Morgunblaðið - 20.12.1977, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
‘IrwvjsawuM'vu
ekki of hátíðlega. Það er sjálfsagt
nokkuð til í þessari ábendinu
bréfritarans og vel mætti ímynda
sér að fólk sé óþarflega niður-
dregið í skammdeginu, það kemur
þó alltént vor að nýju og (von-
andi) gott sumar! Nóg um þessar
lundarfarshugleiðingar og snúum
okkur að næsta bréfi, sem er
stutt:
0 Fósturlandsins
Freyja leigð?
„Það eru til konur bæði í
Tyrklandi og Grikklandi, sem
taka leigugjald fyrir líkama sína.
Viljið þið, íslenzkar konur, feta í
fótspor þeirra? Og óska islenzkir
karlmenn dætrum sínum slíks
hlutskiptis? Ef ekki, hví þá
Fósturlandsins Freyja? Eigum
við að tileinka okkur allt það sem
lakast er hjá öðrum þjóðum?
Islendingur."
Og að lokum er hér bréf er
fjallar um skemmtistaðina og
hvort það sé þar sem allt vont
gerist:
• Ekki
skemmtistöðum
að kenna
„Ég var að lesa í Mbl. viðtal
við Alfreð Þorsteinsson. Ekkert
veit ég um þetta mál og kemur
heldur ekki við, en eitt er þó i
þessu viðtali, sem ég hnaut um og
það er sem hann segir að svo sé
komið að ekki sé hægt að fara á
skemmtistaði borgarinnar án þess
að eiga yfir höfði sér kæru fyrir
brot. Ég kem töluvert á skemmti-
staði hér i borg og fyrir þeirra
hönd vil ég hiklaust mótmæla
þessu.
Sem betur fer eru skemmti-
staðirnir okkar ekki orðnir eins
og krár í Nýhöfn eóa slíkt. Nei,
það sem gerist er venjulega og
eiginlega alltaf eftir að skemmti-
staðnum er lokað og eftir að
„partiin" hefjast. Það er skemmst
að minnast kunningja minna,
hjóna, sem ætluðu að gera sér
dagamun i tilefni afmælis. Þau
fóru á virðulegan veitingastað,
borðuðu, fengu sér ljúfar veigar
með matnum, voru komin í ,,stuð“
og fóru á stað til að dansa og fá
sér nieira. Þar hitta þau par, sem
þau þekktu ekki neitt, stúlkan
islenzk og hann útlendur. Þeim
geðjaðist vel að þessu fólki og
bjóða þeim heim, þar sem var
töluvert áfengi fyrir hendi. En þá
féll fljótlega griman af þessurn
framandi gestum og það er ekkert
að orðlengja það, að eftir nóttina
var heimilið eins og rúst, meira og
minna brotið og bramlað. Þetta er
nefnilega alls ekki einsdæmi hér,
en þetta er það sem maður kallar
yfir sig sjálfur með þvi að taka
inn á heimili ókunnugt fólk og
allir oftast meira og minna
drukknir. Nei, á veitingastaðnum
sjálfum er það ekki svona slæmt.
Kata.“
Vel má þetta vera rétt ábending
hjá Kötu, að fremur geti eitthvað
misjafnt gerzt er út fyrir veitinga-
staðina er komið, en þó hlýtur það
einnig að geta komið fyrir þar,
eins og fréttir hafa stundum
heyrzt af.
Þessir hringdu . . .
£ Takmörkun
auglýsinga
Útvarpshiustandi:
— Það hafa sjálfsagt fleiri en
ég tekið eftir þvi hversu gífurlega
mikið er af auglýsingum í útvarp-
inu núna, eða tilkynningum eins
og það heitir á máli útvarps-
manna. Oft hefur verið mikið um
auglýsingar í útvarpi fyrir jólin,
en ég held að þær hafi aldrei
verið fleiri en núna, eða svo
finnsl mér a.m.k. Eiginlega er
þessi timi manni hálfgerður þyrn-
ir í augum, þar sem öll dagskrá
útvarpsins fer meira og minna úr
skorðum, eða það varð a.m.k. á
laugardag, og hefur verið nokkra
daga nú að undanförnu. Barna-
sagan hefur verið stytt o.fl. mætti
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A alþjóðlegu skákmóti í London
í ár kom þessi staða upp í skák
Englendinganna Hardings, sem
hafði hvitt og álti leik, og Trevely-
ans:
18. Rdb5! — axb5 19. Rxb5 — Dd8
20. Bxb6 — I)xl)6 21. Hxd6. Svart-
ur gafst upp. Drottning hans á sér
ekki undankomu auðið. Sigurveg-
ari á mótinu varð argentinski
stórmeistarinn Quinteros. Hann
hlaut 8 v. af 10 mögulegum. I öðru
sæti varö Birnboim, Israel með
7'A v. og í 3.—5. sæti þeir Torre,
Filippseyjum og Englendingarnir
Nunn og Webb. Þátttakendur
voru alls 66 og tefldu þeir 10
umferðir eftir svissneska kerfinu.
Það var Lloyds bankinn i London
sem fjármagnaði mótið.
sjálfsagt nefna. En það sem vakir
fyrir mér með þessum orðum er
að varpa því fram hvort ekki sé
unnt að stytta eða takmarka á
einhvern hátt þennan mikla aug-
lýsingatíma. Væri ekki mögulegt
að setja einhvers konar þak á
þann tíma sem auglýsingum væri
ætlaður og segja bara þvi miður,
nú er allt orðið upppantað hjá
okkur. Ég hef það á tilfinning-
unni að svona sé þessu farið hjá
sjónvarpinu, því þar er a.m.k.
nokkurn veginn vitað fyrirfram
hversu langur timi fer í þetta.
Auðvitað er hér um eina mestu
tekjulind útvarpsins að ræða,
ekki sizt svona rétt fyfir jólin, en
það liggur við að maður hafi alls
enga löngun til að opna fyrir út-
varpið yfirleitt á þessum árstíma,
það eru annaðhvort augiýsingar,
sem maður heyrir eða niðurskorn-
ir dagskrárliðir og hugsanlega á
milli lestur úr nýjum bókum. Við
sem erum kannski heima við all-
an daginn, viljum gjarnan heyra
venjulega dagskrá því hún er
yfirleitt ágæt, en okkur finnst
nærri þvi að okkur sé misboðið
með þessum sífelldu tilkynning-
um.
HOGNI HREKKVISI
Þella hlutverk er nú ekki beinlínis sniöið f.vrir
hann!
NORRÆNA DEILDIN
HAFNARSTRÆTI 3
ARABIA
AEG
AEG
'y&g'
tóa p
Fjölbreytt úrval AEG handverkfæra til iðnaðar-
bygginga- og tómstundavinnu.
Vandið valið og notið sterk og vönduð verkfæri.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
HANDVERKHERI
ÖSKAGJÖFISTeiH
VASAREIKNIVÉL
Hverfisgötu 33 Sími 20560