambandsins telur,
að þetta fyrirkomulag hafi
tekist með ágætum og því engin
ástæða til að fara inn á þá braut
að lögskylda lífeyrissjóði til
slíkra skuldabréfakaupa.
Þá vekur stjórnin athygli á
því, að ekki er raunhæft að
gera ráð fyrir, að sjóðirnir geti
varið 40% af ráðstöfunarfé
þeirra í þessu skyni án þess að
um stórfellda röskun á veitingu
íbúðalána til sjóðfélaga þeirra
verði að ræða.
Stjórn landssambandsins
dregur jafnframt í éía rétt
stjórnvalda til að svipta meö
þessum hætti líféyrissjóðina
ráðstöfunarréttinum yfir fjár-
magni þeirra, sem ótvírætt er
eign sjóðfélaganna.
Stjórn Landssambands
lífeyrissjóða skorar á stjórn-
völd að endurskoöa fyrirætlan-
ir sínar í þessu efni og hafa um
þær fullt samráð við samtök
Iífeyrissjóða."
Þá hefur Morgunblaðinu
einnig borizt eftirfarandi bréf
SAL til fjárhags- og viðskipta-
nefndar:
Framkvæmdastjórn Sam-
bands almennra lífeyrissjóða
hefur á fundi sínum í dag,
föstudag 16. desember, fjallað
um ráðagerðir ríkisstjórnarinn-
ar að skylda éérhvern lífeyris-
sjóð með lögum að verja á ári
hverju a.m.k. 40% af ráöstöfun-
arfé sínu til kaupa á verð-
tryggðum skuldabréfum fjár-
festingalánasjóða. Ef framan-
greindar ráðagerir verða að lög-
um, er gert ráð fyrir að lífeyris-
sjóðunum verði skylt að verja á
næsta ári a.m.k. 6,8 milljörðum
kr. til fjárfestingalánasjóða.
Af þessu tilefni vill fram-
kvæmdastjórn Sambands
almennra lífeyrissjóða taka
fram eftirfarandi:
Framkvæmdastjórnin mót-
mælir harðlega allri lögbind-
ingu á meðferð fjármagns líf-
eyrissjóðanna. Jafnframt telur
framkvæmdastjórnin að líf-
eyrissjóðunum sé ofviða að
kaupa verðtryggð skuldabréf af
fjárfestingasjóðunum fyrir
a.m.k. 40% af ráðstöfunarfénu
og bendir á að biðtími eftir
íbúðalánum hjá þeim, sem öðl-
ast hafa full lánsréttindi, er frá
nokkrum mánuðum í allt að
einu og hálfu ári.
Framkvæmdastjórnin vekur
sérstaka athygli á því, að frum-
varp þetta er lagt fram án
nokkurs samráðs við lífeyris-
sjóðina eða aðila * vinnu-
markaðarins.
Lífeyrissjóðir innan Sam-
bands almennra lífeyrissjóða
hafa fram að þessu staðið viö
skuldbindingar sínar um verð-
tryggð skuldabréfakaup af
Byggingarsjóði rikisins og
munu hér eftir sem hingað til
standa við gefin loforð þar um.
Hinir almennu lífeyrissjóðir
voru settir á stofn í ársbyrjun
1970 samkvæmt ákvæðum í
kjarasamningum aðila vinnu-
markaðarins frá árinu 1969.
Við það verður ekki unað að
stjórnvöld geti einhliða ráðsk-
ast með fjármuni lífeyrissjóð-
anna og gripið þannig inn í
gerða kjarasamninga aðila
vinnumarkaðarins.
Framkvæmdastjórn Sam-
bands almennra lífeyrissjóða er
að sjálfsögðu Ijós sá mikli
vandi, sem sjóðirnir eiga við að
etja á verðbólgutimum. Fram-
kvæmdastjórnin er og hefur
ávallt veriö reiöubúin að ræða
ávöxtunarmál lífeyrissjóðanna
og leita lausnar á þeim málum í
samvinnu við stjórnvöld. Ilins
vegar munu stjórnir lífeyris-
sjóðanna sem skipaðar eru að
jöfnu fulltrúum aðila vinnu-
markaðárins, ekki ijá máls á
þvi, að hægt verði með einhliða
lagasetningu að ráðskast með
fjármuni þeirra.
Framkvæmdastjórn Sam-
bands almennra lífeyrissjóða
lýsir yfir fyllstu andstöðu sinni
við slíkum vinnubrögðum, og
skorar jafnframt á stjórnvöld
að falla nú þegar frá ráðagerð-
um sinum um lagasetningu
vegna skuldabréfakaupa líf-
eyrissjóðanna af fjárféstingar-
lánasjóðum. Um slík kaup, skal
nú sem áður semja á jafnréttis-
grundvelli.