Neytendablaðið - 01.03.2001, Page 11
DVD-spilarar
Heimabíó á
hagstæðu verði
Mikil sala er í DVD-mynd-
geislaspilurum víða um heim.
Allt bendir til þess að þessi
fjölhæfu tæki, sem líka geta
spilað CD-hljómdiska, breið-
ist hraðar út en myndbands-
tækin á sínum tíma. Hefð-
bundin myndbandstæki geta
tæknilega ekki skilað jafn-
skarpri og stöðugri mynd og
ráða heldur ekki við þann
stafræna hljómflutning sem er
æskilegastur í heimabíói. Þar
að auki fer verð DVD-spilar-
anna stöðugt lækkandi. Þegar
Neytendablaðið gerði mark-
aðskönnun á spilurum fyrir
réttu ári (sjá 1. tbl. 2000) voru
37 gerðir á markaðnum og
kostuðu þær ódýrustu 35-40
þús.kr. en nú eru fást hér 62
spilarar og þeir ódýrustu um
25 þús.kr.
Hér eru birtar niðurstöður
úr gæðakönnun International
Consumer Research and Test-
ing (ICRT) á níu DVD-spilur-
um. Fimm þeirra fást hérlend-
is en auk þess spilarar sem
eru mjög svipaðir fjórum
þeirra.
heppileg ef tengjast á samtím-
is fleiri tækjum en sjónvarpi,
t.d. gervihnattamóttakara eða
myndbandstæki. Og í þau
vantar stundum fullkomnustu
stafrænu hljóðkerfin (digital
surround-decoder og DTS) til
að nýta til fulls fjölrása
hljóminn í fimm hátölurum
eins og í heimabíói. En það
skiptir í raun oft ekki öllu
máli því stafrænt hljóðkerfi er
að jafnaði í öllum sjónvarps-
móttökurum núorðið.
Varað er við að kaupa í
stórverslunum erlendis eða á
netinu ódýra DVD-spilara án
vorumerkis („no name“). I
könnunum hefur kornið í ljós
að myndgæðin eru miklu síðri
en tíðkast í „alvöru“-tækjum,
þau sýna ekki rétta birtu eða
liti og kyrrmyndirnar geta
vart kallast því nafni. Þau er
oft auglýst með ýmsum kost-
um, og reyndar koma staf-
rænu hljómkerfin ágætlega út,
en yfirleitt eru þægindi í notk-
un lítil, viðbragðstími langur
o.s.frv. Ennfremur er örugg-
ast varðandi ráðgjöf og þjón-
ustu að kaupa „merkjavöru”.
Spilun diska
Algengt er nú að fólk noti
geislaskrifara (brennara) til að
setja mynd og hljóð á CD-R-
og CD-RW-geisladiska.
Margir en alls ekki allir
DVD-spilarar geta spilað þá.
Á CD-R-diska er hægt að
brenna einu sinni en oft á
CD-RW-diska, þeir eru end-
uráritanlegir (rewritable).
Til athugunar fyrir kaup
Yfirleitt er óhætt að kaupa
DVD-spilara í lægri verð-
flokkum ef notandinn ætlast
aðeins til að fá mikil mynd-
og hljómgæði. Spilararnir fá
oftast háar einkunnir í þeim
efnum. Það sem kaupandinn
greiðir meiri peninga fyrir er
að jafnaði fjölþættari búnaður
og möguleikar. DVD-spilur-
um í lægri verðflokkum
fylgja t.d. yfirleitt ekki heym-
artól eða myndjuðari (jog-
shuttle) fyrir mismunandi
handvirka hrað- og hægspilun
myndefnis. Þau hafa heldur
ekki auka scart-tengi sem eru
Ný markaðskönnun á netinu
Ný markaðskönnun á 62 DVD-spilurum er á
vef Neytendasamtakanna (www.ns.is). I
henni koma fram 20 atriði um hvert tæki.
Markaðskönnunin er á læstri síðu. Lykil-
orðið er „neytandi“.
Á www.ns.is eru svör við þessum spum-
ingum um 62 DVD-spilara á íslenska mark-
aðnum:
• Hver er seljandi, hvert er staðgreiðsluverð,
krítarkortsverð, raðgreiðsluverö?
• Hve langur er ábyrgðartíminn?
• Hvert er framleiðslulandið og framleið-
andinn?
• Hvert er hljómkerfið, - er spilarinn með
„surround-decoder“, Dolby Digital eða
Digital Theatre Sound (DTS)?
• Spilar hann truflunarlaust CD-R- og CD-
RW-diska úr geislaskrifurum (brennur-
um)?
• Er hann með innstungu fyrir heymartól?
• Er hann með myndjuðara (jog-shuttle)?
• Hve mörg scart-tengi hefur hann?
• Getur hann spilað MP3-tónlist af CD-R-
og CD-RW-diskum?
• Hve marga diska tekur hann í einu?
• Er hægt að breyta svæðislæsingu?
• Getur hann spilað diska fyrir öll svæði
(kerfí)?
• Getur hann spilað bandaríska NTSC-diska
í PAL?
NEYTENDABLAÐIÐ - mars 2001
11