Morgunblaðið - 20.12.1977, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977
37
— Samhljóða niðurstaða
dómendanna þriggja
Framhald af bls. 32.
framburður ákærðu Erlu um ..rauða
húsið" Hélt hún burt af vettvangi á
meðan á átökunum stóð eða i þann
mund er þeim var að Ijúka Fór hún i
umrætt hús, sem stóð mannlaust og
hún hefur bent á og dvaldist þar til
morguns. Um þær mundir, sem Geir-
finnur hvarf skýrði hún vitni frá dvöl
sinni i mannlausu húsi í Keflavik
Ákærða Erla fékk far með tveimur
ökumönnum á leiðinni frá Keflavík að
morgni 20 nóvember 1974, öðrum
frá Keflavik að mótum Reykjanesbraut-
ar og vegarins til Grindavikur, en hin-
um þaðan til Hafnarfjarðar Hefur verið
hægt að staðreyna, að ökumenn þessir
voru þarna á ferð umræddan morgun
Annar ökumannanna þekkti ákærðu úr
hópu stúlkna við sakbendingu Gat
hann síðar rakið efni samtals, er þeim
fór á milli, og ákærða hefur staðfest Er
það álit dómsins, að sannað sé, þótt
ekki sé litið til framburða meðákærðu.
að ákærða Erla hafi verið að koma frá
Keflavik þennan morgun
Ákærða Kristjáni Viðari gafst kostur
á að sjá ákærða Guðjón i fangelsinu
við Siðumúla, er ákærði Guðjón kom
til yfirheyrslu 15. mai 1976. Taldi
hann sig þekkja þar „Útlendingslega
manninn”, sem hefði farið með þeim til
Keflavíkur 19. nóvember 1974
Ákærði Sævar Marinó gaf fyrst upplýs-
ingar 28 október 1 976 um að ákærði
Guðjón væri viðriðinn mál þetta
Ákærði Guðjón neitaði fyrst i stað
allri vitneskju um málið og kom játning
hans stig af stigi á löngum tima um
þátt hans í átökunum við Geirfinn
Mjög erfitt hefur verið að fá ákærða til
að tjá sig um sakarefni Hefur hann
borið við minnisleysi og haft alls konar
fyrirvara í framburðum sinum
Við húsleit hjá ákærða Guðjóni, er
hann var handtekinn, fannst minnis-
bók. þar sem ákærði hefur skráð ýmis-
legt úr dagblöðum um rannsókn Geir-
finnsmálsins
Þá virðist náið samband hafa verið
milli ákærða Guðjóns og ákærða
Sævars Marinós bæði fyrir og eftir
hvarf Geirfinns. Ákærða Erla greinir og
frá grunsamlegum samtölum þeirra og
símtölum
Otvíræðir framburðir
Framburðir ákærðu Sævars Marinós
og Kristjáns Viðars eru ótvíræðir um
þátt þeirra i átökunum við Geirfinn,
svo sem lýst hefur verið hér að framan.
Varhugavert þykir að leggja alveg til
grundvallar framburði þeirra um þátt
ákærða Guðjóns i átökunum, en þar
kemur fram m a að hann hafi tekið
verulegan þátt i þeim og hvatt til að
Geirfinnur væri tekinn i gegn
Ákærði Guðjón hefur skýrt frá þvi.
að hann hafi tekið i öxl Geirfinns og
hindrað hann i að fara á brott og auk
þess tekið Geirfinn hálstaki og haldið
honum föstum Verið geti að ákætði
hafi skellt honum til jarðar og að hann
hafi dasast Ákærði sagði og: „Mér er
Ijóst, að hann (Geirfinnur) lét lífið i
átökum við okkur þrjá”
Ákærðu og Sigurður Óttar voru
fengin hvert í sinu lagi til að segja til
um stöðu bifreiðanna í Dráttarbraut-
inni, hvar þau og Geirfinnur hefðu
verið á meðan á átökunum stóð og
hvernig Geirfinnur hefði legið að þeim
loknum Nokkurt misræmi kom fram
um smáatriði. en framburðir ákærðu,
einkum ákærðu Kristjáns Viðars. Sæv-
ars Marmós og Guðjóns. voru þó
áþekkir um margt
Fulkomin vissa er fyrir því. að Geir-
finnur Einarsson var í veitingahúsinu
Klúbbnum að kvöldi sunnudagsins 1 7
nóvember 1 974, en þar kveðst ákærði
Sævar Marinó hafa hitt hann og rætt
við hann og ákærði Kristján Viðar
kveðst hafa rætt um áfengisviðskipti
við mann, sem hann telur að geti hafa
verið Geirfinnur Einarsson Er vera
ákærðu í Klúbbnum um þessar mundir
studd framburði eins vitnis
Ákærði Sævar Marinó kveður Geir-
finn hafa gefið sér upp i Klúbbnum,
nafn og heimilisfang, en ekki sima-
númer. Geirfinnur hafði fengið sima
nokkru áður, en var ekki i simaskrá og
var símanúmer Geirfinns 3157
Ákærði Sævar Marinó kveðst hafa afl-
að sé upplýsinga um simanúmerið hjá
simanum í yfirheyrslu 28 október
1976 var ákærði spurður um. hvort
hann myndi simanúmerið, sem ákærði
Guðjón skrifaði á miða, er ákærði
Kristján Viðar fékk við Hafnarbúðina
Ákærði Sævar Marinó mundi ekki al-
veg númerið, en taldi að i þvi hefði
verið talan 3 1
Sævar
frumkvöðull
ferðarinnar
Ákærði Sævar Marinó, sem var
frumkvöðull ferðarinnar til Keflavíkur,
virðist hafa fengið þá hugmynd af
viðtalinu við Geirfinn, að Geirfinnur
vissi um geymslustað á smygluðum
spíritus í Keflavik Taldi ákærði Geir-
finn vera „Geira í Keflavik”, er fengist
hefði við smygl eða sölu á smygluðum
spíntus, en um mann þennan er ekkert
nánar vitað Einhverja hugmynd virðist
ákærði hafa haft um Dráttarbrautina i
Keflavik. því að þangað var ferðinni
heitið Átti að fá Geirfinn með illu eða
góðu til að gefa upp geymslustaðinn
og bjóða honum peninga fyrir, en
síðan var ætlunin að taka spiritusinn
ófrjálsri hendi Ákærði Sævar Marinó
virðist hafa verið svo viss i sinni sök
um þetta og að um mikið magn af
spiritus væri að ræða. að hann fékk
ákærða Kristján Viðar til að útvega
sendibifreið til að flytja spíritusinn.
Ákærða Kristjáni Viðari virðist þvi hafa
verið Ijóst í hvaða tilgangi ferðin var
farin og hafði hann orð á þessari
fyrirhuguðu ferð við tvö vitni, er að
framan greinir, að þau telja um líkt
leyti og Geirfinnur hvarf Vitnin hafa
og borið í þessu sambandi að komið
hafi verið að kvöldlagi um þetta leyti
að sækja ákærða Kristján Viðar að
Laugavegi 32. þar sem hann bjó um
þessar mundir og annað vitnið sá
ákærða halda út á Vatnsstíg og fara þar
upp i bifreið, en ákærðu kveðast hafa
lagt af stað frá Vatnsstíg til Keflavikur
Ákærði Guðjón kveður ákærða
Sævar Marinó hafa sagt sér, að hann
ætlaði að eiga einhvers konar viðskipti
við mann í Keflavik, að því er næst
verður komist af framburði ákærða
með spiritus. Hefur ákærði látið að þvi
liggja, að hann hafi farið ferðina til
Keflavikur af forvitni.
Fram er komið í málinu, að ákærðu
Sævar Marinó og Erla voru að Kjar-
valsstöðum að kvöldi 19 nóvember
1974 ásamt móður ákærða Sævars
Marinós. Kemur dvöl þeirra þar að áliti
dómsins ekki í veg fyrir, að þau geti
hafa verið i Keflavik síðar sama kvöld
og vitni. er kveðst hafa hitt þau þarna
minnir, að ákærði Sævar Marinó hafi
sagt við það annað hvort þarna eða um
'þessar mundir, að hann væri að fara til
Keflavikur
Hi8 dularfulla
stefnumót
Samkvæmt framburði vinnufélaga
Geirfinns, er ók honum, er hann fór i
Hafnarbúðina i fyrra skiptið, sagðist
Geirfinnur ætla að hitta einhverja
menn honum ókunnuga við Hafnar-
búðina og að stefnumót þetta væri
dularfullt. Hefði hann verið boðaður
með simtali og ætti hann að koma einn
og gangandi Þá hafi hann látið að þvi
liggja að ef til vill ætti hann að hafa
með sér barefli Loks hafi hann talað
um. að kona sin mætti ekki vita af
þessu og skildist vitninu, að það væri
krafa þeirra manna, er hann ætlaði að
hitta Geirfinnur Einarsson fór i siðara
skiptið heiman frá sér samkvæmt upp-
lýsingum konu hans skömmu fyrir kl
22.30 og hefur ekkert spurst til hans
síðan Bifreið Geirfinns fannst i nánd
við Hafnarbúðina i Keflavik eftir hvarf
hans og má telja öruggt samkvæmt
framburðum vitna, að hún hafi verið
komin þangað kl. 22.34
Ákærðu ber öllum saman um. að
þau hafi verið þarna í bifreið á þessum
tima Telja þau sig hafa verið komin til
Keflavíkur er hlé var á sýningu i kvik-
myndahúsi, er þau óku fram hjá, en
það hófst kl 22.00 eða kl. 22.02 og
’stóð i um 1 0 minútur Ákærðu telja sig
þekkja Geirfinn af myndum. er þau sáu
af honum og eins hafa þau lýst nokkuð
klæðnaði hans, þóft sú lýsing sé ófull-
komin
Fram er komið i málinu, að ákærði
Kristján Viðar var undir áhrifum lyfja,
en ekkert liggur fyrir um, að önnur
ákærðu hafi verið það eða undir áhrif-
um áfengis.
Af samtali Geirfinns við áðurgreind-
an vinnufélaga sinn mætti ætla, að
Geirfinnur hafi jafnvel átt von á. að til
átaka gæti komið við menn þá, er hann
ætlaði að hitta Ummæli ákærða Sæ-
vars Marinós i bifreiðinni á leið til
Keflavíkur m a. um, að ef til vill þyrfti
að láta mann hverfa, geta bent til þess,
að ráðagerðir hafi verið uppi um að
svipta Geirfinn lifi Þrátt fyrir þetta er
ekki nægilega sannað að svo hafi ver-
ið
Átökin
við Geirfinn
Framburðir ákærðu Kristjáns Viðars.
Sævars Marninós og Guðjóns um
átökin við Geirfinn eru ekki á einn veg,
en þó er Ijóst að ákærðu allir réðust á
hann. er hann ætlaði burt Virðist af
framburðum ákærðu, að árásin á hann
i Dráttarbrautinni hafi stafað af gremju
Framhald á bls. 46.
LÆKJARGÖTU 2 - SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155
Bogmaður:
22 nóv — 21 des.
Litir: Allir bláir litir.
Steinn: Topas
Lykilorð: Hraði, heiðarleiki
Vanti þig að vita sannleikann eða rétta skoðun á einhverju máli, þá spurðu
bogamann. hann dregur ekkert undan. Bogamaðurinn setur mark sitt hátt og
hræðist fátt. Hann sér lifið og tilveruna i skemmtilega réttu Ijósi en á það til. að
stuða fólk, eins og t.d. með þvi að segja „þessi rúllukragapeysa fer þér mjög vel. hún
felur alveg undirhökuna." hann meinar ekkert illt. Þetta er aðeins sannleikur.
Bogamaðurinn er mikill unnandi iþrótta og útivista.
Sem dæmi um fræga menn fædda i þessu merki, má nefna: Beethoven, Churchill.
Noel Coward, Sammy Davis, Walt Disney, John Lindsay, Frank Sinatra, Mark Twain
og Colin Porter.
Hafi bogamaður áhuga á fatnaði. þá klæðist hann óaðfinnanlega eftir sinu eigin
Þyggjuviti. En hann gæti lika látið konunni eftir fatakaup, fyrir sig, af þeirri einföldu
ástæðu. að hann hefur ekki tima og eryfirhlaðinn af öðrum störfum og áhugamálum.
Hvenær ert þú
fæddur
Stjörnurnar
ráða
klæðnaði
þínum